Lögmaður Tekjur.is svarar bréfi Persónuverndar

Per­sónu­vernd sendi Visku­brunni ehf. bréf í októ­ber þar sem athugað var hvort að birt­ing skatt­skrár í heild sinni á vef­síð­unni Tekjur.is sam­ræmd­ust lögum um per­sónu­vernd. Í svar Visku­brunnar er greint frá laga­legum grund­velli heima­síð­unnar.

Per­sónu­vernd sendi bréf til Visku­brunns ehf. þann 17. októ­ber 2018 þar sem til­kynnt var að Per­sónu­vernd hafi ákveðið að hefja athugun á því hvort birt­ing skatt­skrár í heild á vef­síð­unni Tekjur.is sam­rým­ist lögum nr.90/2018 um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga en á síð­una er að finna upp­lýs­ingar um skatt­stofna og tekjur þeirra sem greiða skatta hér­lendis 18 ára og eldri.

Í svari Visku­brunnar ehf. við bréfi Per­sónu­verndar kemur fram að Tekjur.is telja sig standa á standi á traustum laga­legum grund­velli. Visku­brunnur telur að sú birt­ing upp­lýs­inga úr skatt­skrám sem fram fer á vefnum www.tekjur.is sé heim­ilt á grund­velli sér­á­kvæðis 2.mgr. 98. gr laga nr.90/2003 og að hún falli þar með utan gild­is­sviðs per­sónu­vernd­ar­laga. Þegar af þeirri ástæðu hefur Per­sónu­vernd engar vald­heim­ildir til afskipta af þeirri upp­lýs­inga­miðlun sem fer á síð­unni sam­kvæmt bréf­inu.

Visku­brunnur ehf. telur að sú birt­ing upp­lýs­inga sem fram fer á síð­unni Tekjur. is sé ekki ein­ungis heimil á grund­velli þeirra sjón­ar­miða koma fram í ákvæði laga nr.90/2003 heldur einnig er heim­ilt veitt í lögum nr.90/2018 þar sem tekið er fram að tak­marka eigi ekki aðgang að grund­velli laga­á­kvæða um upp­lýs­inga­rétt almennigs, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr.90/2018. Visku­brunnur ehf. sækir birt­ingu upp­lýs­ing­anna einnig stoð í 1. mgr. 6.gr. laga nr. 90/2018. Í því ákvæði er að finna sér­staka reglu um afmörkun á gild­is­sviði per­sónu­vernd­ar­laga gagn­vart tján­ingu sem stunduð er í þágu fjöl­miðl­unar, lista eða bók­mennta.

Tekjur.is

Upp­lýs­ingar um það hvernig tekjur fólks skipt­ast, og tæm­andi upp­lýs­ingar um hverjir borga hvað í skatta er hægt að finna í svo­kall­aðri skatt­skrá. Í vor var skatt­skráin fyrir árið 2017 gerð opin­ber. Í henni er að finna nið­ur­brot á öllum skatt­greiðslum ein­stak­linga – tekju­skatt, útsvar og fjár­magnstekju­skatt – vegna árs­ins 2016. Því er um eldri upp­lýs­ingar að ræða en t.d. þær sem hægt var að lesa um í síð­asta Tekju­blaðið Frjálsrar versl­unar, en ítar­legri þar sem þær sýna hvernig tekjur við­kom­andi hafði.

Þessum upp­lýs­ingum safn­aði vef­ur­inn Tekjur.is saman og gerði þær aðgengi­legar á staf­rænu formi. Vefurinn fór í loftið þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn og þar birt­ust upp­lýs­ingar um alla Íslend­inga sem eru 18 ára og eldri, og yngri en 100 ára, með sama hætti og þær birt­ast í skatt­skránni.

[links]Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um efni skatt­skrá­ar­innar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist sl. 12. októ­ber. Þar kom meðal ann­ars fram að 137 Íslend­ingar voru með fjár­magnstekjur yfir 100 millj­ónum króna á árinu 2016, 54 voru með yfir 200 millj­ónir króna í slíkar tekjur og 33 þén­uðu yfir 300 millj­ónir króna á þann hátt. Alls voru fjár­magnstekjur 22 ein­stak­linga yfir 400 millj­ónir króna á árinu 2016 og 16 voru með yfir hálfan millj­arð króna í slíkar tekj­ur.

Krafist lögbanns og formleg kvörtun barst til Persónuverndar

Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna, gerði kröfu um að lög­bann væri sett á vef­inn Tekj­ur.­is þann 15. októ­ber. Auk þess barst form­leg kvörtun til Per­sónu­vernd frá almanna­tengl­inum Björg­vini Guð­munds­syni vegna máls­ins.

Í yfir­lýs­ingu frá Ingvari Smára seg­ir: „Ég tel að birt­ing fjár­hags­upp­lýs­inga allra skatt­greið­enda á vefnum Tekj­ur.is ­feli í sér ómak­lega aðför að stjórn­ar­skrár­vörðum rétti almenn­ings til frið­helgis einka­lífs. Með starf­rækslu vefs­ins er að mínu mati farið út fyrir heim­ildir þeirra ákvæða sem hafa legið að baki opin­berri umfjöllun um laun og skatt­greiðslur Íslend­inga í gegnum árin. Í ljósi þess tel ég rétt að sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggi lög­bann við vinnslu Visku­brunns ehf. á fjár­hags­upp­lýs­ingum Íslend­inga og að félag­inu verði gert að afmá upp­lýs­ing­arnar af vef­síðu sinn­i, tekj­ur.is“

Miðla upplýsingum til almennings

Í bréf­inu til Per­sónu­verndar kemur fram að Visku­brunnur ehf. líti svo á að sú birt­ing sem fram fer á vef­síð­unni tekjur.is eigi sér ein­vörð­ungu stað í því skyni að miðla almenn­ingi með skil­virkum hætti stað­festum upp­lýs­ingum sem skatta­yf­ir­völd hafa þegar birt í skatt­skrá og allir borg­arar lands­ins hafa aðgang að. Birtingu upp­lýs­inga er ætlað að stuðla að umræðu um tekju­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu og fram­lagi ein­stak­linga til upp­bygg­ingar þess sem hlýtur að telj­ast grund­vall­ar­at­riði í lýð­ræð­is­legri umræðu segir í svari Visku­brunns.

Birting þess­ara upp­lýs­inga er því í meg­in­at­riðum ekk­ert frá­brugðin miðlun upp­lýs­inga af þeim toga sem svo­nefnd tekju­blöð Frjálsrar versl­unar og DV hafa geng­ist fyrir og Per­sónu­vernd hefur ekki talið sig hafa heim­ildir að lögum til að hafa afskipti af, sjá hér til hlið­sjónar mál nr.2017/1068 og 2017/1001. Telur Visku­brunnur ehf. að öll þau rök sem ákvarð­anir Per­sónu­verndar í ofan­greindum málum um frá­vísun mál­anna byggð­ust á eigi að breyttu breyt­anda við um þetta mál.

Sérákvæði sem ganga framar ákvæðum persónuverndarlaga

Í bréf­inu er vísað í 1. mrg. 5 gr per­sónu­vernd­ar­laga þar sem kveðið er sér­stak­lega á um að sér­á­kvæði ann­ara laga um vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem sett eru innan ramma reglu­gerð­ar­innar gangi framar ákvæðum per­sónu­vernd­ar­laga. Að mati Visku­brunnar er ljóst að ákvæði loka­máls­liðar 2.mgr. gr. 98 gr. felur í sér slíkt sér­á­kvæði enda er þar sér­stak­lega kveðið á um „heimil [sé] opin­ber birt­ing á þeim upp­lýs­ingum um álagða skatta sem fram koma í skatt­skrá svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða að hluta.“

Ákvæði loka­máls­liðar 2. mgr. 98 gr felur í sér sér­á­kvæði af því tagi sem vísað er til í 1. mgr, 5 gr. per­sónu­vernd­ar­laga enda til­greinar það sér­stak­lega að opin­ber birt­ing á upp­lýs­ingum um álagða skatta úr skatt­skrá sé heimil svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða hluta. Samkvæmt bréf­inu er þá eng­inn vafi á í því að umrætt ákvæði sé innan þess ramma sem reglu­gerð ESB setur enda er þar mælt sér­stak­lega fyrir um að aðild­ar­ríkin geti vikið frá reglu­gerð­inni meðal ann­ars í þágu tján­ing­ar­frelsis, fjöl­miðl­unar og reglna um aðgang almenn­ings að opin­berum gögnum eins og síðar verður rakið.

Lög nr. 90/2018 takmarka ekki aðgang á grundvelli lagaákvæða um upplýsingarétt almennings samkvæmt bréfinu

Í bréf­inu er einnig vísað til laga nr.90/2018 þar sem fram kemur að tak­marka eigi ekki aðgang á grund­velli laga­á­kvæða um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings, sbr. 2. mgr. 5.gr. laga nr.90/2018. Í athuga­semdum við ákvæðið í frum­varpi því er varð að lögum nr.90/2018 kemur fram að í ákvæð­inu sé fjallað um gild­is­svið lag­anna gagn­vart öðrum lögum. Bent er á að ákvæði frum­varps­ins séu víð­tæk og almenns eðlis í þeim skiln­ingi að þau taka til hvers kyns vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga hvar og hvernig sem hún fer fram, með þeim frá­vikum sem fram koma í frum­varp­inu. Af þeim sökum þykir rétt að taka fram að frum­varpið taki jafn­framt til með­ferðar og vinnslu slíkra upp­lýs­inga sem fram fer sam­kvæmt öðrum lögum nema þau lög til­greini annað sér­stak­lega. Þannig geti sér­á­kvæði ann­arra laga gengið framar þessum reglum á grund­velli almennra sjón­ar­miðu um „Lex specialis“. Þó sé tekið fram að sér­lög verði að vera innan þess ramma, sem reglu­gerð ESB setur, þ.e. að þau fari ekki gegn ákvæðum hennar.

Í bréf­inu er fjallað um það að í lýð­ræð­is­ríkjum er það yfir­leitt talið grund­vall­ar­for­senda fyrir því að efn­is­leg lýð­ræð­is­leg umræða geti átt sér stað um starf­semi stjórn­valda og gerð sam­fé­lags­ins að almenn­ingur eigi rétt til aðgangs að upp­lýs­ingum frá stjórn­völdum. Í reglu­gerð­inni er gengið út frá því að aðilda­ríkin geti dregið mörkin milli upp­lýs­inga­réttar almenn­ings og per­sónu­verndar með ólíkum hætti. Í ákvæði 86.gr., sbr og 15 lið aðfar­ar­orða er hins vegar lag til grund­vallar að ef gögn sem falla undir upp­lýs­ing­ar­ett almenn­ings hafa jafn­framt að geyma per­sónu­upp­lýs­ingar geti aðild­ar­ríki að ósekju veitt aðgang að slíkum upp­lýs­ingum, án þess að það fari í bága við ákvæði reglu­gerð­innar um per­sónu­vernd.

Skattsjóri hefur þegar birt skattskrá

Samkvæmt bréf­inu falla einnig ákvæði loka­máls­liðar 2. mgr. 98 gr. laga nr. 90/2003 undir þau sjón­ar­mið sem lýst var hér að ofan. Enda er þarna um að ræða sér­stakt ákvæði um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings sem gengur raunar lengri en ákvæði upp­lýs­inga­laga þar sem í 2.mgr. 90 gr. er mælt fyrir um skyldu rík­is­skatt­sjóra til að birta skatt­skrána að eigin frum­kvæði. Þessi skiln­ingur á ákvæð­inu hefur nýverið verið stað­festur af hálfu rík­is­skatt­stjóra sbr. frétt Morg­un­blaðs­ins frá 17. októ­ber sl. en þar er haft eftir rík­is­skatt­stjóra að sam­kvæmt ára­langri fram­kvæmd geti hver sem er fengið skatt­skrá allra Íslend­inga í heild afhenta frá rík­is­skatt­sjóra.

Við afmörkun á gild­is­sviði laga­á­kvæða um upp­lýs­inga­rétt gagn­vart reglum um per­sónu­vernd verður jafn­framt að hafa í huga að almennt er ekki hægt að líta svo á að upp­lýs­ingar sem gerðar hafa verið opin­berar með lög­mætum hætti séu upp­lýs­ingar um einka­mál­efni sem óheim­ild er að greina frá. Ótvírætt er og óum­deild að skatt­stjóri hafði þegar birt sksatt­skrá á starfs­stöð sinni. Því er heim­ild að birta upp­lýs­ing­arnar.

Upplýsingarnar eru unnar í þágu fjölmiðla

Visku­brunnur ehf. telur að sú birt­ing upp­lýs­inga sem fram fer á síð­unni tekjur.is sé ekki ein­ungis heimil á grund­velli þeira sjón­ar­miða koma fram í ákvæði laga nr.90 2003 eru sér­á­kvæði sem ganga framar ákvæðum per­sónu­vernd­ar­laga og lög nr. lög nr.90/2018 tak­marka ekki aðgang að grund­velli laga­á­kvæða um upp­lýs­inga­rétt almennigs, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr.90/2018. Heldur að birt­ingin sæki einnig stoð í 1. mgr.6gr. laga nr. 90/2018. Í því ákvæði er að finna sér­staka reglu um afmörkun á gild­is­sviði per­sónu­vernd­ar­laga gagn­vart tján­ingu sem stunduð er í þágu fjöl­miðl­unar, lista eða bók­mennta.

Í bréf­inu kemur fram að upp­lýs­ing­arnar sem birt­ast á tekjur.is gefa enn fremur heild­ræna mynd af tekju­skipt­ing­unni í sam­fé­lag­inu, ólíkri skatt­byrði launa- og fjár­mags­tekna sem jafnt fjöl­miðlar sem þáttak­endur í hinni sam­fé­lags­legu umræðu geta nýtt sér og vísað til

Í athuga­semdum við ákvæði 6.gr. í frum­varpi því er varð að lögum nr. 90/2018 en þar segir: „Með til­liti til mik­il­vægis rétt­ar­ins til tján­ing­ar­frelsis í hverju lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi sé nauð­syn­legt að túlka hug­tök vítt í tengslum við það frelsi svo sem frétta­mennsku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár