Lýsi boðið styrkur úr Tækniþróunarsjóði þrátt fyrir að fyrirtækið sé of stórt

Eitt þeirra fyr­ir­tækja sem var boð­inn styrkur í vorút­hlutun Tækni­þró­un­ar­sjóðs var Lýsi hf. Fyr­ir­tækið er of stórt miðað við úthlut­un­ar­reglur og ekki verður samið við það um styrk. Umsóknin hefði átt að falla á form­kröfum segir sér­fræð­ingur hjá Rannís.

Verkefni Lýsis hf. sem átti að styrkja ber heitið Lýsi og fríar fitusýrur gegn kórónaveirum og kvefi.
Verkefni Lýsis hf. sem átti að styrkja ber heitið Lýsi og fríar fitu­sýrur gegn kór­óna­veirum og kvefi. Mynd: Af Facebook síðu Lýsis

Í síð­ustu vorút­hlutun Tækni­þró­un­ar­sjóðs var fyr­ir­tæk­inu Lýsi hf. boðið að ganga til samn­inga um styrk úr sjóðnum þrátt fyrir að skil­greind stærð fyr­ir­tæk­is­ins sam­ræm­ist ekki úthlut­un­ar­reglum sjóðs­ins. Ekki verður samið við fyr­ir­tækið um styrk vegna þessa. Þetta stað­festir Lýður Skúli Erlends­son, sér­fræð­ingur á rann­sókna- og nýsköp­un­ar­sviði, en hann leiðir nýsköp­un­arteymi sviðs­ins.

„Það virð­ist sem þessi umsókn hafi farið athuga­semd­ar­laust í gegnum form­kröfu­skoðun inn­an­dyra hjá okkur og ekki hafi komið fram athuga­semdir í mats­ferl­inu. Ekki er búið að ganga til samn­inga um verk­efnið ennþá og því engin styrkupp­hæð sem liggur fyrir. Þegar kemur að samn­inga­fundum er farið dýpra í rekstur fyr­ir­tæk­is­ins sem samið er við ásamt því að verk­efnið er skoðað út frá verk-, tíma- og kostn­að­ar­á­ætlun. Eftir það er ákveðið hver styrkupp­hæð verður,“ segir Lýður í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans um styrk­veit­ing­una.

Að hans sögn eru allar líkur á að stærð fyr­ir­tæk­is­ins hefði komið upp við þá nán­ari grein­ingu sem unnin er áður en gengið er frá samn­ing um styrk. „Umsókn frá stóru fyr­ir­tæki á vissu­lega samt ekki að fara áfram í fullt mat og ætti að falla á form­kröfum,“ segir í svari Lýðs.

Fyrirtækið hvorki lítið né meðalstórt

Lýsi hf. hafði verið boðið að ganga til samn­inga um styrk úr Tækni­þró­un­ar­sjóði í flokknum Vöxtur vegna verk­efn­is­ins Lýsi og fríar fitu­sýrur gegn kór­óna­veirum og kvefi. Samkvæmt úthlut­un­ar­reglum Tækni­þró­un­ar­sjóðs er fyr­ir­tækja­styrkur í flokknum Vöxtur ætl­aður til að styrkja verk­efni sem komin eru af frum­stigi hug­myndar. Aðal­um­sækj­andi um slíkan styrk getur ein­göngu verið lítið eða með­al­stórt fyr­ir­tæki en ekki er gerð sam­bæri­leg krafa um stærð fyr­ir­tækis sem er með­um­sækj­andi um styrk.

Lýsi hf. fellur ekki undir þær skil­grein­ingar á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem Tækni­þró­un­ar­sjóður styður sig við. Í reglum sjóðs­ins er með­al­stórt fyr­ir­tæki skil­greint á eft­ir­far­andi hátt: „Fyr­ir­tæki sem er með á bil­inu 50-250 starfs­menn og er með árlega veltu undir 50 millj­ónum evra og/eða efna­hags­reikn­ing undir 43 millj­ónum evra sbr. I. við­auka reglu­gerðar fram­kvæmd­ar­stjórn­ar­innar (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014.“

Í árs­reikn­ingi Lýsis hf. fyrir árið 2019 sem birtur var í ágúst í fyrra kemur fram að rekstr­ar­tekjur hafi numið rúmum 10 millj­örðum króna á árinu 2019. Eignir félags­ins sam­kvæmt efna­hags­reikn­ingi námu tæpum 12 millj­örðum króna. Þessar tölur eru því vel yfir þeim við­miðum sem sett eru í reglum Tækni­þró­un­ar­sjóðs. Fjöldi starfs­manna félags­ins er engu að síður innan marka, fjöldi árs­verka hjá Lýsi var 189 á árinu 2019.

907 milljónir í vorúthlutun

Fram kemur á heima­síðu Rannís að alls hafi 73 verk­efnum verið boðið að ganga til samn­inga um nýja styrki úr Tækni­þró­un­ar­sjóði í vorút­hlutun sjóðs­ins. Alls bár­ust 459 umsóknir til sjóðs­ins og árang­urs­hlut­fall styrktra verk­efna því 16 pró­sent. „Í þess­ari úthlutun eru styrk­veit­ingar til nýrra verk­efna 907 millj­ónir króna á þessu ári en þar sem verk­efnin eru til allt að þriggja ára nemur heild­ar­kostn­aður vegna þeirra 1.775 millj­ónum króna,“ segir um vorút­hlut­un­ina á heima­síðu Rannís.

Vorút­hlut­unin í ár er stærsta ein­staka úthlutun Tækni­þró­un­ar­sjóðs frá upp­hafi en fjár­fram­lög til sjóðs­ins hafa hækkað. Und­an­farið hafa fjár­fram­lög til sjóðs­ins verið um 2,3 millj­arðar króna en fjár­veit­ingar til sjóðs­ins á árinu 2021 voru hækk­aðar í 3,6 millj­arða í sam­ræmi við stefnu Vísinda- og tækni­ráðs sem sam­þykkt var á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár