Einn lögregluþjónn leystur undan starfsskyldum vegna rannsóknar á handtöku

Einn lög­reglu­maður hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið leystur tíma­bundið undan starf­skyldum sínum, en hér­aðs­sak­sókn­ari rann­sakar nú fram­göngu lög­reglu við hand­töku í Hafn­ar­firði í upp­hafi viku.

Þessi mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Þessi mynd úr safni og teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur leyst einn starfs­mann tíma­bundið undan starfs­skyldum sínum, vegna rann­sóknar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á hand­töku manns í Hafn­ar­firði síð­asta mánu­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­reglu.

Fjallað var um hand­tök­una í Frétta­blað­inu í dag, en sjón­ar­vottar sem blaðið ræddi við sögðu lög­reglu hafa gengið allt of langt gagn­vart þeim hand­tekna, slegið hann með kylfu í höf­uðið og haldið áfram að láta högg dynja á honum eftir að hann virt­ist hafa misst með­vit­und.

Í frétt blaðs­ins sagði að til átaka hefði komið á milli þess hand­tekna og lög­reglu­mann­anna eftir að lög­regla braut rúðu í bíl hans. Þá sagði blaðið frá því að einn lög­reglu­maður hefði beitt piparúða, annar fengið efnið í augum og þá farið að sveifla kylfu sinni ítrekað í höfuð manns­ins sem var hand­tek­inn.

Sá hand­tekni var stöðv­aður vegna gruns um vörslu fíkni­efna og sagði lög­reglu­mönnum þá að hann væri með COVID-19. Kallaður var út sér­stakur COVID-við­bragðs­bíll lög­reglu til að sinna mál­inu og voru alls fjórir lög­reglu­þjónar sem tóku þátt í aðgerð­inni.

Upptökur úr búkmyndavélum til skoðunar

Fram kom í frétt Frétta­blaðs­ins að nefnd um eft­ir­lit með störfum lög­reglu hefði verið gert við­vart um málið. Lög­reglan greindi svo frá því í til­kynn­ingu í morgun að mál­inu hefði þegar verið vísað til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og að á meðal máls­gagna væru upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna á vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár