Ekkert nema stjórnarkreppa í kortunum

Kannanir á fylgi stjórn­mála­flokka sýna sam­fé­lags­mynd af þjóð sem virð­ist mjög ósam­mála um í hvaða átt Ísland eigi að fara. Afleið­ingin er að stjórn­ar­myndum, ef kosið yrði í dag, yrði afar flókin, ef ekki ómögu­leg.

Ef kosið yrði í dag myndu sömu átta flokkar og náðu inn á þing í kosningunum 2017 komast þangað aftur.
Ef kosið yrði í dag myndu sömu átta flokkar og náðu inn á þing í kosn­ing­unum 2017 kom­ast þangað aftur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað meira fylgi en nokkur annar flokkur á kjör­tíma­bil­inu og það fylgi virð­ist að uppi­stöðu hafa færst yfir til Mið­flokks­ins. Rík­is­stjórnin virð­ist ekki eiga nokkra raun­hæfa mögu­leika á því að fá end­ur­nýjað umboð en helstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir eru líka ansi langt frá því að vera í stöðu til að mynda nýja rík­is­stjórn. Við blasir að flokkar á þingi verði áfram að minnsta kosti átta og að það muni þurfa fjóra flokka að lág­marki til að mynda rík­is­stjórn sem hefði meiri­hluta kjós­enda á bak­við sig.

Það virð­ist vera að ef kosið yrði í dag kæmi ein flókn­asta stjórn­ar­kreppa sem nokkru sinni hefur opin­ber­ast upp úr kjör­köss­unum, miðað við kosn­inga­ætlan lands­manna í síð­ustu könnun MMR.

Sigurvegararnir og tapararnir

Sá flokkur sem hefur bætt við sig lang­mestu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum er Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Hann hefur nú 5,9 pró­sentu­stigum meira fylgi en hann fékk síð­ast þegar talið var upp úr kjör­köss­unum. Fylgið hefur því auk­ist um 54 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu.

Viðreisn hefur líka bætt við sig fylgi á síð­ustu tveimur árum og mælist nú með 9,7 pró­sent stuðn­ing, sem er þremur pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017. Það er 45 pró­sent fylg­is­aukn­ing.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alls tapað 7,1 pró­sentu­stigi af fylgi á þeim rúmu tveimur árum sem liðin eru frá síð­ustu þing­kosn­ingum. Enginn einn flokkur hefur tapað meiru fylgi á þeim tíma.

Vinstri græn fylgja þó fast á hæla sam­starfs­flokks síns með 6,3 pró­sentu­stiga fylgis­tap frá því í októ­ber 2017.

Miðjumoðið

Sam­fylk­ingin hefur bætt aðeins við sig á kjör­tíma­bil­inu þótt sú fylg­is­aukn­ing sveiflist veru­lega í könn­unum MMR. Nú mælist fylgi hennar 13,2 pró­sent sem er 1,1 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk 2017.

Píratar hafa sömu­leiðis bætt lít­il­lega við sig, eða 1,6 pró­sentu­stigi, frá síð­ustu kosn­ingum en virð­ast frekar staðn­aðir í kringum tíu pró­sent markið. Fylgi flokks­ins mælist nú 10,8 pró­sent.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er líka í ákveðnum hjól­förum og hefur tapað alls 1,3 pró­sentu­stigum af fylgi á síð­ustu rúmu tveimur árum. Alls segj­ast 9,4 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Framsókn líður þó stjórn­ar­flokka minnst fyrir þátt­töku sína í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

Flokkur fólks­ins mælist svo með 6,3 pró­sent fylgi sem er mjög svipað og flokk­ur­inn hennar Ingu Sæland fékk 2017 þegar 6,9 pró­sent atkvæða féllu honum í skaut.

Hin áhugaverðu mynstur

Það virð­ist blasa við að beint sam­hengi er á milli auk­ins fylgis Mið­flokks­ins og fylg­is­hraps Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þ.e. Mið­flokk­ur­inn virð­ist hafa tekið til sín þorra þeirra 7,1 pró­sentu­stiga sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað, eða 83 pró­sent þess fylgis.

Því virð­ist nokkuð ljóst að flokk­arnir tveir höfði, að minnsta kosti að hluta, til sam­bæri­lega hópa sem aðhyll­ast íhalds­sama og þjóð­ern­is­lega stefnu. Athygli vekur þó að sam­eig­in­legt fylgi Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú, 34,9 pró­sent, er minna en sam­eig­in­legt fylgi þeirra var í kosn­ing­unum 2017, þegar þeir fengu sam­tals 36,1 pró­sent.

Sam­eig­in­legt fylgi þeirra tveggja er þó meira en sam­eig­in­legt fylgi þeirra flokka stjórn­ar­and­stöð­unnar sem skil­greina sig sem frjáls­lynda umbóta­flokka: Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar. Þeir þrír flokkar myndu ná til 33,7 pró­sent kjós­enda ef kosið yrði í dag. Það er meira en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum en minna en þeir hafa oft áður mælst með á þessu kjör­tíma­bili.

Erfitt að sjá ríkisstjórn í kortunum

Ljóst er að sitj­andi rík­is­stjórn mun eiga afar erfitt með að fá end­ur­nýjað umboð að óbreyttu. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna þriggja sem hana mynda er í lægstu lægðum um þessar mundir. Þeir njóta ein­ungis stuðn­ings 38,1 pró­sent kjós­enda. Það þýðir að rúm­lega fjórði hver kjós­andi hefur yfir­gefið þá.

[adspot]Í ljósi þess að allir aðrir stjórn­mála­flokkar hafa lýst því yfir, annað hvort í einka­sam­tölum eða opin­ber­lega, að þeir muni ekki starfa með Mið­flokknum í rík­is­stjórn þá er ljóst að það verður væg­ast sagt flókið að óbreyttu að mynda ein­hvers­konar meiri­hluta­stjórn, ef þær yfir­lýs­ingar eiga að halda. Frjáls­lynda miðju­blokk­inn, sem virð­ist telja þörf á rík­is­stjórn án bæði Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks, þyrfti til að mynda á bæði Vinstri grænum og Framsókn að halda til að mynda fimm flokka meiri­hluta­stjórn.

Ef litið er fram­hjá öllum póli­tískum ómögu­leika, og tekið til­lit til þeirra atkvæða sem myndu falla niður dauð, væri lík­ast til hægt að mynda eina þriggja flokka rík­is­stjórn með mjög tæpan meiri­hluta þing­manna úr stöð­unni eins og hún er í dag. Sú rík­is­stjórn myndi njóta stuðn­ings minni­hluta lands­manna, 48,1 pró­sent þeirra, og inni­halda þrjá stærstu flokk­anna: Sjálf­stæð­is­flokk, Miðflokk og Sam­fylk­ingu.

Ef rík­is­stjórn ætl­aði að byggja á því að meiri­hluti kjós­enda væri á bak­við hana þyrfti hún alltaf að inni­halda að minnsta kosti fjóra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár