Eyðslumet verður sett í Englandi...og verðmiðarnir eiga bara eftir að hækka

Ensku úrvalds­deild­ar­fé­lögin hafa eytt um 1.100 millj­ónum punda í leik­menn og hafa enn tvær vikur til að bæta við. Fjögur lið hafa eytt yfir 130 millj­ónum punda og tíu lið hafa bætt eyðslu­met sitt. Ekkert bendir til þess að bólan sé að springa.

Ensku úrvalds­deild­ar­fé­lögin hafa eytt um 1.100 millj­ónum punda í leik­menn og hafa enn tvær vikur til að bæta við. Fjögur lið hafa eytt yfir 130 millj­ónum punda og tíu lið hafa bætt eyðslu­met sitt. Ekkert bendir til þess að bólan sé að springa.

Félögin í efstu deild í Englandi hafa þegar eytt tæp­lega 1.100 millj­ónum punda, um 150 millj­örðum króna, í nýja leik­menn í yfir­stand­andi félaga­skipta­glugga. Það þýðir að þau hafa nú þegar eytt nán­ast jafn miklu og félögin gerðu í sum­ar­glugg­anum 2016, þegar heildar­eyðslan fór í fyrsta sinn yfir millj­arð pund og end­aði í 1.194 millj­ónum punda. Og það eru enn tæpar tvær vikur eftir þar til glugg­inn lokar.

Á þessum tíma í fyrra voru félögin ekki búin að eyða nærri því svona hárri fjár­hæð. Þekkt er að mestum fjár­hæðum er iðu­lega eytt á enda­sprett­in­um, rétt áður en glugg­anum er lok­að. Sumarið 2015 var til að mynda fimmt­ungur allra kaup­verða greiddur út í síð­ustu vik­unni. Það breytt­ist lítið í fyrra.

Stór við­skipti eins og kaup PSG á Neymar fyrir 200 millj­ónir punda, eða kaup Everton á Gylfa Sig­urðs­syni fyrir alls um 45 millj­ónir punda, hrinda vana­lega af stað keðju­verkun. Barcelona þarf að kaupa leik­menn í stað Neymars og ef þeir ná í Philippe Couinho frá Liverpool þarf Liverpool að kaupa sterkan leik­mann í hans stað. Swansea þarf að gera slíkt hið sama til að fylla skarð Gylfa. Og svo koll af kolli. Við slíkar aðstæður, og þegar nær dregur enda glugg­ans, hefur verð­mið­inn á leik­mönnum, sem þegar er orð­inn klikk­aður í sumar, til­hneig­ingu til að hækka enn frekar.

Það blasir því við að nýtt eyðslu­met verður sett þetta sum­arið.

Eyða margfalt meira en fyrir ára­tug

Mikil verð­bólga hefur verið í eyðslu lið­anna í ensku úrvals­deild­inni á und­an­förnum árum. Fyrir ára­tug eyddu þau til að mynda sam­tals 260 millj­ónum punda í nýja leik­menn í sum­ar­glugg­an­um. Nú stefnir í að eyðslan verði fjórum sinnum meiri og þetta sumar er það fimmta í röð sem nýtt eyðslu­met er sett.

Alls hafa tíu félög í ensku úrvals­deild­inni bætt eyðslu­metið sitt í sumar:

  • Chelsea borg­aði 58 millj­ónir punda fyrir Álvaro Morata
  • Arsenal, borg­aði 52 millj­ónir punda fyrir Alex­andre Lacazette
  • Everton,borg­aði 45 millj­ónir punda fyrir Gylfi Sig­urds­son
  • Liverpool borg­aði 39 millj­ónir punda fyrir Mohamed Salah
  • West Ham borg­aði 24 millj­ónir punda fyrir Marko Arnautovic
  • Bournemouth borg­aði 19,4 millj­ónir punda fyrir Nathan Aké
  • Watford, borg­aði 18,5 millj­ónir punda fyrir Andre Gray
  • Southampton, borg­aði 18 millj­ónir punda fyrir Mario Lemina
  • Brighton, borg­aði 11,7 millj­ónir punda fyrir Davy Pröpper
  • Hudd­ers­fi­eld, borg­aði 11 millj­ónir punda fyrir Steve Mounié

Dýrasti leik­mað­ur­inn sem enskt lið hefur hins vegar keypt er Romelu Lukaku, sem fór frá Everton til Manchester United fyrir 75 millj­ónir punda. Sá verð­miði gæti reyndar hækkað um 20 millj­ónir punda ef vel gengur hjá Lukaku og Manchester United á næstu árum.

Það lið sem hefur eytt lang­mestum pen­ingum er Manchester City. Þeir hafa keypt leik­menn fyrir 220 millj­ónir punda, mest­megnis bak­verði. Samtals hefur Pep Guardi­ola eytt yfir 400 millj­ónum punda í nýja leik­menn frá því að hann tók við stjórn­ar­taumunum hjá lið­unum fyrir rúmu ári siðan. Þrjú önnur lið hafa eytt vel yfir 100 millj­ónum punda í leik­menn það sem af er sumri. Það kemur kannski ekki á óvart að tvö þeirra eru Manchester United og Chelsea, en óvenju­legra er að Everton, sem er frekar þekkt fyrir að eyða nán­ast engum pen­ingi nettó, hefur keypt leik­menn fyrir 133 millj­ónir punda. Reyndar verður að fylgja sög­unni að liðið hefur líka selt leik­menn fyrir nálægt 100 millj­ónum punda og á enn eftir að selja nokkra leik­menn til við­bótar.

Og vert er að benda á að liðin í efstu deild hafa aldrei fengið jafn mikið fé fyrir leik­menn sem hafa verið seldir eins og í yfir­stand­andi glugga, eða um 525 millj­ónir punda. Nettó eyðslan er því rúm­lega 500 millj­ónir punda eins og stendur.

Risa­vaxnir sjón­varps­samn­ingar

Ástæðan fyrir þess­ari miklu eyðslu er aug­ljós. Það eru rosa­legir fjár­hags­legir hags­munir undir í því að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu í Englandi og fyrir betri liðin aukast þeir hags­munir eftir því sem þau lenda ofar á töfl­unni í lok tíma­bils.

Ástæða ástæð­unnar er umfang ­sjón­varps­rétt­­ar­­samn­ing, sem hefur auk­ist gríð­­ar­­lega sam­hliða aukn­um vin­­sældum ensku úrvals­­deild­­ar­innar og fleiri kepp­­ast nú um að kom­­ast yfir­ rétt­inn en áður. Í byrjun árs 2015 var gerður nýr samn­ingur sem er að mörg­um talin nærri gal­in. Þá var rétt­­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­­arða punda. Það þýðir að Sky Sports og BT Sport, sem keyptu rétt­inn, borga ­meira en tíu milljón pund fyrir hvern leik sem stöðv­­­arnar sýna.

Til sam­an­­burðar má ­nefna að samn­ing­­ur­inn sem var í gildi fyrir árin 2013 til 2016 kost­aði um þrjá millj­­arða punda. Og þegar úrvals­­deildin var sett á fót árið 1992 var ­sjón­varps­rétt­­ur­inn seldur til sex ára fyrir 191 milljón punda. Til að setj­a þann vöxt á sölu­­tekjum sjón­varps­réttar í sam­hengi þá fengu liðin í deild­inn­i ­sam­tals 32 millj­­ónir punda á með­­al­tali á árið á tíma­bil­inu 1992 til 1997. Á ár­unum 2016 til 2019 fá þau um 1,3 millj­­arða punda til skipt­anna.

Til við­­bótar segja enskir fjöl­miðlar að salan á alþjóð­­legum sýn­ing­­ar­rétti á enska bolt­­anum skili ensku úrvals­­deild­inni þremur millj­­örðum punda á samn­ings­­tím­an­­um. Sam­tals verður rétt­­ur­inn því seldur fyrir um eitt þús­und og fjögur hund­ruð millj­­arða ­ís­­lenskra króna. Eina íþrótta­­deildin í heim­inum sem þénar meira vegna seldra ­sjón­varps­rétta er banda­ríska NFL-­­deild­in.

Nú standa yfir við­ræður um samn­ing sem tekur gildi eftir 2019. Og sam­kvæmt fréttum breskra miðla verður hann enn hærri. Það er því ekk­ert sem bendir til þess að tími gölnu kaupanna sé að renna sitt skeið. Þvert á móti er við­búið að verð­mið­arnir muni hækka enn frekar á næstu árum.

Keðju­verkun

Enska úrvals­deildin er alveg sér á báti þegar kemur að vin­sældum og pen­inga­flæði. Þetta vita önnur lið í öðrum deild­um, hvort sem um er að ræða neðri deild­irnar í Englandi eða aðrar deild­ar­keppnir í heim­in­um.

Það eru því í gangi tvenns konar verðstrúkt­úrar á félaga­skipta­mark­aðn­um, sá sem gildir fyrir ensku félögin og felur í sér mun hærra verð, og sá sem gildir fyrir hina. Í praktík virkar þetta þannig að ef enskt félag setur inn til­boð í leik­mann hækkar verðið ósjálfrátt, vegna þess að selj­enda­fé­lagið vita að öll ensku úrvals­deild­ar­fé­lögin eiga ótrú­legt magn af pen­ing­um. Af öllum þessum inn­kaupum verður síðan keðju­verk­un, þar sem kaup­verðin sem minni lið inn­heimta nýt­ast þeim í að styrkja sig. Því má segja að hinn mikli auður ensku úrvals­deild­ar­innar sé orð­inn helsti drif­kraft­ur­inn í við­skipta­hlið nútímaknatt­spyrn­unn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár