Reykingar kosta þjóðarbúið allt að 86 milljarða á ári

Fyrstu nið­ur­stöður úr skýrslu um þjóð­hags­legan kostnað reyk­inga benda til þess að Íslend­ingar verði af tölu­verðum verð­mætum vegna reyk­inga. Ef skert lífs­gæði reyk­inga­manna eru vegin með gæti kostn­að­ur­inn rúm­lega fjór­fald­ast.

Þróun sígar­ett­ureyk­inga á Íslandi hefur verið með ólík­indum síð­ustu þrjá ára­tugi. Hlutfall þeirra sem reykja dag­lega hefur lækkað um tvo þriðju á tíma­bil­inu 1989-2015. Árið 2015 var hlut­fall reyk­inga­manna svo 12 pró­sent, en það er með því lægsta sem þekk­ist í Evrópu. Lækkunin hefur verið tölu­vert hrað­ari en hjá OECD-lönd­unum að með­al­tali, þótt hún hafi verið nokkuð hröð þar líka.

Hlutfall daglegra reykingamanna á Íslandi og í löndum OECD

Þrátt fyrir þessa miklu lækkun lítur út fyrir að kostn­aður þjóð­fé­lags­ins af reyk­ingum sé enn mjög hár. Á mál­þingi um tóbaks­varnir sem fór fram síð­ast­lið­inn þriðju­dag voru birtar fyrstu nið­ur­stöður úr skýrslu Hag­fræði­stofn­unnar um þjóð­hags­legan kostnað reyk­inga. Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að þótt hlut­fall reyk­inga­manna sé lágt á Íslandi þá kost­aði það hvern íbúa tugi til hund­ruð þús­unda króna á ári. En hvernig er slíkur kostn­aður met­inn?

Brennir peninga

Þegar meta á þjóð­hags­legan kostnað er oft vísað til hug­taks innan hag­fræð­innar sem kallað er nei­kvæð ytri áhrif, en það er sá kostn­aður sem utan­að­kom­andi aðilar verða fyrir. Sem dæmi um nei­kvæð ytri áhrif er mengun kís­il­verk­smiðju sem spillir loft­gæði íbúa í nágrenni þeirra. Sömu­leiðis má segja að mengun stafi líka af sígar­ettum.

Í fyrsta lagi eru það óbeinar reyk­ingar, en sam­kvæmt Hag­fræði­stofnun lét­ust 15 Íslend­ingar af völdum þeirra árið 2015. Sam­fé­lags­legt tjón þess­ara dauðs­falla var metið á tæpa þrjá millj­arða.

[links]Í öðru lagi leiða reyk­ingar til auk­innar skatt­byrði vegna heil­brigðis­út­gjalda. Reyk­inga­menn þurfa oftar á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda og þar sem heil­brigð­is­kerfið er rík­is­rekið þurfa allir skatt­greið­endur að gjalda fyrir það. Útgjöld heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna reyk­inga voru sam­tals metin á um það bil níu millj­arða.

Í þriðja lagi þarf vinnu­mark­að­ur­inn að gjalda þess að fram­leiðni reyk­inga­manna sé minni. Hag­fræði­stofnun bendir á að ef gert er ráð fyrir því að reyk­inga­menn taki sér 15 mín­útur á dag í reyk­inga­hlé, þá verði sam­fé­lagið af veru­legu fram­leiðslutapi. Þar að auki verða reyk­inga­menn oftar veik­ari og taka að með­al­tali 30 pró­sent fleiri veik­inda­daga en aðrir. Sam­an­lagt fram­leiðslutap reyk­inga­manna vegna reyk­ingapása og veik­inda­daga var metið á 5,8 millj­arða króna.

Við þetta bæt­ast tveir minni kostn­að­ar­liðir við, útgjöld til for­varn­ar­starfa og tjón af elds­voðum sem rekja má til með­ferðar á sígar­ettum. Þessir liðir ná saman upp í rúmar 100 millj­ónir og hafa því ekki telj­an­leg áhrif á heild­ar­kostnað.

Ef þessir kostn­að­ar­liðir eru lagðir saman fæst sú nið­ur­staða að öll nei­kvæðu ytri áhrifin vegna reyk­inga árið 2015 hefðu kostað Íslend­inga 17,1 millj­arð króna. Það gerir rúmar 50.000 krónur á hvern íbúa. Til að setja þennan kostnað í sam­hengi þá var kostn­aður við bygg­ingu Hörpu um 21 millj­arður króna. Því er ljóst að þjóð­fé­lagið verður af veru­legum tekjum vegna ytri áhrifa sígar­ett­ureyk­inga.

Kostn­að­ar­liður Upphæð í millj ISK
Sjúkra­flutn­ingar 17
Eignatap vegna elds­voða 25
Tóbaks­varnir 120
Önnur heil­brigð­is­þjón­usta 251
Hjúkr­un­ar­heim­ili 1.278
Lyfja­notkun 1.600
Veik­inda­dagar 2.160
Óbeinar reyk­ingar 2.925
Reyk­ingapásur 3.680
Sjúkra­hús­vist 5.036

Skaðsemi reykingamanna

Það er gömul saga og ný að reyk­ingar séu skað­leg hegðun. Land­lækn­is­emb­ætti Banda­ríkj­anna full­yrðir að finna megi beint orsaka­sam­band milli reyk­inga og 19 sjúk­dóma­flokka, þá helst lungna­krabba­meins, kransæða­sjúk­dóma og lang­vinnri lungna­teppu. Jafnvel þótt hlut­fall reyk­inga­manna á Íslandi hafi verið með því lægsta í Evrópu árið 2015 áætl­aði Hag­fræði­stofnun að á sama ári höfðu 355 reyk­inga­menn lát­ist og 54 orðið öryrkjar vegna þeirra.

Hvort taka eigi skert lífs­gæði reyk­inga­mann­anna sjálfra með í reikn­ing­inn þegar meta á þjóð­hags­legan kostnað reyk­inga er umdeilt mál. Venju­lega er ekki gert ráð fyrir því að ein­stak­lingar myndu vís­vit­andi velja að skerða lífs­gæði sín með því að reykja ef þeir fengju ekki jafn­mikla ánægju af því. Hins vegar ánetj­ast margir tóbaki þegar þeir eru ungir og ekki full­kom­lega með­vit­aðir um skað­semi þess.

Ef gert er ráð fyrir því að eng­inn reyk­inga­maður hafi búist við skertum lífs­gæðum þegar þeir byrj­uðu að reykja, þá bæt­ist við það tap sem þeir verða fyrir vegna dauða og örorku. Sam­an­lagt var það tap metið á 68,8 millj­arða árið 2015.

Samkvæmt nið­ur­stöðum Hag­fræði­stofn­unnar gæti þjóð­hags­legur kostn­aður reyk­inga árið 2015 því legið á breiðu bili. Að minnsta kosti var hann 17,8 millj­arðar en gæti auk­ist alveg upp í 85,8 millj­arða með breyttum for­sendum. Með öðrum orðum kost­uðu þær þjóð­ar­búið á bil­inu 0,8-3,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu eftir því hversu mikið til­lit er tekið til tap­aðra lífs­gæða reyk­inga­mann­anna sjálfra.

Það yrði for­vitni­legt að sjá hvort meira yrði gert í for­varn­ar­málum ef allir vissu af efna­hags­lega ábat­anum af því. Í nýjasta frétta­bréfi land­læknis komu fram þær upp­lýs­ingar að hlut­fall þeirra sem reykja dag­lega hefði lækkað enn frekar árið 2016 og er þess vænst að hlut­fallið muni halda áfram að minnka. Með minnk­andi hlut­falli mun þjóð­hags­legur kostn­aður reyk­inga sömu­leiðis minnka. Það ætti að vera fagn­að­ar­efni, ekki aðeins vegna bættrar lýð­heilsu heldur líka vegna jákvæðra efna­hags­legra áhrifa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár