Af leigumarkaðnum í foreldrahús

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun segir það ljóst að unga fólkið hefur í auknum mæli verið að flytj­ast af leigu­mark­aði og aftur í for­eldra­hús. Vís­bend­ingar eru um að erf­ið­ara sé að verða sér úti um leigu­hús­næði en áður.

Hlutfall íbúa sem eru á leigu­mark­aðnum hefur minnkað tölu­vert frá árinu 2019, sér­stak­lega hjá yngstu ald­urs­hóp­unum. Sömu­leiðis kjósa mun fleiri á aldr­inum 18-24 ára að búa í for­eldra­húsum en þeir gerðu fyrir tveimur árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um stöð­una á leigu­mark­aði.

Samkvæmt könn­un­inni hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft mikil áhrif á leigu­mark­að­inn, en hlut­fall leigj­enda hefur minnkað um rúman fjórð­ung – úr 18 pró­sentum í 13 pró­sent – frá árinu 2019. Stofn­unin segir að skýr­ing­una fyrir þessum svipt­ingum megi lík­lega rekja til þess að leigj­endur fóru af leigu­mark­aði og annað hvort í eigið hús­næði eða annað, svo sem í for­eldra­hús.

Ef þróun búsetu er skoðuð eftir ald­urs­hópum sést að ungu fólki hefur fækkað mest á leigu­mark­aðnum. Alls eru leigj­endur á aldr­inum 18-24 ára rúm­lega 15 pró­sentum færri en þeir voru fyrir tveimur árum síðan, en sam­svar­andi fækkun leigj­enda á aldr­inum 25-34 ára nam 5 pró­sentum. Litlar breyt­ingar eru aftur á móti í búsetutil­högun þeirra sem eru eldri en 34 ára.

Á meðan ungum leigj­endum hefur fækkað hefur þeim fjölgað tölu­vert sem búa í for­eldra­húsum, en hlut­fall ung­menna undir 25 ára aldri sem kjósa það hefur auk­ist um tæp 16 pró­sent á síð­ustu tveimur árum.

Erfiðara að verða sér úti um húsnæði

Þrátt fyrir þessa mikla fækkun hefur þeim fjölgað sem vilja frekar búa í leigu­hús­næði, en sam­kvæmt könn­un­inni myndu um 12 pró­sent hús­næð­is­mark­að­ar­ins nú frekar leigja heldur en kaupa ef nægi­legt fram­boð væri af öruggu hús­næði. Sam­svar­andi hlut­fall þeirra sem vilja leigja nam 9 pró­sentum í fyrra og 10 pró­sentum árið 2019.

Á sama sögð­ust fleiri leigj­endur hafa átt erfitt með að verða sér úti um núver­andi hús­næði í ár heldur en í fyrra, sam­kvæmt könn­un­inni. HMS segir þessa þróun vera vís­bend­ingu um að fram­boð af leigu­hús­næði sé að minnka eftir að hafa auk­ist mjög í kjöl­far far­ald­urs­ins.

Samkvæmt stofn­un­inni má leiða að því líkur að stór hluti af þeim leigu­í­búðum sem losn­aði vegna sam­dráttar í Airbnb úteigu hafi farið í sölu­ferli sökum ört hækk­andi hús­næð­is­verðs. „Jafn­framt hefur verið mik­ill aðflutn­ingur fólks til Íslands sem eykur spurn eftir hús­næði og að öllum lík­indum sér í lagi leigu­hús­næði.Jafn­framt hefur verið mik­ill aðflutn­ingur fólks til Íslands sem eykur spurn eftir hús­næði og að öllum lík­indum sér í lagi leigu­hús­næði,“ segir HMS einnig í frétta­til­kynn­ingu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár