Mín skoðun er sú að byggðastefna á Íslandi sem lítur að landsbyggðunum er veik. Það er enginn kraftur í henni og þetta eru allt of mikil plástravinna í stað alvöru breytinga. Hin raunverulega byggðastefna gengur vel og til marks um það búa um 80% íbúa landsins á höfuðborgarsvæðinu og í klukkutíma keyrslu frá henni.
Í dag virðist mér að allt of margir telji að það sé náttúrulögmál að fólk flytji suður. Vegna þessa er í raun engin raunverulegur kraftur í því að byggja upp landsbyggðina og þá innviði sem þarf til svo fólk geti búið þar áfram og nýtt fólk flutt á svæðið. Ef eitthvað er byggt upp tengist það oft og iðulega uppbyggingu í stóriðju og því ekki skrítið að margir séu opnir fyrir slíkum framkvæmdum þó þeir sé umhugað um umhverfið.
Það er frábært að búa út á landi þegar allt er í lagi en ekki þegar eitthvað kemur upp á eins og við sáum vel í óveðrinu sem gekk yfir fyrir skemmstu þá hrundu niður mikilvægir innviðir. Þetta sjáum við líka þegar fólk út á landi glímir við langvinn veikindi þá getur kostnaður fjölskyldna hlaupið á milljónum við að sækja þá þjónustu suður. Vegna kostnaðar gefst fólk upp og færir sig nær þjónustunni sem hefur markvisst verið skorin niður og flutt suður.
[adspot]Ég get ekki séð annað en að ákvarðanir um byggðamál séu teknar af fólki í ráðuneytum og ríkisstofnunum sem allt býr á höfuðborgarsvæðinu og skilur ekki hvernig er að búa út á landi, áttar sig ekki á vandamálum og tækifærum sem þar eru. Þetta er ekki vont fólk en það finnur ekki á eigin skinni hvað aðstöðu- og þjónustuleysið er slæmt. Þetta fólk heyrir af vandamálum landsbyggðarinnar en þær fáu raddir sem það heyrir drukkna í daglegum samræðum þeirra við fólk á sínu heimasvæði.
Það þýðir ekkert að byggja upp innviði út á landi á þeim hraða sem það er gert í dag, það þarf massífa innspýtingu fjárfestinga og alvöru plan fyrir kjarnasvæði hvers fjórðungs ef það er ætlun okkar að halda þeim almennilega í byggð. Meðan þetta áhugaleysi viðgengst eykst bilið milli landsbyggðar og höfuðborgar sem er slæmt fyrir alla, við horfum á höfuðborgina og svæðið næst henni þenjast út sem skapar allskonar vandamál m.a. á húsnæðismarkaði og í samgöngum meðan á landsbyggðunum ríkir svo gott sem stöðnun í nýbyggingu.
Á þessu er ein undantekning og það er Akureyri. Þar hefur tekist að byggja upp bæ með þjónustu, afþreyingu og aðstöðu sem gerir Akureyri og nágrenni á áhugaverðum stað til búsetu. Akureyri er í raun skólabókardæmi um það sem þarf að gerast á Vestfjörðum og Austurlandi.
Það verða að vera sterk kjarnasvæði í hverjum fjórðungi sem eru samkeppnishæf um fólk og fyrirtæki, fjölmennari kjarnasvæði sem næra nærliggjandi byggðir. Það þarf því að fjárfesta í þessum kjarnasvæðum og þannig breyta aðstæðum svo þau megi vaxa og dafna. Við erum að tala um göng, vegi og bætt net- og raforkukerfi ásamt niðurgreiðslu á innanlandsflugi sem strax gerir aðgengi að sameiginlegri þjónustu í höfuðborginni betra. Þetta mun valda því að hingað mun flytja fleira fólk sem fjölgar þeim sem krefjast betri þjónustu og aðstöðu.
Síðustu 30-40 ár hefur fólki, þjónustu og aðstöðu verið stefnt suður. Fjöldi fólks á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni segir allt sem segja þarf. Ójafnvægið er orðið algjört. Eins og við vorum minnt á í síðasta óveðri er íslensk náttúra ekkert lamb að leika sér við, en þetta hefði getað verið mikið verra, við hefðum getað verið að tala um vont veður, eldgos og jarðskjálfta á höfuðborgarsvæðinu. Ég veit að það er frekar ólíklegt að þetta gerist allt á sama tíma, en ef þetta gerist og það þarf að flytja heila borg, hvert á hún þá að fara?
Höfundur er íbúi á Egilsstöðum, Austurlandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir