„Enginn, sama hvernig hann klæðir sig eða hegðar ber ábyrgð á ofbeldi sem hann verður fyrir“

Boða til Druslu­göngu þann 25. júlí og stefna að met­þátt­töku

Á strætó­skýlum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins má í dag finna „druslur“ á öllum aldri í til­efni Druslu­göng­unnar 2015 sem haldin verður þann 25. júlí. Með þessu vilja skipu­leggj­endur Druslu­göng­unnar hvetja fólk til að mæta í göng­una, sýna í verki sam­stöðu með þolendum kyn­ferð­is­of­beldis og taka afstöðu gegn slíkum glæpum.

„Þess vegna eru allir þeir sem leggja mál­efn­inu lið druslur. Því eng­inn, sama hvernig hann klæðir sig eða hegðar ber ábyrgð á ofbeldi sem hann verður fyrir. Við eigum okkur sjálf og erum að taka orðið úr höndum þeirra sem nota það til að orsaka skömm og van­líðan,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá skipu­leggj­endum Druslu­göng­unnar í dag. Meira en 3 þús­und manns hafa boðað komu sína í göng­una á Facebook og von­ast skipu­leggj­endur eftir 20 þús­und manns. Til­gangur göng­unnar er, eins og áður, að færa ábyrgð kyn­ferð­is­glæpa af þolendur og yfir á ger­endur og ítreka að klæðn­aður, hegðun eða fas þolenda er aldrei afsökun fyrir kyn­ferð­is­brotum.

Þjóð­þekktir ein­stak­lingar í bland við fólk sem brennur fyrir mál­staðnum birt­ast á strætó­skýl­unum sem og á plakötum um allt höf­uð­borg­ar­svæðið með áletr­inu „ég er drusla“. Á strætó­skýlum í dag má sjá Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra, Möggu Stínu, tón­list­ar­konu og Hilmar Hild­ar­son Magn­ús­ar­son, for­mann Sam­tak­ana 78, Pétur Kiernan, femínista og Öldu Villi­ljós, lista­mann. Hér má sjá öll plakötin. 

„Druslu­gangan hefur fest rætur sínar sem árviss við­burður í Reykja­vík og verið í for­ystu í bar­átt­unni fyrir breyttu hug­ar­fari og orð­ræðu um kyn­ferð­is­of­beldi. Druslu­gangan hefur dregið fram í dags­ljósið það sem okkur sem sam­fé­lagi dylst allt of oft eða þorum ekki að horfast í augu við. Fjöldi fólks hefur skilað skömminni í aðdrag­anda göng­unar og í kjöl­far hennar, deilt sögum sínum og orðið öðrum inn­blástur. Með því að vera mót­tæki­leg fyrir því að heyra þessar sögur, með því að mæta í göng­una og senda þar með skila­boð um sam­stöðu með þolendum kyn­ferð­is­of­beldis byggjum við betra sam­fé­lag,“ segir í frétta­til­kynn­ingu um við­burð­inn.

„Orkan í göng­unni er ein­sök og stemn­ingin ein­kenn­ist af sam­stöðu, gleði, bar­áttu­anda og vilja til að breyta sam­fé­lag­inu til hins betra. Gangan og ræð­urnar eru oft átak­an­legar en and­rúms­loftið sem mynd­ast er ein­stakt og lætur engan ósnort­inn. Ár hvert mætir fjöldi fólks sem vill deila sögu sinni og leita leiða til að sætt­ast við for­tíð­ina og horfa til fram­tíðar. Aðstand­endur þolenda og aðrir mæta til þess að styðja sam­fé­lags­legar breyt­ingar og þolendur ganga til að skila skömminni og ábyrgð­inni þangað sem hún á heima; hjá ger­endum. Það sem er okkur samt hvað mik­il­væg­ast er það að þetta er ekki bara einn dagur á ári sem gangan hefur áhrif, heldur hefur hún áhrif alla daga árs­ins. Með hverju árinu sem líður og boð­skap göng­unnar er haldið á lofti skila sífellt fleiri þolendur skömminni þangað sem hún á heima og er það ein­læg trú okkar sem skipu­leggjum göng­una að með þess­ari bar­áttu getum við ekki ein­ungis hjálpað þeim sem orðið hafa fyrir ofbeldi heldur einnig komið í veg fyrir það. Með því að byggja upp sam­fé­lag þar sem kyn­ferð­is­of­beldi er ekki grafið í sand­inn heldur horf­ist í augu við það sendir sam­fé­lagið skýr skila­boð til mögu­legra ofbeld­is­manna um að ef þeir brjóti af sér verði sagt frá. Gangan hefur þannig gríð­ar­lega mikið for­varn­ar­gildi og gerir sam­fé­lagið örugg­ara og betra.“

Fram kemur að síð­ustu vikur og mán­uði hafi ótrú­legur fjöldi ein­stak­linga stigið fram og skilað skömminni, í eitt skipti fyrir öll.

„Hver ein­asta mann­eskja sem stendur upp og tekur afstöðu breytir sam­fé­lag­inu. Fókusinn er ekki lengur á þolendur heldur er loks­ins búið að beina kast­ljós­inu á ger­endur. Sú bylt­ing hef­ur hreyft við öllu sam­fé­lag­inu. Almenn­ingur er orð­inn með­vit­aðri um að kyn­ferð­is­of­beldi sé alltof algengt í okkar sam­fé­lagi og því eigi ekki að þegja yfir lengur. Þess vegna eru ein­kenn­is­orð göng­unar í ár „Ég mun ekki þegja“ og „Ég mun standa með þér“ Með því orða­lagi er ein­stak­ling­ur­inn að gefa lof­orð fram í tím­ann sem við teljum gríða­lega mik­il­vægt. Við í sam­ein­ingu sköpum sam­fé­lag sem stendur upp með þolendum og gerir þeim kleift að segja sína sögu, skammar­laust. Þessar setn­ingar munu síðan prýða boli og annan varn­ing göng­unar sem verður frum­sýndur á næstu dögum.

Við getum sýnt það í verki að við ætl­um ekki að láta þetta of­beldi yfir okk­ur ganga leng­ur. Við ætlum ekki að þegja, og við ætlum að standa með þeim sem segja frá. Þess vegna boðum við til Druslu­göngu 25. júlí klukkan 14:00 frá Hall­gríms­kirkju. Gengið verður í átt að Aust­ur­velli þar sem við taka ræðu­höld og tón­leikar. Friðrik Dór, Úlfur Úlfur, Boogie Trouble og Mammút munu meðal ann­ars spila og verða kynnar og ræðu­hald­arar kynntir til leiks þegar nær dregur göngu.

Við hvetjum alla til að mæta og ganga fyrir breyttu sam­fé­lagi laust við ofbeldi og skömm. Taktu afstöðu – vertu drusla!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár