Valdatafl í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík

Sá armur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík sem kenndur er við Guðlaug Þór Þórð­ar­son hefur tögl og hagldir í borg­ar­málum flokks­ins sem stendur. Hann studdi Eyþór Arnalds í leið­toga­sætið og er með meiri­hluta í kjör­nefnd og full­trúa­ráði,

Það er ólga á meðal Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík í kjöl­far þess að vænt­an­leg upp­still­ing á fram­boðs­lista flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar lak út. Oddviti list­ans, Eyþór Arnalds, var kos­inn í sér­stöku leið­toga­kjöri í jan­úar. Kjör­nefnd var svo falið að raða í önnur sæti list­ans. Kjarninn greindi frá því í gær­morgun hverjir muni sitja í þeim sætum sem lík­leg eru til að ná kjöri.

Um er að ræða, að mestu leyti, fólk sem til­heyrir armi Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Full­trúa­ráð flokks­ins á eftir að taka afstöðu til list­ans og gerir það á morgun. Við­mæl­endur Kjarnans búast ekki við því að breyt­ingar verði gerðar í ljósi þess að full­trúa­ráðið er að mestu skipað fólki úr sama armi.

Helsta birt­ing­ar­mynd þeirra átaka sem eru innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík er sú að Áslaug Frið­riks­dóttir, sitj­andi borg­ar­full­trúi sem lenti í öðru sæti í leið­toga­kjöri flokks­ins, og Kjartan Magn­ús­son, sem hefur verið borg­ar­full­trúi í tæp 19 ár, fá ekki sæti á lista. Þess í stað er ein­ungis einn sitj­andi borg­ar­full­trúi á list­anum, Marta Guð­jóns­dóttir. Aðrir sem stillt hefur verið upp eru reynslu­litlir eða -lausir í stjórn­málum og/eða óþekktir.

Áralöng barátta milli fylkinga

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður, ráð­herra og eitt sinn borg­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, skrif­aði grein í tíma­ritið Þjóðmál í byrjun árs. Þar sagði hann m.a. að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son sé ábyrgur fyrir stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, en hann hefur setið nær óslitið í minni­hluta í höf­uð­borg­inni frá árinu 1994, ef frá er talin aðkoma að þremur af fjórum meiri­hlutum sem mynd­aðir voru á umrótsár­unum 2006-2010. Í grein Björns sagði að nú tali vinstri­s­inn­aðir álits­gjafar um það sem gefna stað­reynd að kjós­endur í Reykja­vík hafi færst svo mjög til vinstri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nái sér aldrei á strik í borg­inni. „Gegn þess­ari þróun verður að snú­ast. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hvílir sú skylda fyrst og síð­ast á Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra, sem hefur lagt mest af mörkum til þess valda­kerfis sem þró­ast hefur innan flokks­ins í höf­uð­borg­inni og sækir orku sína til inn­byrðis átaka frekar en bar­áttu við and­stæð­inga flokks­ins.“

Guðlaugur Þor Þórðarson utanríkisráðherra hefur lengi verið mjög áhrifamikill innan hverfafélaga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Guð­laugur Þor Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur lengi verið mjög áhrifa­mik­ill innan hverfa­fé­laga Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

Í þessum orðum Björns krist­all­ast þau átök sem átt hafa sér stað árum saman milli fylk­inga í Reykja­vík. Þau átök náðu ákveðnu hámarki, að minnsta kosti opin­ber­lega, í próf­kjöri fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 2007 þegar Guð­laugur felldi Björn úr öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. Þá sak­aði Björn Guðlaug Þór um að vera hand­bendi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og ann­arra svo­kall­aðra Baugs­manna, sem höfðu lagt Guðlaugi Þór til háa styrki í bar­áttu hans.

Ástæða þess að þetta er rifjað upp hér er að í þessum átökum krist­all­ast átaka­lín­urnar sem verið hafa í Reykja­vík alla tíð síðan. Öðru megin hafa verið stjórn­mála­menn eins og Björn Bjarna­son, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, Ólöf Nordal heitin, Illugi Gunn­ars­son, Áslaug Frið­riks­dóttir og Kjartan Magn­ús­son. Hinu megin hafa verið Guð­laugur Þór og hans bak­land.

Langur aðdragandi

Nýjustu átökin sem átt hefur sér stað á milli þess­ara fylk­inga hófust í fyrra. Nánar til­tekið í fyrra­sumar, áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk, leit fyrir að næstu stór­á­tök á hinu póli­tíska sviði yrðu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara í lok maí 2018.

Fyrsta alvöru orustan var háð á fundi Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, 9. ágúst 2017. Í aðdrag­anda fund­ar­ins var ekk­ert sem benti til þess að til stæði að fjalla um val á lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Þar af leið­andi var ekki full­mætt á fund­inn. Engin dag­skrá var send til stjórn­ar­manna áður en að hann fór fram. Á fund­inum ákvað Gísli Kr. Björns­son, for­maður Varðar, hins vegar að halda umræðu og atkvæða­greiðslu um að leið­toga­kjör yrði haldið í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna. Sú til­laga var sam­þykkt.

Hildur Björnsdóttir og Eyþór Arnalds verða í tveimur efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, samkvæmt tillögu kjörnefndar.
Hildur Björns­dóttir og Eyþór Arnalds verða í tveimur efstu sæt­unum á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor, sam­kvæmt til­lögu kjör­nefndar.

Það að farið yrði í leið­toga­kjör en stillt upp í önnur sæti á lista var fjarri því sem tíðkast hefur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem próf­kjör þykja lýð­ræð­is­leg­asta leiðin til að velja á lista og allar hömlur á slíku, líkt og til að mynda kynja­kvótar þótt til óþurftar.

Við­mæl­endur Kjarnans sem voru ósáttir við þetta fyr­ir­komu­lag segja að með þessu hafi sá armur sem þeir kenna við Guðlaug Þór, og hefur tögl og hagldir í flestum Sjálf­stæð­is­fé­lögum í borg­inni, verið að tryggja sér algjör áhrif yfir því hvernig fram­boðs­list­inn yrði. Aðrir hafa bent á að árangur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni hafi ekki verið til eft­ir­breytni í rúma tvo ára­tugi. Því sé fullt til­efni til að reyna nýjar leiðir.

Tengsl við bæði stóru dagblöðin

Í aðdrag­anda leið­toga­kjörs­ins, sem haldið var í lok jan­úar, greindi Kjarninn frá því að Eyþór Arnalds væri með hina svoköll­uðu kosn­inga­vél Guðlaugs Þórs á bak­við sig. Skemmst er frá því að segja að Eyþór sigr­aði leið­toga­kjörið mjög örugg­lega. Hann hlaut tæp 61 pró­sent greiddra atkvæða. Áslaug Frið­riks­dóttir varð önnur með 20,2 pró­sent.

Næsta skref var síðan að raða fólki í næstu sæti. Á Kjarn­anum í gær var sagt frá því hverjir hefðu verið settir í þau sæti sam­kvæmt til­lögu kjör­nefndar. Þar kom fram að Hildur Björns­dóttir lög­fræð­ingur myndi vera í öðru sæti hans. Hún er hefur ekki áður tekið form­lega þátt í stjórn­málum en hefur vakið athygli fyrir Bak­þanka­skrif í Frétta­blað­inu. Tengda­móðir hennar, Kristín Þor­steins­dóttir, er rit­stjóri þess blaðs og sam­býl­is­maður hennar, Jón Skafta­son, hefur starfað með eig­endum Frétta­blaðs­ins, hjón­unum Ingi­björgu Pálma­dóttur og Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, um ára­bil.

Með veru Hildar á list­anum er ljóst að mikil tengsl eru inn á tvö einu dag­blöð lands­ins, enda Eyþór Arnalds á meðal stærstu eig­enda Morg­un­blaðs­ins.

Mikið af óþekktu fólki

Um 150 manns sótt­ust eftir sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna en við því má búast að flokk­ur­inn nái að minnsta kosti sjö til átta borg­ar­full­trúum inn. Í næstu sætum á eftir Hildi, sem telj­ast örugg borg­ar­full­trúa­sæti, rað­ast að mestu óþekkt fólk úr þeim hverfa­fé­lögum sem Guð­laugur Þór er tal­inn vera með sterk­ustu ítökin í. Þar er m.a. um að ræða Valgerði Sig­urð­ar­dóttur (3. sæti) og Egil Þór Jónsson (4. sæti). Eini núver­andi borg­ar­full­trú­inn sem er á list­anum er Marta Guð­jóns­dóttir (5. sæti), hún er einnig hluti af sama armi. Í sjötta sæti á svo að sitja Katrín Atla­dóttir en þar fyrir neðan Örn Þórð­ar­son, Björn Gíslason sem er vara­borg­ar­full­trúi, Jórunn Pála Jón­as­dóttir og Alda Vil­hjálms­dóttir.

Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi lenti í öðru sæti í leiðtogakjörinu. Hún fær ekki sæti á lista miðað við tillögu kjörnefndar. Mynd: Aðsend.
Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi lenti í öðru sæti í leið­toga­kjör­inu. Hún fær ekki sæti á lista miðað við til­lögu kjör­nefndar. Mynd: Aðsend.

Hvorki Áslaug Frið­riks­dóttir né Kjartan Magn­ús­son, sitj­andi borg­ar­full­trúar sem lýst hafa yfir vilja til þess að halda áfram þátt­töku í borg­arpóli­tík, fá sæti á lista sem raun­hæft gæti talist að myndi skila þeim kjöri.

Við­mæl­endur Kjarnans úr bak­landi þeirra telja þetta mjög grófa aðför gegn þeim. Þeir telja aug­ljóst að bæði Áslaug og Kjartan hefðu gjörsigrað margt af því fólki sem nú fær öruggt sæti á lista ef próf­kjör hefði verið haldið. Með und­ir­róðri og inn­an­flokksá­tökum hafi málum hins vegar verið komið þannig fyrir að þeir sem eru með meiri­hluta í kjör­nefnd og í full­trúa­ráði hafi getað raðað sínu fólki á lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár