Trúðar nema ekki fyrir börn

Trúðar nema ekki fyrir börn Drag- og burlesque senan er í miklum blóma. Hún leyfir kvenn­lega lík­ams­tján­ingu og þokka en á sama tíma er gert grín og skemmt fólki. Miss Mokki og Gógó Starr ætla að fara með hana um Evrópu og safna fyrir því á Karolina Fund

Drag- og burlesque senan í Reykja­vík er lítil en í miklum blóma, sam­kvæmt þeim Margréti Erlu Maack og Sigurði Heimi Guð­jóns­syni, eða Miss Mokki og Gógó Starr eins og þau kalla sig á svið­inu. Þau fara fyrir Reykja­vík Kabarett og Drag-súg sem hafa öðl­ast sess í skemmt­ana­líf­inu, enda er alltaf upp­selt. „Já, aldrei eins, en alltaf upp­selt.“ Þau hafa ferð­ast um heim­inn til að sýna og fá inn­blástur og segja að senan hér heima sé á heims­mæli­kvarða, enda eru þau með biðlista fram á næsta ár frá erlendum gesta­lista­mönnum að koma hingað og skemmta. Þau ætla að taka höndum saman næsta sumar og ferð­ast saman um Evrópu og leita uppi leyni­bari og klístruð svið, og eru nú þegar komin með ein­hver „gigg“ í hatt­inn. Þau safna fyrir ferða­lag­inu á Karolina Fund, en styrkj­endur geta fengið ýmis­legt í stað­inn, til dæmis miða á Far­vel­sýn­ingu á næsta ári, áður en þau leggja í hann. Kjarninn hitti Margréti Erlu og Sigurð Heimi og tók þau tali.

Hvað er er það sem þið gerið?

Sigurður Heimir: „Ég er Dragdrottn­ing og kab­ar­ett­lista­maður, og leik mér að því að beygja lín­urnar milli þess sem talið er kven­legt og karl­mann­legt- og blanda því saman á skemmti­legan hátt.“

Margrét: „Mér fannst litla frænka mín orða þetta mjög vel: “Margrét er svona eig­in­lega trúður, nema bara alls ekki fyrir börn.” Burlesque er kyn­þokka­full kab­ar­ett­list sem byggir á dansi, leik­húsi og full­orð­ins­húmor. Dita Von Teese er þekktasta burlesquedís í heimi… Við erum samt með mjög ólíkan stíl!“

Sigurður Heimir: „Það er einmitt áber­andi munur á klass­íska Burlesque form­inu, eins og það sem Dita gerir, og núver­andi straumum í burlesque, þar sem oft er meiri húmor og gróf­ari karakt­erar. Út frá auknum vin­sældum og opn­ara hug­ar­fari, þá byrj­uðu karl­menn að leika sér við þetta list­form, sem hafði áður aðeins verið fyrr kven­menn, og Boylesque verður til.

Ég dýrka hvernig Buylesque-ið leyfir mér að leika mér með „kven­lega” lík­ams­tján­ingu og þokka, en á sama tíma gert grín og skemmt fólki. Því í grunn­inn erum við ekk­ert annað en skemmti­kraftar.“

Margrét: „Hug­myndin að Evr­ópu­ferða­lag­inu kom þegar við vorum óvart bókuð sama kvöld á Slipper Room í New York í sumar. Við höfum káfað á ýmsum stöðum um Evrópu og erum nú þegar komin með fyrsta giggið, á Melt Bar í Stokk­hólmi, sem er svona 1920 leyni­bar. Þetta kab­ar­ett­form er mjög skemmti­legt, við erum að ferð­ast með okkar atriði sem koma eins og púsl inn í sýn­ingar sem eru nú þegar í gangi. Þannig að við erum ekki að ferð­ast með heila sýn­ingu, heldur bita inn í skemmtun sem nú þegar er til staðar.“

Hvernig er hefð­bundið líf kab­ar­ett­lista­manns?

Margrét: „Ég held að ég sæki í þetta því að eng­inn dagur er hefð­bund­inn. Ég er að skemmta um helgar en virku dag­arnir eru rólegri og þá safna ég kröftum, smíða atriði, vinn í bún­ingum, fer á fundi vegna gigga og und­irbý kennslu og á kvöldin kenni ég í Kram­hús­inu.

Sigurður Heimir: Við erum bæði kab­ar­ett­lista­menn í fullu starfi, og þar að auki fram­leið­endur okkar eigin fjöl­lista­sýn­inga; Reykja­vík Kabarett og Drag-Súgur. Svo það fer auð­vitað slatti af tíma í skipu­lagn­ingu og vinnu bak við tjöldin fyrir þessar sýn­ingar, og til að búa til ný atriði, bún­inga og hvað eina.

Þetta er alls ekki hefð­bundið líf- en svaka­lega hefur maður gaman af því.“

Hvað er á döf­inni hjá ykkur?

Sigurður Heimir: „Ég er á leið­inni aftur til New York, á Rupaul’s Drag Con, núna í byrjun sept­em­ber, og síðan tekur við Drag-Súgur Disney show sem verður þann 15. sept­em­ber á Gauknum. Ég verð einnig með glæ­nýtt og spenn­andi Drag-nám­skeið í Krambús­inu í haust, og það fer af stað þann 13. sept­em­ber. Allt að ger­ast!“

Margrét: „Já, 15. og 16. sept­em­ber verður Reykja­vík Kabarett með tvær sýn­ingar í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum þar sem við fáum upp­á­halds­skemmti­kraft­inn minn frá New York, Wilfredo, með okkur og fleiri góða gesti. Svo er ég eig­in­lega full­bókuð til jóla núna í veislu­stjórn, skemmti­at­riði og kab­ar­ett­kvöld ásamt nám­skeið­unum sem ég er að kenna. Ég skemmti í Brighton í sept­em­ber, Glasgow í októ­ber og New York í nóv­em­ber. Ég er svona að troða eins mörgu og ég get núna fyrir jól því að í jan­úar byrja ég í stífum æfingum fyrir Rocky Horror í Borg­ar­leik­hús­inu.“

Sigurður Heimir: „Svo verðum við auð­vitað með glæsi­legt fjöl­lista-teiti á loka­dag Karolina Fund söfn­un­innar, þann 21. sept­em­ber á Gauknum. Þar munum við vera með ýmis skemmti­at­riði þegar söfn­unin klifrar upp og fagna kom­andi Evr­ópu­ferða­lagi með vinum, vanda­mönnum og öðrum velunn­urum.“

Margrét: „Já, og kon­fet­tí­bombu á mið­nætti.“

Hvað er hægt að fá fyrir að styrkja verk­efnið ykkar?

Sigurður Heimir: „Við bjóðum upp á ýmis­legt; pakka með miðum á Farvel sýn­ing­una okkar, sem verður stuttu fyrir brott­för næsta sumar, ýmis skemmtun í heima­hús eða á hvers konar við­burði, Drag makeover sem hafa verið gíf­ur­lega vin­sæl í steggj­unum og gæs­unum, og ýmis nám­skeið! Tékkið á’essu á Karolina fund.“

Margrét: „Mig langar að mæla sér­stak­lega með pökk­unum með brjósta­dúsk­unum! Og líka hópeflis­tímum í dragi, burlesque eða Broadwaysöngleikjadönsum - mjög skemmti­legt með vina­hópnum eða í hópefli hjá fyr­ir­tækjum.“

Hægt er að styðja við verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár