Samkeppniseftirlitið styður endurskoðun áfengislaga

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bendir á að á stuttum tíma hafi áfeng­is­einka­sala gjör­breyst, og það án mik­illar stefnu­mark­andi umræðu, hvorki um lýð­heilsu né sam­keppni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið er fylgj­andi því að núgild­andi fyr­ir­komu­lag við sölu áfengis verði end­ur­skoðað. Þetta kemur fram í umsögn eft­ir­lits­ins um áfeng­is­frum­varpið svo­kall­aða, sem nú er til með­ferðar í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis.

[links]Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur ekki að öðru leyti afstöðu til frum­varps­ins sem er til með­ferðar, en seg­ist fylgj­andi því að núgild­andi fyr­ir­komu­lag verði end­ur­skoðað. Ástæðan er sú að áfeng­is­einka­sala hefur gjör­breyst á nokkrum árum, án þess þó að reglum hafi verið breytt.

„Hefur áfeng­is­einka­sala á skömmum tíma þró­ast úr því að vera stunduð á fáum stöðum á land­inu þar sem varan var afhent yfir borð, yfir í dreifðar og nýtísku­legar versl­anir, sem bjóða upp á mikið aðgengi neyt­enda, en leggja miklar tak­mark­anir á fram­leið­endur og inn­flytj­endur. Þessar miklu breyt­ingar á áfeng­is­sölu hafa átt sér stað án mik­illar stefnu­mark­andi umræðu, hvorki um und­ir­liggj­andi lýð­heilsu­m­ark­mið, né áhrif á sam­keppni,“ segir í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Með hlið­sjón af þessu vill eft­ir­litið að regl­urnar séu end­ur­skoð­aðar. Mik­il­vægt sé að lög­gjaf­inn reyni að vernda sam­fé­lagið og ein­stak­linga frá þeirri vá sem neysla áfengis geti haft í för með sér, en til þess eigi að velja þær aðferðir sem skerði frjálsa sam­keppni sem minnst og falli best að sam­fé­lag­inu hverju sinni.

Eft­ir­litið áréttar það í umsögn sinni að þótt mark­mið sam­keppn­islaga end­ur­spegli þá stað­reynd að sam­keppni í við­skiptum sé bæði æski­leg og nauð­syn­leg sé það við­ur­kennt að í sumum til­vikum þurfi að víkja frá frjálsri sam­keppni til að vernda til­tekna almanna­hags­muni. Lögin um einka­sölu áfengis séu dæmi um slík frá­vik frá sam­keppni, og regl­urnar eigi sér langa sögu og spretti úr allt öðru versl­un­ar­um­hverfi en því sem nú er við lýði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár