Eyþór stofnfélagi samtaka gegn flugvellinum - ekki forgangsmál núna

Eyþór Arnalds, fram­bjóð­andi í odd­vita­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, var meðal stofn­fé­laga sam­tak­anna 102 Reykja­vík sem vildi Reykja­vík­ur­flug­völl úr Vatns­mýr­inni. Segir nú að málið sé ekki for­gangs­mál, önnur mál séu brýnni.

Eyþór Laxdal Arnalds.
Eyþór Laxdal Arnalds. Mynd: Håkon Broder Lund.

Eyþór Arnalds, fram­bjóð­andi í odd­vita­kjöri sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, var einn stofn­fé­laga á stofn­fundi sam­tak­anna 102 Reykja­vík árið 2001.

Meg­in­mark­mið sam­tak­anna var að Reykja­vík­ur­flug­völlur fari úr Vatns­mýr­inni. Í ályktun sem fund­ur­inn sendi frá sér kom fram áskorun til borg­ar­yf­ir­valda um að leitað verði skýrra og afdrátt­ar­lausra svara með ein­faldri spurn­ingu í þá fyr­ir­hug­aðri atkvæða­greiðslu um stað­setn­ingu vall­ar­ins.

Eins og kunn­ugt er var kosið í Reykja­vík sama ár um fram­tíð Vatns­mýr­ar­innar og stað­setn­ingu Reykja­vík­ur­flug­vallar og var nið­ur­staða kosn­ing­ar­innar sú að 50,7 pró­sent vildu flug­völl­inn burt en 49,3 vildu að völl­ur­inn yrði áfram í Vatns­mýr­inni. Rúmlega 30 þús­und tóku þátt í kosn­ing­unni sem þá var 37,2 pró­senta kjör­sókn. Borg­ar­ráð hafði fyrir atkvæða­greiðsl­una ákveðið að hún yrði bind­andi ef 75 pró­sent atkvæða­bærra manna tækju þátt eða að 50 pró­sent atkvæð­is­bærra mann greiddu öðrum val­kost­inum atkvæði sitt.

Á fund­inum tók Eyþór til máls og sam­kvæmt frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins voru hann og aðrir ræðu­menn sam­mála um að flug­völl­ur­inn þyrfti að fara úr Vatns­mýr­inni. Það væri lyk­ill­inn að betri borg.

Eyþór, sem berst núna við fjögur flokks­systk­ini sín um odd­vita­sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara í vor, er ekki lengur á þess­ari skoðun.

Í sam­tali við Kjarnann segir Eyþór stað­setn­ingu eða til­færslu flug­vall­ar­ins ekki vera for­gangs­at­riði. Hann segir að meðan ekki sé annar kostur í boði sem er betri eða jafn góður þá verði flug­völl­ur­inn áfram þar sem hann er. Hann seg­ist ekki munu beita sér fyrir því að færa flug­völl­inn til að byggja upp byggð í 102 Reykja­vík.

Um stofn­fund sam­tak­anna sem hann sótti á sínum tíma segir Eyþór að fund­ur­inn hafi verið hald­inn í aðdrag­anda áður­nefndrar atkvæða­greiðslu. Á fund­inum og víðar í umræð­unni hafi verið uppi hug­myndir um að færa flug­völl­inn í Skerja­fjörð. Þær hug­myndir hafi verið mjög áhuga­verðar, þannig hefði verið tryggt að flug­völl­ur­inn væri áfram í Reykja­vík en hægt hefði verið að byggja upp í Vatns­mýr­inni. En síðan hafi til dæmis Rögnu­nefndin skilað af sér sinni nið­ur­stöðu, þar sem eng­inn kostur var tal­inn betri en núver­andi stað­setn­ing flug­vall­ar­ins og svo virð­ist vera sem hug­myndir um flug­völl í Skerja­firði séu hvorki á borð­inu hjá borg­inni né flug­mála­yf­ir­völdum.

Eyþór segir að meðan staðan sé svona, að eng­inn kostur sé fyrir augum sem sé betri eða jafn­góður fyrir inn­an­lands­flugið, vilji hann heldur ein­beita sér að öðrum mál­efnum innan borg­ar­innar, svo sem hús­næð­is­málum og sam­göngu­málum.

„Ég hef alltaf verið opinn fyrir nýjum hug­myndum í skipu­lags­málum, ef þær eru raun­sæjar og leysa málin. En það eru bara önnur mál sem eru brýnni heldur en að fara í þetta,“ segir Eyþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár