Jóhannes Kr.: Wintris-viðtalið siðlegt og hrein blaðamennska

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóri Reykja­vík Media, segir að leiðin sem farin var við við­talið fræga við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi verið sið­leg. Um það hafi allir blaða­menn­irnir sem unnu að því verið sam­mála. Jóhannes tjáði sig um Panama­skjölin og við­talið við Sigmund Davíð um Wintris á mál­þing­inu Heim­ur­inn eftir Panama­skjölin í Norræna hús­inu nú síð­degis. Píratar standa fyrir fund­inum.

Sigmundi Davíð hafði ekki verið greint frá því fyr­ir­fram að hann yrði spurður um félagið Wintris í við­tal­inu við sænska frétta­skýr­inga­þátt­inn Uppdrag granskning. Hann gekk út úr við­tal­inu þegar Jóhannes Kr. var far­inn að taka þátt í því og spyrja Sigmund Davíð um fyr­ir­tækið á íslensku. Sig­mundur Davíð, og ýmsir aðrir, hafa gagn­rýnt þessa aðferða­fræði, og Sig­mundur Davíð hefur reyndar talað um árás á sig í þessu sam­hengi.

„Vitandi að Ísland er lítið land og allir vita allt, ef ég sem nokkuð þekktur blaða­maður á Íslandi hefði tekið upp sím­ann og hringt og spurt um fyr­ir­tæki sem heitir Wintris, þá myndi það frétt­ast hratt. Ég gat ekki gert það fyrr en bara rétt áður en fréttin fór í loftið. Og erlendu blaða­menn­irnir sem unnu að þessu við­tali með mér, þeir sögðu: Ef þú býður honum í við­tal um Wintris, þá munu allir hans aðstoð­ar­menn fá mögu­leik­ann á því að hafa áhrif á sög­una áður en þú tekur við­tal við hann. Það var mik­il­vægt atriði auð­vitað,“ sagði Jóhannes.

Hann sagði að á þessum tíma hafi þurft að fara djúpt á inter­net­inu til að finna nokkuð um félagið Wintris, og það eina sem fannst var að félagið væri kröfu­hafi í bönk­unum.

„Þannig að við ákváðum að gera þetta svona, að taka við­talið svona, út frá hreinni blaða­mennsku. Við töl­uðum um sið­ferð­is­lega hlut­ann í þessu og vorum sam­mála um að þetta væri sið­legt. Þetta væri það stór frétt, við vorum að tala um for­sæt­is­ráð­herra Íslands, og líkt og erlendu kollegar mínir sögðu: Hann er for­sæt­is­ráð­herra og hann á að geta svarað öllum spurn­ingum, jafn­vel um aflands­fé­lag sem hann á.“

Jóhannes sagði mik­il­væg­ast fyrir sig að fréttin sem sögð var hafi verið rétt, og einnig að Sigmundi Davíð hafi margoft verið boðið í annað við­tal áður en umfjöllun Reykja­vík Media, Kast­ljóss og erlendra fjöl­miðla fór í loftið.

Hér að neðan er hægt að hlusta á erindi Jóhann­esar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár