Morðið í Istanbul, valdatafl í Sádí-Arabíu og hrun á olíuverði

Að und­an­förnu hefur orðið algjör kúvend­ing á olíu­verði. Mikill þrýst­ingur var á yfir­völd í Sádí-Arabíu í haust, frá Banda­ríkj­unum, um að auka fram­leiðslu. Það hefur nú gengið eftir.

Erdogan Tyrk­lands­for­seti birt­ist allt einu á blaða­manna­fundi í Istanbul, 5. októ­ber, síð­ast­lið­inn og greindi heims­byggð­inni frá því að Jamal Khas­hoggi, pistla­höf­undur The Washington Post, hefði verið drep­inn í sendi­ráði Sádí-Arabíu í Istanbul, 2. októ­ber.

Hann hefur síðan haldið því fram að skip­anir um morðið - sem fram­kvæmt var af aftöku­sveit frá Sádí-Arabíu - hefðu komið frá æðstu ráða­mönnum í þessu vell­auð­uga olíu­ríki. Hafa spjótin beinst að Mohammed bin Salman, krón­prins­inum, en Erdogan hefur full­yrt að skip­anir um morðið hafi komið frá honum.

Óhuggulegur atburður

Flest bendir til þess að lík­inu af Jamal, sem var þekktur gagn­rýn­andi yfir­valda, hafi verið eytt í sýru eftir að hafa verið britjað niður. Lýs­ing­arnar á þessu grimmd­ar­verki eru óhuggu­legar og leiddu þær nær umsvifa­laust til milli­ríkja­deilu og sam­tala milli þjóð­ar­leið­toga.

Í vand­aðri umfjöllun The Washington Post, gamla vinnu­staðar Jamals, hefur verið fjallað um hvert skref í þessu óhuggu­lega máli. Nú síð­ast fyrir tveimur dögum, þar sem fjallað var um dul­ar­fullt hvarf eins þeirra sem vann í sendi­ráð­inu, Mohammad al-Otaibi.

Eitt af því sem hefur verið fjallað ítar­lega um, er hvernig þjóðir heims­ins - ekki síst Banda­ríkin - hafa hagað sínum milli­ríkja­sam­skiptum í kjöl­far þess að morðið kom upp á yfir­borðið.

Beinskeytt skrif

Samkvæmt skrifum The Washington Post þá virð­ast pistlar Jamals um stríðið í Jemen, sem leitt hefur til mestu hörm­unga sem fyr­ir­finn­ast á jörð­inni, sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum, hafa farið mest í taug­arnar á elít­unni í Sádí-Arabíu.

Einkum skrifin frá 11. sept­em­ber 2018, þar sem sér­stak­lega er skrifað til krón­prins­ins, um að hann geti stöðvað stríðið í Jemen og þá mann­vonsku sem þar hefur fengið að við­gang­ast gegn sak­lausu fólki, í skjóli Banda­ríkj­anna.

Hann sagði í pistl­inum að Sádí-Arabía sé í þeirri ein­stöku stöðu að geta stillt til friðar, og beitt sér þannig, í stað­inn fyrir að stuðla að stríð­inu.

Það er ekki hægt að full­yrða mikið um nákvæm­lega hvað átti sér stað í sendi­ráðs­bú­staðnum í Istanbul, þar sem upp­lýs­ingar eru mis­vísandi, en það liggur þó fyrir stað­fest­ing á morð­inu, og að aftöku­sveit trún­að­ar­manna krón­prins­ins fram­kvæmdi hana.

Í Foreign Policy hefur verið fjallað ítar­lega um það, að morðið á Khas­hoggi sé mið­punktur umræðu um stríðið í Jemen, þar sem hann var svo til eina röddin á opin­berum vett­vangi sem tók upp mál­stað óbreyttra borg­ara í land­inu.

Neitar sök

Krón­prins­inn neitar að hafa fyr­ir­skipað morðið, og yfir­völd í Sádí-Arabíu reyndar líka, en rann­sókn á mál­inu í Tyrk­landi hefur leitt annað í ljós, sam­kvæmt yfir­lýs­ingum þaðan.

Banda­rísk yfir­völd hafa lagt áherslu það út á við, að leggja ekki blessun sína yfir þetta voða­verk, heldur krefj­ast rann­sóknar og aðgerða. Náið sam­band Banda­ríkj­anna og Sádí-Arabíu er hins vegar þekkt, og hefur Donald Trump Banda­ríkja­for­seti talað um það með afar skýrum og ber­orðum hætti, eins og er hans von og vísa. Hann full­yrti til dæmis skömm eftir morðið, hinn 7. októ­ber, að Sádí-Arabía ætti allt sitt undir Banda­ríkj­unum, sem vernd­uðu „stöð­ug­leik­ann“ í mið­aust­ur­löndum. „Kóng­ur­inn myndi ekki lifa af í tvær viku án okkar,“ sagði Trump.

Yfir hund­rað millj­arða Banda­ríkja­dala vopna­sölu samn­ingar, frá Banda­ríkj­unum til olíu­rík­is­ins, eru til marks um þetta sterka sam­band, en einnig víð­tæk tengsl á sviði fjár­fest­inga sem tengj­ast olíu­iðn­aði og fjár­mála­mörk­uðum almennt.

Krón­prins­inn er nú sagður berj­ast fyrir valda­stöðu sinni, með öllum ráðum, og segir Financial Times að lík­legra sé nú en ekki, að honum tak­ist að halda valda­þráðunum í höndum sínum. Margir and­stæð­inga hans hafa horfið og aðrir gagn­rýnendur skyndi­lega breytt um afstöðu, inn í hinum lok­aða heimi elít­unnar í Sádí-Arabíu.

Olían sem allt snýst um

Í aðdrag­anda morðs­ins í Istanbul hafði Donald Trump gagn­rýnt Sádí-Arabíu tölu­vert, fyrir að neita að bregð­ast við mik­illi hækkun olíu­verðs, með því að auka fram­leiðslu. Með því móti væri hægt að lækka olíu­verðið, og þar með lækka verð­bólgu­þrýst­ing víða í heim­inum, meðal ann­ars í Banda­ríkj­unum. Trump hringdi meðal ann­ars í kon­ung­inn sjálfan og gagn­rýndi þetta, eins og frægt varð, en Trump upp­lýsti sjálfur um sím­talið. Í umfjöllun Reuters segir að Trump hafi verið ber­orður um þessar óskir um að auka við fram­leiðslu, til að lækka olíu­verðið.

Eftir morðið hefur staðan á olíu­mörk­uðum heims­ins gjöbreyst, og það kom mörgum grein­endum algjör­lega í opna skjöldu, en þeir höfðu flestir spáð áfram­hald­andi hækkun á verði, jafn­vel yfir 100 Banda­ríkja­dali á tunn­una af hrá­olíu. Það er nú 56 Banda­ríkja­dalir.

Algjör kúvending

Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa látið undan þrýst­ingi, og sam­þykkt að auka fram­leiðslu. Þá hafa Banda­ríkja­menn einnig sam­þykkt að liðka fyrir við­skipta­þving­unum á Íran, en ekki er langt síðan að það var nán­ast talið óhugs­andi. Þetta leiddi til þess að fram­boð af olíu stórjókst á skömmum tíma, og hefur verðið hrunið niður á einum mán­uði um tugi pró­senta. Farið úr 85 Banda­ríkja­dölum í 56 Banda­ríkja­dali.

Mitt í öllum titr­ingnum vegna morðs­ins á Khas­hoggi, hafa ákvarð­anir um þessa kúvend­ingu á olíu­mörk­uðum, verið teknar.

Verð­lækk­unin kemur sér vel fyrir þau ríki sem ekki fram­leiða olíu og flytja hana inn, eins og t.d. Ísland. Því lægra sem olíu­verðið er, því minni verð­bólgu­þrýst­ingur vegna þess á Íslandi. Þá leiðir lægra verð einnig til betri rekstr­ar­skil­yrða fyrir flug­fé­lög, en mikil og hröð hækkun verðs­ins framan ári leiddi til veru­legra þreng­ingar hjá WOW Air og Icelandair, eins og fjallað hefur um ítar­lega í frétta­skýr­ingum Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár