Mynd: Wikipedia

Dauðastríð mánuðum saman

Icelandair keypti WOW air í upp­hafi viku. Kaup­verðið er langt frá því verði sem til stóð að fá fyrir helm­ings­hlut í WOW air fyrir tæpum tveimur mán­uðum. Um björg­un­ar­að­gerð var að ræða sem átti sér skamman aðdrag­anda.

Það voru ekki margir sem spáðu því, að minnsta kosti opin­ber­lega, að árið 2018 yrði árið sem WOW air myndi fara í greiðslu­þrot. Slíkt mátti að minnsta kosti ekki greina í opin­berri orð­ræðu stjórn­enda félags­ins. Það hafði enda skilað 1,1 millj­arða króna hagn­aði árið 2015 og 4,3 millj­arða króna hagn­aði á árinu 2016. Öll skila­boð sem komu frá Skúla Mogensen, stofn­anda, eig­anda og for­stjóra WOW air, voru á þann veg að frek­ari vöxtur og hagn­aður væri framundan. Hann sagð­ist frekar hlusta á erlenda reynslu­bolta sem væru mjög upp­rifnir yfir árangri WOW air en „svart­sýn­is­röflið á Íslandi“.·

Í nóv­em­ber 2017 sendi félagið meira að segja frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem því var haldið fram að rekstur WOW air væri full fjár­magn­aður út árið 2019. Skúli var síðan val­inn við­skipta­maður árs­ins hjá Markaði Frétta­blaðs­ins vegna árs­ins 2016.

Skúli var svo mættur í við­tal hjá Bloomberg 27. apríl 2018 þar sem hann sagði að sala á hlut í WOW air kæmi til greina fyrir árs­lok og sá orðrómur gekk að stór alþjóð­leg flug­fé­lög, sér­stak­lega hið þýska Luft­hansa, hefði áhuga.

Það kom ansi mörgum í opna skjöldu þegar WOW air birti rekstr­ar­nið­ur­stöðu sína fyrir árið 2017 í júlí síð­ast­liðnum. Algjör kúvend­ing hafði orðið á rekstr­inum og tap upp á 2,3 millj­arða króna var stað­reynd. Í frétta­til­kynn­ingu var haft eftir Skúla að vöxtur félags­ins og fjár­fest­ing hafi reynst dýr­ari en búist var við. „Ytri aðstæður hafa reynst félag­inu krefj­andi, svo sem hækk­andi olíu­verð, styrk­ing krón­unn­ar, dýrt rekstr­ar­um­hverfi á Íslandi og mikil sam­keppni lyk­il­mörk­uðum félags­ins.“

Orðrómur um slæma stöðu

Í kjöl­farið rak hver fréttin aðra um stöðu mála hjá WOW air. Út kvis­að­ist að stjórn­völd væru að fylgj­ast með þróun mála dag frá degi. Katrín Jak­obs­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Bjarni Bene­dikts­son og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir voru stans­laust upp­lýst um stöðu mála. Ástæðan var sú að WOW air hafði vaxið svo mikið, svo hratt, að mögu­lega var félagið orðið kerf­is­lega mik­il­vægt fyrir íslenskt efna­hags­kerfi. Sér­fræð­ingar á vegum stjórn­valda og Seðla­banka Íslands unnu langa daga við að greina hver áhrifin af því að WOW air myndi lenda í greiðslu­stöðvun yrðu.

Þessi við­brögð voru ekki að ástæðu­lausu. Eigin fé WOW air var komið í 4,5 pró­sent í júní 2018 á sama tíma og elds­neytis­kostn­aður félags­ins var að hækka skarpt í takt við hækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu (verð á flug­véla­elds­neyti hækk­aði um 36 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins 2018), en WOW air hafði ákveðið að verja sig ekk­ert gagn­vart slíkum hækk­unum ólíkt t.d. Icelandair.

Skúli brást við stöð­unni með því að leggja 60 pró­sent hlut sinn í frakt­flutn­ing­ar­fé­lag­inu Cargo Express inn í WOW air og breyta um tveggja millj­arða króna kröfu sem hann átti á félagið í nýtt hlutafé. Við þessa breyt­ingu jókst hluta­féð í WOW air um 51 pró­sent. Ein eig­in­legt lausafé jókst ekk­ert, skuldir lækk­uðu bara.

WOW air vant­aði til­finn­an­lega lausafé og það þurfti að fá það hratt.

Vandræðin opinberuð

Um miðjan ágúst birti Kjarninn fjár­festa­kynn­ingu sem norska verð­bréfa­fyr­ir­tækið Pareto Securities hafði útbúið fyrir WOW air vegna skulda­bréfa­út­boðs sem flug­fé­lagið ætl­aði í. Útboðið átti að leysa, að minnsta kosti tíma­bundið, mik­inn lausa­fjár­vanda WOW air. Til­boðs­bókin var opnuð 29. ágúst og til stóð að loka henni á tveimur dögum. Henni var á end­anum ekki lokað fyrr en um þremur vikum síðar.

Á þessum tíma var farið að spyrj­ast út mjög víða að staða félags­ins væri mun við­kvæm­ari en haldið hafði verið fram.Við­mæl­endur Kjarnans segja að þannig hafi verið allt frá haustinu 2017, sér­stak­lega eftir að færslu­hirð­inga­fyr­ir­tækið Korta­þjón­ustan, sem greiddi umtals­verðan hluta af greiðslum sem bár­ust frá við­skipta­vinum vegna ferða sem voru ófarnar strax, lenti í vand­ræðum og eig­enda­skiptum. Við bætt­ust erf­ið­ari ytri aðstæður, aukin launa­kostn­aður og hörð sam­keppni, sem birt­ist fyrst og síð­ast í því að nær ómögu­legt virt­ist fyrir flug­fé­lög að velta auknum kostn­aði út í verð til neyt­enda.

Fjár­festa­kynn­ingin stað­festi þetta. Rekstr­ar­tap á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 var 2,8 millj­arðar króna.

Það var þó engan bil­bug á WOW air að finna opin­ber­lega. Skúli fór í við­tal við Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið um miðjan ágúst og sagði að hann ætl­aði sér að gera flug­fé­lagið sitt mark­aðs­leið­andi á Íslandi strax á árinu 2019. Til þess þyrfti hann sex til tólf millj­arða króna brú­ar­fjár­mögnun til að styrkja fjár­hag WOW air og við­halda miklum vexti þess. Skúli var sann­færður um að eig­in­fjár­staða félags­ins myndi styrkj­ast hratt á seinni hluta árs­ins 2018 og að WOW air myndi skila um tveggja millj­arða króna hagn­aði á því tíma­bili.

Þá sagði í fjár­festa­kynn­ing­unni að WOW air yrði skráð á markað innan 18 mán­aða og að skulda­bréfa­út­boðið væri til þess að fjár­magna starf­sem­ina þangað til. Helst væri horft til skrán­ingar í Frank­furt í þeim efnum.

Hæstu vextir í Evrópu

Allskyns við­bót­ar­upp­lýs­ingar spurð­ust út. Við­mæl­endur Kjarnans sögðu að lausa­fjár­staða WOW air í upp­hafi árs hafi verið þannig að hún dyggði varla til að fjár­magna næsta dag. 28 millj­óna dala end­ur­greiðsla á inn­borg­unum á vélar sem WOW air hafði ætlað að kaupa hafi ekki gert mikið meira en að plástra yfir þær sprungur sem voru farnar að mynd­ast.

Afar illa gekk að fá fjár­festa til að taka þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW og ljóst var að stórir fag­fjár­festar á Íslandi, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóðir, myndu ekki kaupa bréf. Þetta var þrátt fyrir að vaxta­kjörin sem voru í boði níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti, voru hærri en vextir voru í útboðum hjá Air Berlin, Finnair, Norwegian Air, Air France, British Airways og Luft­hansa sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu 2013 til 2018.

Áður voru hæstu vextir sem evr­ópskt flug­fé­lag hafði sam­þykkt að greiða 8,5 pró­sent í útboði sem Air Berlin fór í árið 2017 þegar fyr­ir­tækið sótti 125 milljón evra með víkj­andi skulda­bréfa­út­gáfu. Air Berlin fór í greiðslu­stöðvun í ágúst í fyrra og hætti starf­semi 27. októ­ber 2017. Önnur flug­fé­lög sem gáfu út skulda­bréf á tíma­bil­inu greiða, sam­kvæmt frétt Bloomberg um málið, 5,1 til 7,9 pró­sent vexti.

Félagið sagt skulda lendingargjöld

Í ljósi lít­ils áhuga á þátt­töku í útboð­inu var skil­málum þess breytt og við bætt afslætti á hlutafé í fram­tíð­inni. Staða WOW air hafði á þessum vikum sem útboðið stóð yfir bein áhrif á lífs­kjör lands­manna. Vegna óvissu um fram­tíð félags­ins veikt­ist krónan skarpt sem end­aði með því að Seðla­banki Íslands greip inn í þró­un­ina með því að selja gjald­eyri fyrir 1,2 millj­arða króna. Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn fylgdi fréttum af WOW air.

Fjár­festar héldu að sér höndum og við­skipti voru almennt með lægsta móti flesta daga. Ef talið var að tíð­inda væri að vænta af WOW air áttu sér þó stað miklar hreyf­ingar, sér­stak­lega með hluta­bréf í Icelandair sem hækk­uðu ef líkur voru taldar á því að WOW air færi á hlið­ina. Sömu­leiðis lækk­uðu hluta­bréf í N1, elds­neyt­is­sala WOW air, við slík tíð­indi.

Þann 15. sept­em­ber greindi Morg­un­blaðið frá því að WOW air skuld­aði rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia háar fjár­hæðir vegna ógreiddra lend­inga­gjald og að hluti skuld­ar­innar væri þegar gjald­fall­inn. Isavia hefur ekki viljað tjá sig um hver skuld WOW air við félagið var né hvernig fyr­ir­tækið tók á þeirri stöðu. Skúli Mogensen gagn­rýndi frétta­flutn­ing af þess­ari skuld harð­lega og sagði meðal ann­ars í stöðu­upp­færslu á Facebook að hann tryði „ekki að nokkur blaða­­maður eða fjöl­mið­ill sé svo skamm­­sýnn að vilja vís­vit­andi skemma fyrir áfram­hald­andi upp­­­bygg­ingu félags­­ins.“

Ætlaði að selja helming á tugi milljarð króna

Nú gerð­ust hlut­irnir hratt. Tveimur dögum síðar, 17. sept­em­ber, fór Skúli í við­tal við alþjóð­lega stór­blaðið Financial Times þar sem hann sagð­ist ætla að safna 200 til 300 millj­ónum dala, þá um 22 til 33 millj­örðum króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­út­boði sem væri framundan. Í því ætl­aði hann að selja helm­ing félags­ins. Skúli mat því verð­mæti WOW air í því ætl­aða útboði á allt að 66 millj­arða króna.

Daginn eftir, 18. sept­em­ber, var til­kynnt um að skulda­bréfa­út­boð­inu hefði verið lokað og að WOW air hefði náð í 50 millj­ónir evra. Ekki var greint frá því hverjir hefðu tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu að öðru leyti en að það væri bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar. Við­mæl­endur Kjarnans segja að á meðal erlendu fjár­fest­anna séu vog­un­ar­sjóðir sem átt hafa stöður á Íslandi. Þessi hópur var með belti og axla­bönd varð­andi WOW air þar sem kaupum þeirra fylgdi breyti­réttur á skulda­bréf­unum í hlutafé ef rekstur WOW air reynd­ist verri en lagt var upp með í áætl­unum.

Skúli Mogensen, stofnandi, eigandi og forstjóri WOW air, leitaði til Icelandair í síðustu viku og bað samkeppnisaðilann um að kaupa flugfélagið sitt.
Skúli Mogensen, stofn­andi, eig­andi og for­stjóri WOW air, leit­aði til Icelandair í síð­ustu viku og bað sam­keppn­is­að­il­ann um að kaupa flug­fé­lagið sitt.

Alls kyns fyr­ir­varar voru settir inn í end­an­lega skil­mála sem fólu meðal ann­ars í sér að WOW air þyrfti að stand­ast reglu­leg álags­próf sem þurftu að sýna að eigið fé félags­ins ekki lægra en 25 millj­ónir dala fyrstu tólf mán­uð­ina eftir útgáf­una og 30-35 millj­ónir dala eftir það. Auk þess kom fram að vaxta­greiðslum sem féllu til vegna skulda­bréfa­út­boðs­ins yrðu færðar á fjár­vörslu­reikn­ing.

Í nokkrar vikur var svika­logn. Ekkert heyrð­ist annað en það að WOW air hætti að fljúga á nokkra áfanga­staði.

Eftirlitsaðilinn hrökk í gang

Í síð­ustu viku var staðan orðin þannig að grípa þurfti til frek­ari aðgerða. WOW air átti ekki með góðu móti fyrir mán­aða­mót­unum sem framundan voru. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hrökk Sam­göngu­stofa, sem gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og hefur eft­ir­lit með þeim flug­fé­lögum sem hafa leyfi til að starfa, í gír­inn og þrýsti á aðgerðir. Æðstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar var haldið upp­lýstum.

Skúli Mogensen leit­aði til Icelandair eftir við­ræðum um kaup á WOW air á föstu­dag fyrir viku síðan. Þær umleit­anir áttu sér ekki langan aðdrag­anda.

Við­ræð­urnar hófust fyrir alvöru á laug­ar­dag og stóðu yfir fram á mánu­dags­morgun. Það var svo til­kynnt til Kaup­hallar Íslands klukkan 12:49 á mánu­dag að Icelandair hefði keypt WOW air.

Skúli gæti setið uppi með lítið gagngjald

Uppgefið kaup­verð á WOW air , sem verður greitt með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaupin. Það var ansi langt frá þeim tugum millj­arða króna sem for­stjóri WOW air mat félagið á í við­tal­inu við Financial Times 17. sept­em­ber.

Kaup­verðið er líka bundið allskyns fyr­ir­vörum. Skúli Mogensen fær 1,8 pró­sent hlut í Icelandair fyrir þau víkj­andi lán sem hann breytti í hlutafé fyrr á þessu ári. Þau voru upp á tvo millj­arða króna en virði hlut­ar­ins sem hann getur fengið var 684 millj­ónir króna þegar til­kynnt var um kaupin.

Þá er gengið út frá því að aðrir hlut­hafar, sem er félagið Títan fjár­fest­ingar í eigu Skúla Mogensen, muni fá um 3,5 pró­sent hlut í Icelandair. Það gagn­gjald er þó bundið nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Sýni slík könnun að staða WOW air sé betri en reiknað er með getur hlutur stofn­and­ans farið upp í 4,8 pró­sent. Sýni hún mun verri stöðu getur Skúli setið uppi með að fá ekk­ert til við­bótar fyrir WOW air.

Vert er að taka fram að hluta­bréf í Icelandair hækk­uðu um yfir 40 pró­sent eftir að til­kynnt var um kaupin á WOW air og því hefur virði gagn­gjalds­ins hækkað á síð­ustu dögum.

Nú er beðið nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að hægt sé að klára kaupin. Ekki er ljóst hvenær sú nið­ur­staða mun liggja fyrir. Ljóst er þó að sam­keppn­is­yf­ir­völdum verður gerð grein fyrir því að engin önnur staða hafi verið í kort­unum til að halda starf­semi WOW air áfram. Aðrir kaup­endur hafi ekki verið í mynd­inni og eina sem blasað hefði við að óbreyttu væri gjald­þrot.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár