Stjórnarþingmaður vill kalla danska sendiherrann á teppið

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna vill að utan­rík­is­ráð­herra kalli sendi­herra Dan­merkur á fund til að ræða fyr­ir­ætl­anir þar­lendra stjórn­valda um að þyngja refs­ingar fyrir glæpi sem framdir eru í ákveðnum hverfum.

Stjórn­ar­þing­mað­ur­inn Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé vill að utan­rík­is­ráð­herra kalli danska sendi­herr­ann á teppið vegna fyr­ir­ætl­ana dönsku rík­is­stjórn­ar­innar um að taka upp tvö­falt þyngri refs­ingar fyrir brot sem framin eru í skil­greindum vand­ræða­hverfum í borgum og bæjum lands­ins. Í þessum hverfum, þar sem stór hluti íbúa eru undir fátækt­ar­mörkum sem og eiga við marg­vís­leg félags­leg vanda­mál að stríða, er glæpa­tíðni há. Vill rík­is­stjórnin danska með þessu fækka glæpum á þessum svæðum.

Kolbeinn sagði í ræðu sinni þar sem störf þings­ins voru til umræðu að vinur sé sá er til vamms segi. Fregnir hafi borist af því að eitt helsta vina­ríki Íslands, Danmörk, sé með fyr­ir­ætl­anir um að stig­breyta refs­ingum fyrir glæpi eftir því hvar þeir eru framdir. „Kannski þarf engan að undra að hverfin sem um ræðir eru hverfi sem oft hafa verið kölluð gettó eða fátækra­hverfi eða eru í það minnsta þannig sam­an­sett að þau skera sig úr öðrum hverfum,“sagði Kolbeinn.

Hann sagði alla vera jafna fyrir lögum. Ekki eigi að skipta máli hvar fólk býr ef það mis­stígi sig á lífs­ins hálu braut. „Það eiga allir að vera jafnir fyrir lög­unum. Ef við opnum þessar dyr, hvað ætlum við að gera næst? Mun þá lit­ar­háttur skipta máli? Kyn? Kyn­hneigð? Stjórn­mála­skoð­anir? Trú?“

Kolbeinn vís­aði í grein Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra frá því í gær sem bar nafnið Mann­rétt­indi eru horn­steinn­inn. Kolbeinn sagð­ist fagna þess­ari grein og spurði hvort þessar fregnir frá Danmörku séu ekki til­efni til að kalla sendi­herra lands­ins á fund til að ræða mann­rétt­indi og þá stað­reynd að allir eigi að vera jafnir fyrir lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár