Borgun segir Landsbankann hafa haft aðgang að öllum gögnum

Borgun segir að Lands­bank­inn hafi haft aðgang að öllum gögnum í tengslum við sölu á hlut bank­ans í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014. Útbúið hafi verið sér­stakt gagna­her­bergi þar sem Lands­bank­inn og aðrir aðilar máls höfðu fullan aðgang að ítar­legum upp­lýs­ingum um Borgun og rekstur félags­ins. „Þar lágu fyrir upp­lýs­ingar um aðild og eign­ar­hlut Borgunar í Visa Europe sem og upp­lýs­ingar um val­rétt­ar­á­kvæði milli Visa Inc. og VISA Europe.“ Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Borgun hefur sent frá sér.

Þar segir einnig að Borgun hafi aldrei búið aldrei yfir upp­lýs­ingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði selt, fyrr en salan var gerð opin­ber þann 2. nóv­em­ber 2015. Vænt hlut­deild Borgunar í sölu­and­virði á VISA Europe hafi ekki orðið ljós fyrr en 21. des­em­ber sama ár. „Fyrir þann tíma hafði Borgun engar for­sendur til þess að meta eign­ar­hlut sinn í Visa Europe á annan hátt en gert var.“

Borgun seg­ist enn fremur að fyr­ir­tækið muni veita Lands­bank­anum allar þær upp­lýs­ingar sem hann óski eftir sem teng­ist sölu­ferli hlutar Lands­bank­ans í Borgun vegna fyr­ir­spurna Banka­sýslu rík­is­ins og ann­arra opin­berra aðila.

Landsbankinn krafðist svara

Greint var frá því um helg­ina að Lands­bank­inn hefði sent bréf til Borgunar þar sem farið var fram á það við stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins að þeir svari því hvaða upp­lýs­ingar hafi legið fyrir hjá fyr­ir­tæk­inu eða stjórn­endum þess um hvað það ætti rétt á að fá í sinn hlut ef Visa Inc. myndi kaupa Visa Europe, áður en Lands­bank­inn seldi þeim og með­fjár­festum þeirra hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu. Það gerð­ist í nóv­em­ber 2014. Auk þess hefur Lands­bank­inn farið fram á að vita hversu stór hluti hennar verði rak­inn til rekstr­ar­sögu fyr­ir­tæk­is­ins áður en Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn.

Lands­bank­inn gaf stjórn­endum Borgunar frest þangað til á þriðju­dag til að svara spurn­ingum bank­ans. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði í sam­tali við RÚV um helg­ina að hann tryði því að menn hefðu starfað af heil­indum í sölu­ferl­inu.„Það er það sem maður trúir, en við viljum sann­reyna það með þess­ari beiðni okkar til þeirra. En í öllum þessum sam­tölum okkar við Visa Europe, við Borgun, við Valitor og Arion banka líka, þá kom þetta aldrei upp að það væri hægt að ætla að þarna væru verð­mæti á ferð­inni.“

Ef það komi í ljós að upp­lýs­ingum hafi verið haldið frá Lands­bank­anum í sölu­ferl­inu á hlut hans í Borgun muni bank­inn leita réttar síns.„Þá er málið mjög alvar­legt, þá fer þetta bara í lög­fræði­legan feril. Þá munum við gæta okkar hags­muna með þeim aðferðum sem hægt er,“ segir Steinþór í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Selt bakvið luktar dyr

Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun til félags í eigu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra þann 25. nóv­em­ber 2014 fyrir 2,2 millj­arða króna. Fjár­festa­hóp­ur­inn gerði fyrst til­boð í hlut­inn í mars 2014. Hlutur Lands­bank­ans, sem er að mestu í rík­i­s­eigu, var ekki seldur í opnu sölu­ferli. Öðrum mögu­lega áhuga­sömum kaup­endum bauðst því ekki að bjóða í hlut­inn. Kjarninn upp­lýsti um það þann 27. nóv­em­ber 2014 hverjir hefðu verið í fjár­festa­hópnum og hvernig salan hefði gengið fyrir sig. Á meðal þeirra var Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum þótti verðið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi.

Kjarninn greinir frá því þann 29. apríl 2015 að ákveðið hefði verið á aðal­fundi Borgunar í febr­úar sama ár að greiða hlut­höfum félags­ins 800 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014, þegar Lands­bank­inn var enn eig­andi að tæp­lega þriðj­ungs­hlut. Þetta var í fyrsta sinn sem arður var greiddur út úr félag­inu frá árinu 2007. Tæplega 250 millj­ónir króna féllu í hlut nýrra hlut­hafa, sem hefðu runnið til Lands­bank­ans ef hann hefði ekki selt hlut­inn.

Nýting á valrétti skapar milljarða fyrir íslensk fyrirtæki

Samið var um val­rétt um kaup Visa Inc. á Visa Europe árið 2007. Val­rétt­ur­inn var ótíma­bund­inn. Nokkrum sinnum frá þeim tíma hafa farið af stað við­ræður um að Visa Inc. nýti kaup­rétt­inn. Þegar að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í borgun var í gildi vilja­yf­ir­lýs­ing um að ganga frá kaup­unum. Fjórum dögum áður en Lands­bank­inn til­kynnti um söl­una á hlut sínum í Borgun birt­ist frétt á heima­síðu Bloomberg-frétta­veit­unar, sem er ein stærsta við­skipta­f­rétta­veita í heimi, um að Visa Inc. gerði sér grein fyrir því að fyr­ir­tækið þyrfti að greiða meira en 1.300 millj­arða króna ef það ætl­aði að nýta sér val­rétt sinn á kaupum á Visa Europe. Lands­bank­inn hefur borið fyrir sig að Valitor hafi gefið út Visa-kort fyrir bank­ann og því hafi hann ekki talið sig eiga jafn mikla hags­muni að gæta vegna val­rétt­ar­ins hjá Borgun. Í nóv­em­ber 2015 lá fyrir að Visa Europe yrði selt og á hvaða verði.

20. jan­úar 2016 birti Morg­un­blaðið for­síðu­frétt um að kaup Visa Inc. á Visa Europe gætu skilað Borgun og öðru íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, Valitor, á annan tug millj­arða króna. Visa Inc. mun lík­ast til greiða um þrjú þús­und millj­arða króna fyrir Visa Europe og það fé mun skipt­ast á milli þeirra útgef­enda Visa-korta í Evrópu sem eiga rétt á hlut­deild í Visa Europe. Lands­bank­inn átti hlut í bæði Borgun og Valitor. Þegar bank­inn seldi hlut sinn í Borgun gerði hann ekki sam­komu­lag um hlut­deild í sölu­and­virði Visa Europe. Þegar hann seldi hlut sinn í Valitor í apríl 2015 gerði hann sam­komu­lag um við­bót­ar­greiðslu vegna þeirrar hlut­deildar Valitor í sölu­and­virði Visa Europe. Stjórn­endur Borgunar hafa sagt að þeir hafi fyrst fengið upp­lýs­ingar um hugs­an­legan ávinn­ing fyr­ir­tæk­is­ins vegna söl­unar í des­em­ber 2015.

Á föstu­dag greindi Morg­un­blaðið svo frá því að Borgun sé metið á 19 til 26 millj­arða króna, sam­kvæmt virð­is­mati sem KPMG hefur unnið fyrir stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt því er virði þess 31,2 pró­sent hlutar í Borgun sem Lands­bank­inn, sem er að mestu í rík­i­s­eigu, seldi á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014 nú sex til átta millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár