Ríkasta 0,1 prósent Íslendinga hefur eignast 59 nýja milljarða á tveimur árum

Stærra hlut­fall af nýjum auð farið til rík­ustu lands­manna síð­ustu tvö ár en að með­al­tali árin áður. Þær fjöl­skyldur sem mynda tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna juku auð sinn um 189 millj­arða króna á árunum 2017 og 2018.

Ríkustu fjöl­skyldur lands­ins, sem mynda 0,1 pró­sent tekju­hæsta hlut­fall lands­manna, hafa aukið það magn millj­arða króna sem þær eiga í eigin fé í sam­ein­ingu um 105 millj­arð króna frá árs­lokum 2011 og fram til síð­ustu ára­móta. Þá átti hóp­ur­inn, sem sam­an­stóð þá af um 190 fjöl­skyldum, 155 millj­arða króna. Í lok árs 2018 til­heyrðu 238 fjöl­skyldur rík­ustu 0,1 pró­sent þjóð­ar­innar og áttu sam­an­lagt 260 millj­arða króna í eigin fé.

[links]Rúmur helm­ingur þess við­bótar eig­in­fjár sem þessar fjöl­skyldur hafa eign­ast á tíma­bil­inu féll til á árunum 2017 og 2018, þegar eigið fé þeirra jókst um 59 millj­arða króna. Með­al­eign hverrar fjöl­skyldu í efsta 0,1 pró­sent lagi sam­fé­lags­ins hefur farið úr því að vera 922 millj­ónir króna í árs­lok 2016 í að vera 1,1 millj­arður króna um síð­ustu ára­mót, að teknu til­liti til breyt­inga á fjölda fjöl­skyldna í tekju­bil­inu.

Alls hefur 3,3 pró­sent af þeim 3.179 millj­örðum króna sem orðið hafa til í íslensku hag­kerfi á frá árinu 2010 farið til 0,1 pró­sent rík­ustu fjöl­skyldn­anna hverju sinni. Á árunum 2017 og 2018 var það hlut­fall hins vegar hærra, eða 4,2 pró­sent.

Þetta má lesa út úr svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um eignir og skuldir rík­ustu Íslend­ing­anna sem svarað var á þingi fyrir rúmri viku. 

Sama þróun hjá efsta prósentinu

Þegar horft er á rík­asta eitt pró­sent lands­manna hefur auður þess, sam­kvæmt skatt­fram­tölum, auk­ist um 353 millj­arða króna frá árs­lokum 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum, þegar hann var 802 millj­arðar króna. Alls voru 2.380 fjöl­skyldur í því lagi í lok þess tíma­bils.

[adspot]Alls fór 11,1 pró­sent af öllu nýju eigið fé sem varð til á Íslandi á tíma­bil­inu til rík­asta eins pró­sents lands­manna. Síðustu tvö árin sem töl­urnar ná til, 2017 og 2018, skera sig þó úr hjá þessum hópi eins og flestum öðrum. Af þeim um 1.400 millj­örðum króna sem urðu til á þeim árum fóru 189 millj­arðar króna til rík­asta eins pró­sents lands­manna, eða 13,5 pró­sent.

Því liggur fyrir að efn­uð­ustu Íslend­ing­arnir eru að taka til sín stærra hlut­fall af nýjum auð á síð­ustu tveimur árum en þeir hafa gert að með­al­tali síð­ast­liðin níu ár.

Fá þorra fjármagnstekna og eigið fé vanmetið

Nær öruggt er að hóp­ur­inn á þó meiri eignir en töl­urnar gefa til kynna. Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að rík­asta eitt pró­sent lands­manna þéni um 35 pró­sent allra fjár­magnstekna í land­inu og að rúmur helm­ingur slíkra tekna fari til rík­ustu fimm pró­sent lands­manna. Fjár­magnstekjur eru vaxta­tekj­ur, arð­ur, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstr­ar. Þ.e. tekjur sem við­kom­andi hafa af eignum og fjár­fest­ing­um, en ekki launa­tekj­ur.

Öll verð­bréfa­eign (hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lög­um, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröf­ur) er metin á nafn­virði í töl­unum, en ekki mark­aðsvirði. Því blasir við að eigið fé þeirra sem eiga þessar eignir er van­metið, og fjár­magnstekju­skipt­ingin bendir sann­ar­lega til þess að lít­ill hópur lands­manna eigi stóran hluta þess­ara eigna.

Eign­ar­hluti lands­manna í líf­eyr­is­sjóðum eru ekki taldar með í ofan­greindum töl­um, en sam­an­lagt áttu þeir sjóðir 4.797 millj­arðar króna í lok ágúst síð­ast­lið­ins og eru langstærstu fjár­festar í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár