Meðalhraðaeftirlit gæti verið „arðbærasta“ umferðaröryggismálið

Drög að nýrri umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun stjórn­valda hafa verið birt. Þar segir að inn­leið­ing með­al­hraða­eft­ir­lits á vegum lands­ins gæti talist arð­bærasta umferð­ar­ör­ygg­is­fram­kvæmdin sem völ er á og að inn­leið­ing slíks eft­ir­lits verði for­gangs­mál næstu árin.

Fyrstu meðalhraðamyndavélarnar hér á landi voru settar upp í fyrra. Ávinningurinn af þeim, í formi lægri slysakostnaðar, er sagður geta verið tífaldur á við kostnaðinn við að halda úti kerfunum.
Fyrstu með­al­hraða­mynda­vél­arnar hér á landi voru settar upp í fyrra. Ávinn­ing­ur­inn af þeim, í formi lægri slysa­kostn­aðar, er sagður geta verið tífaldur á við kostn­að­inn við að halda úti kerf­unum. Mynd: Vegagerðin

Í drögum að nýrri umferð­ar­ör­ygg­is­stefnu áranna 2023 til 2037 segir að það láti nærri að sjálf­virkt með­al­hraða­eft­ir­lit á vegum lands­ins sé arð­bærasta verk­efnið sem stjórn­völd geti ráð­ist í til að auka umferð­ar­ör­yggi og að inn­leið­ing slíks eft­ir­lits með umferð á vegum lands­ins verði í for­gangi á næstu árum.

Ávinn­ing­ur­inn, í formi lægri slysa­kostn­aðar, er sagður geta verið um tífalt meiri en til­kostn­að­ur­inn við upp­setn­ingu mynda­véla­kerf­anna.

Við með­al­hraða­eft­ir­lit eru teknar myndir með tveimur mynda­vélum af hverju öku­tæki og er með­al­hrað­inn á veg­inum milli mynda­vél­anna reikn­aður út frá fjar­lægð milli vél­anna og tíma milli mynda. Rannsókn í Noregi, sem vísað er til í drög­unum frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu, sýndi að alvar­legum slysum fækk­aði til muna á veg­köflum þar sem þetta eft­ir­lit var tekið upp, eða um 49-54 pró­sent.

Notkun með­al­hraða­eft­ir­lits hófst í fyrsta sinn hér­lendis í fyrra, en þá var slíkum eft­ir­lits­bún­aði komið fyrir á Grinda­vík­ur­vegi og í Norð­fjarð­ar­göngum.

Eitt nýtt yfirmarkmið kynnt til sögunnar

Nýja áætl­unin er sam­kvæmt drög­unum, sem hafa verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, að mestu eins og sú sem nú þegar er í gildi. Þó bæt­ist við eitt nýtt yfir­mark­mið um að slysa­kostn­aður á hvern ekinn kíló­metra lækki að jafn­aði um 5 pró­sent á ári til árs­ins 2037.

Önnur yfir­mark­mið í áætl­un­inni eru þau sömu og áður, að Ísland verði í fimm bestu Evr­ópu­þjóða hvað varðar fjölda lát­inna í umferð­inni á hverja 100 þús­und íbúa og að látnum og alvar­lega slös­uðum fækki að jafn­aði um 5 pró­sent á ári fram til árs­ins 2037.

[adspot]

Á árunum 2017-2021 voru látnir í umferð­inni á Íslandi rúm­lega 3 að með­al­tali á hverja 100 þús­und íbúa, sem skilar Íslandi 8. sæti á lista Evr­ópu­þjóða sem sakir standa. Á síð­asta ári taldi sá hópur sem slas­að­ist alvar­lega eða lést í umferð­inni yfir 200 manns og ef fram­sett mark­mið áætl­un­ar­innar ættu að nást mættu ein­ungis 80 manns slasast alvar­lega eða lát­ast í umferð­inni árið 2037.

Til við­bótar við yfir­mark­miðin þrjú eru sett fram alls tólf und­ir­mark­mið, sem eru eft­ir­far­andi:

Eitt þess­ara mark­miða er nýtt frá fyrri áætlun, en það er mark­miðið sem snertir á því að eldri öku­mönnum sem eiga aðild að alvar­legum slysum og banaslysum fækki um fimm pró­sent árlega.

Markmið stjórnvalda að 95 prósent fullorðinna noti hjálm á hjóli

Ýmis frammi­stöðu­mark­mið eru svo sett fram í drög­unum, en þau eru að mestu leyti þau sömu og hegð­un­ar­mark­mið gild­andi áætl­unar.

Meðal fram­settra mark­miða er að árið 2037 noti 95 pró­sent full­orð­inna reið­hjóla­hjálm er þau ferð­ast um á reið­hjóli. Þetta er aukn­ing um 5 pró­sentu­stig frá mark­miði gild­andi umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætl­unar, en kann­anir sem gerðar hafa verið t.d. á vegum trygg­inga­fé­laga hafa á und­an­förnum árum sýnt að um og yfir 90 pró­sent þeirra sem hjóla um í Reykja­vík noti hjálm.

Einnig eru sett háleit­ari mark­mið um notkun síma undir stýri, en í fyrri áætlun var sett fram það mark­mið að hlut­fall öku­manna sem segð­ust aldrei tala í síma án hand­frjáls bún­aðar undir stýri yrði hærra en 50 pró­sent. Í drögum að nýrri áætlun er þetta hlut­fall fært upp í 90 pró­sent.

Fólksbílaflotinn verði ekki eldri en 8 ára að meðaltali

Að auki eru ný mark­mið sett fram um bíla­flot­ann, sem ekki eru í gild­andi umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun. Undir liðnum örugg­ari öku­tæki eru sett fram þau mark­mið að með­al­aldur fólks­bif­reiða í umferð verði ekki meiri en 8 ár, og að hlut­fall öku­tækja yfir 7,5 tonn að þyngd sem stand­ist bif­reiða­skoðun verði 75 pró­sent. Árið 2020 var með­al­aldur fólks­bíla í umferð 9,86 ár, sam­kvæmt tölum frá Sam­göngu­stofu.

Hið sama á við um vega­kerfið, en sett eru fram mark­mið í nýju drög­unum um að öll ný eða end­ur­bætt umferð­ar­mann­virki verði látin lúta reglum um umferð­ar­ör­ygg­is­rýni, og að hlut­fall stofn­vega sem teknir hafi verið út með heild­stæðu umferð­ar­ör­ygg­is­mati verði sömu­leiðis 100 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár