„Rökrétt framhald á kaffistofuumræðunni á tímum ólínulegrar dagskrár“

Svokölluð fylgivörp, hlaðvörp um sjónvarps­efni, eru rökrétt framhald á kaffistofu­umræðunni á tímum ólínulegrar dagskrár að mati ritstjóra hlaðvarpa hjá RÚV.

Anna Marsibil Clausen, ritstjóri hlaðvarpa hjá RÚV.
Anna Marsibil Clausen, rit­stjóri hlað­varpa hjá RÚV. Mynd: Úr einkasafni

Ófærð, Game of Thrones, Verbúðin, The Bachelor, Stranger Things eða Vitjanir. Óháð titli eða uppruna­landi sjónvarps­þáttarins má fastlega gera ráð fyrir einu: Það er til hlaðvarp um þátta­röðina, svokallað fylgivarp (e. Companion podcast), eins og Anna Marsibil Clausen, ritstjóri hlaðvarpa á RÚV, hefur þýtt listilega.

En hvað er fylgivarp og af hverju nýtur það vinsælda?

„Ég held að þetta sé rökrétt framhald af kaffistofu­umræðunni á tímum ólínulegrar dagskrár,“ segir Anna Marsibil í samtali við Kjarnann.

Það virðist ekki skipta máli hvort um klassíska sjónvarpsþáttaröð, líkt og Seinfeld eða The Sopranos, er að ræða eða þáttaraðir sem eru enn í fram­leiðslu, líkt og The Crown og Stranger Things, þeim fylgir fylgivarp. Þróunin hefur einnig náð til Íslands þar sem RÚV hefur farið mikinn í fylgi­varpagerð um þætti sem það kemur að fram­leiðslu. Fylgivörp um eldri íslenska klassíska þætti, á borð við Fóstbræður eða Vakta­seríurnar, hafa þó ekki verið gerðir, svo Kjarninn viti til.

Anna Marsibil segir fylgi­vörpin eðlilega þróun á afþreyingu á tímum ólínulegrar dagsrkár. „Hlaðvörp bæta svo miklu við fyrir fólk sem er að njóta þess að horfa á sjón­varpið og vill síðan tala um þættina sem það fílar í botn við vini sína en það eru kannski ekkert allir að horfa á sama þáttinn á sama tíma. Við sjáum það til dæmis með hlað­vörpum eins og því sem fjallar um Gilmore Girls frá upphafi, ekki bara nýju seríuna. Það var risa fylgivarp.“

Ein leið til að fjölga eða halda í áskrifendur streymisveita

Bandarískur fylgi­varpa­markaður virðist ná jafnt til nýrra sem eldri þáttaraða og nefnir Anna Marsibil The Sopranos og The Wire sem dæmi. „Þetta eru þáttaraðir sem eru löngu hættar í sýningu, löngu búnar, en fólk er ennþá að horfa og getur þá ennþá notið þess að hlusta á hlaðvarp meðfram því og þannig fengið útrás fyrir kaffistofu­spjallið. Því að þó að maður sé ekki að tala við fólkið í hlað­varpinu líður manni stundum eins og fólkið í hlað­varpinu séu vinir manns að tala við mann.“

Sjónvarps­fram­leiðendur á borð við HBO hafa ráðist í fram­leiðslu af þessu tagi og það fer ekkert á milli mála hvert endanlegt markmið er: Að fá hlustendur til að kaupa, eða að viðhalda, áskrift að streymis­veitu HBO. Og það virðist virka.

Fylgivarp, hlaðvarp um sjónvarpsþætti, er að ná mikilli útbreiðslu, allt frá Seinfeld til Walking Dead.
Fylgi­varp, hlað­varp um sjón­varps­þætti, er að ná mik­illi útbreiðslu, allt frá Seinfeld til Walking Dead.

Fylgi­vörpin hafa náð mikilli útbreiðslu, óháð því hvort þau koma frá sjónvarps­fram­leiðendunum sjálfum eða áhuga­fólki. Þar spilar inn í hversu einfalt það er í raun og veru að gera hlaðvarp.

„Hlaðvörp eru orðin eins og internetið. Ef þér getur dottið það í hug þá getur þú googlað það og það er til. Hlaðvörp eru eiginlega orðin þannig líka. Ef þú átt áhugamál, sama hversu jaðar­kennt áhuga­málið er, þá er til hlaðvarp um það. Þannig sjónvarps­þættir eru mjög eðlilegir hlutir til að fjalla um í hlaðvarpi, af því að mörg hlaðvörp eru í þessu formatti, það er vinir að spjalla. En hvað eiga þessir vinir að vera að spjall um? Það er mismun­andi eftir hlað­vörpum.“

Fylgivörpin eiga að dýpka upplifunina

Anna Marsibil er fyrsti ritstjóri hlaðvarpa hjá RÚV, en fleiri fjöl­miðlar og streymis­veitur hafa tekið upp þennan starfs­titil, til að mynda Spotify og The Atlantic. Stefna RÚV í fylgi­varpagerð felst í leiðum til að bæta upplifun almennings af sjónvarps­þáttunum sem RÚV fram­leiðir.

„Hlaðvarps­þættirnir hjá RÚV eru hugsaðir sem viðbót sem dýpka upplifunina, þeir koma kannski ekki í staðinn fyrir en bæta við þessa kaffistofu­upplifun,“ segir Anna Marsibil.

Fylgi­vörpin eru frekar ný fyrirbæri en Anna Marsibil segir tilvalið að bera þau saman við fótbolta­hlaðvörp, sem eru meðal vinsælustu hlaðvarpa hér á landi, til að átta sig betur á umfanginu.

„Nú hlusta ég ekki á fótbolta­hlaðvörp þar sem ég hef takmarkaðan áhuga á fótbolta. Ég hef kynnt mér þau eitthvað en hlusta ekki á það að staðaldri. En góður maður sem horfir mikið á fótbolta og hlustar á fótbolta­hlaðvörp útskýrði þetta fyrir mér. Þegar maður hefur áhuga á fótbolta getur maður horft á fótbolta­leik sem er 90 mínútur og svo hlustað á fjóra sextíu mínútna þætti um þennan sama leik, af því að maður hefur bara það mikinn áhuga á því. Svo getur maður kannski líka talað um það í vinnunni. Fótbolti er ástríðu­efni fyrir marga, en hvort tilteknir sjónvarps­þættir séu ástríðu­efni fyrir jafn marga og fótbolti er hér á landi?“ segir Anna Marsibil spyrjandi og bætir svo við: „En maður fær hluti á heilann, maður fær sjónvarps­þætti á heilann, alveg eins og ákveðinn hópur samfélagsins er með fótbolta á heilanum.“

RÚV hefur verið með ýmislegt á heilanum, sem er einmitt samnefnari fylgi­varpa stofnunarinnar. Fyrst var það Ófærð og síðan Verbúðin, sem naut mjög mikilla vinsælda. Með Söngva­keppnina á heilanum fjallaði um Söngva­keppni sjón­varpsins þar sem framlag Íslands í Eurovision þetta árið var valið og um páskana hófu Með Vitjanir á heilanum göngu sína.

„Ólík dagskrár­efni kalla á ólíka nálgun. Það er áhugavert hvernig þær voru unnar ólíkt. Þetta er fólk að tala um uppáhalds þættina sína en það er ekki endilega konseptið sem við vorum að vinna með,“ segir Anna Marsibil.

Það hafi vissulega verið gert í Ófærð, þar sem auðvelt var að velta því fyrir sér eftir hvern þátt hver væri morðinginn. En með næstu þáttaröð á eftir, Verbúðina, varð nálgunin önnur. „Við vildum dýpka umfjöllunina, skipta henni í tvennt og annars vegar taka fyrir sögulega þáttinn og reyna að dýpka skilninginn á einhverju sögulegu sem var að gerast í þættinum, en hins vegar tala við fólkið á bakvið tjöldin í þættinum.“

Hlustunin á fylgi­vörpunum hefur verið góð og hefur fylgjendum RÚV á hlað­varðsveitum farið fjölgandi.

„Verbúðin, sérstak­lega, gekk ofboðs­lega vel, sem er kannski ekki að undra, þetta var vinsælasta sjónvarps­efnið á Íslandi, það er eðlilegt að hlað­varpið haldist í hendur við það. Á sama tíma hefur Ófærð oft verið talsvert vinsælli en hlað­varpið gekk mjög vel og það voru sumir sem höfðu orð á því að þættirnir væru skemmtilegri þegar maður hlustaði líka á hlað­varpið, það gerði mjög mikið fyrir þættina,“ segir Anna Marsibil.

RÚV var þó ekki að finna upp hjólið í fylgi­varpagerð, síður en svo.

Fleiri fram­leiðendur hafa gert hlaðvörp um sjónvarps­þætti, sem dæmi má nefna hlaðvarps­þætti um Svörtu sanda sem birtir voru á Vísi.

„Það var áhugavert að vera með tvær stórar íslenskar seríur í gangi á sama tíma og báðar hlaðvarpsseríurnar, þar sem farnar voru ólíka leiðir, virkaði bæði. Það voru nógu margir að horfa á báðar seríur og nógu margir sem höfðu áhuga á að hlusta til þess að þessi hlaðvörp voru á topp tíu listanum hjá Spotify þessar vikur sem þættirnir voru í sýningu,“ segir Anna Marsibil.

Raun­veruleika­sjónvarp er líka vinsælt viðfangs­efni fylgi­varpa og hér á landi má finna fleira en eitt fylgivarp um The Bachelor og The Bachelorette. Síminn stökk á þann vagn og fram­leiðir nú sína eigin umræðu­þætti meðfram hverri þáttaröð af pipar­sveininum eða pipar­meyjunni.

Íslandsferð piparsveinsins Claytons voru gerð góð skil í fylgivörpum, hérlendis sem erlendis, eðlilega.
Íslands­ferð pip­ar­sveins­ins Claytons voru gerð góð skil í fylgi­vörpum, hér­lendis sem erlendis, eðli­lega.

„Ég vil ekki kynja þetta of mikið en við getum alveg verið raunhæf með það að það eru fleiri karlmenn sem hlusta á fótbolta­hlaðvörp og fleiri konur sem hlusta á Bachelor-hlaðvörp. Ég held að fyrir þennan áhorfendahóp Bachelor-þáttanna þá eru mjög margar þeirra til í að hlusta á tvö, þrjú hlaðvörp. Ekki allar kannski,“ segir Anna Marsibil.

Hlaðvörp að vissu leyti eins og bloggin

Sprenging á hlaðvarps­markaði hefur einnig með það að gera hversu auðvelt það er í raun og veru að ráðast í hlaðvarpa­gerð. „Auðvitað eru hlaðvörp að einhverju leyti líka eins og bloggin. Það getur hver sem er verið með hlaðvarp um hvað sem er. Og það er rosa gaman að vera með hlaðvarp alveg eins og það var gaman að blogga um öll sín hugðar­efni en þegar uppi er staðið nennir maður þessu ekki nema að einhver sé að hlusta, nema einhver sé að lesa bloggið. Það er byrjað að gerast, held ég, að smám saman er fólk að droppa út úr hlaðvarps­gerð þegar það uppgötvar að þetta er kannski meiri vinna en það hélt, að það er kannski erfiðara að koma sér á framfæri og það eru kannski færri að hlusta en þú hélst,“ segir Anna Marsibil.

Fylgi­vörpin, að hennar mati, eru þó líklega komin til að vera. „Ég veit að við á RÚV myndum fagna því ef einhver annar væri að gera hlaðvarp um efnið okkar. Og á sama tíma þá hlaðvarp sem er framleitt af óháðum aðila og getur verið talsvert frjálslegra, á fleiri en einn hátt, sem getur verið rosa skemmtilegt.“

Frá kaffistofuspjalli, til fylgivarps og umræðuhópa

Þróunin heldur einnig áfram, til að mynda á samfélags­miðlum þar sem spretta upp hópar um fylgi­vörpin. „Mikið af þessum hlað­vörpum búa til Facebook-hópa og svo kannski er verið að ræða á kaffi­stofunni það sem var sagt í Facebook-hópnum um það sem gerðist í hlað­varpinu um það sem gerðist í sjónvarps­þættinum. Hlaðvörp eru annað lag í umræðuna. Og það er bara gaman.“

En munu fylgivörp fylgja öllum nýjum sjón­vars­þáttaröðum hér eftir?

„Nei, ég held ekki. Svona seríur eins og við viljum vinna þær eru vinna, og eru auðvitað vinna í öllum tilvikum. En til þess að við getum haldið uppi gæða­stuðli sem við viljum halda uppi þá þurfum við aðeins að velja og hafna. Núna erum við í fasa þar sem við reynum að vera með fylgivarp með sem flestum stóru sjónvarps­viðburðunum okkar. En svo erum við líka að læra eftir því sem fram vindur og það á eftir að koma í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár