Twitter-notendur fá að tvíta tvöfalt lengri færslum

Twitter kannar nú hvernig net­verjar nota rýmri heim­ildir á sam­fé­lags­miðl­inum.

Twitter snýst allt um stuttar færslur og aðalatriði.
Twitter snýst allt um stuttar færslur og aðal­at­riði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter snýst allur um 140 stafa­bil og erg­elsið sem fylgir því að troða hug­myndum og skoð­unum í fyr­ir­fram ákveð­inn ramma.

Brátt gæti hins vegar orðið breyt­ing á því fyr­ir­tækið gerir nú til­raun fyrir lít­inn hóp not­enda og leyfir þeim að senda 280 stafa­bil, tvö­falt lengri upp­færslur en áður. Lang flestir not­endur Twitter hafa, enn sem komið er, aðeins mögu­leika á að tvíta upp á gamla snubb­ótta mát­ann.

Í stuttri færslu á blogg­svæði Twitter skrifar Alzia Rosen, vöru­stjóri Twitter, að þessi hug­mynd hafi farið á flug innan fyr­ir­tæk­is­ins þegar það kom í ljós hversu mis­mun­andi tví­tin eru eftir tungu­málum. Vanda­málið sem blasir við fólki þegar það notar lat­neskt staf­róf til að miðla hug­myndum sínum er alls ekki til staðar fyrir fólk sem tvítar á japönsku, kóresku og kín­versku.

Ástæðan er að með einum bók­staf í japönsku er hægt að miðla mun meiri upp­lýs­ingum en með einum bók­staf í lat­neska letr­inu. „Stundum þarf ég að eyða orði sem lætur í ljós mik­il­væga mein­ingu eða til­finn­ingu, eða ég sendi tví­tið mitt ekki yfir höfuð,“ skrifar Rosen í blogg­færslu sinni.

„Við viljum að allir um víða ver­öld geti tjáð sig á auð­veldan hátt á Twitter, svo við erum að reyna svo­lítið nýtt: við ætlum að setja víð­ari tak­mörk á reynslu, 280 stafa­bil, fyrir þau tungu­mál sem not­endur lenda í troðslu (sem eru öll utan japönsku, kín­versku og kóresku),“ skrifar Rosen enn fremur.

Mikill munur á milli tungumála

Í blogg­færsl­unni eru með­al­töl fyrir tvít á ensku og japönsku borin saman. Með­al­lengd tvíta á ensku er 34 stafa­bil miðað við 15 stafa­bil á japönsku. Þá ná níu pró­sent allra tvíta á ensku hámarks­fjölda stafa­bila, eða 140. Það er borið saman við 0,4 pró­sent allra tvíta á japönsku sem fylla út í rammann.

Þessi breyt­ing, ef hún verður ein­hvern tíma fyrir alla, mun eflaust hafa tölu­verð áhrif á það hvernig sam­fé­lags­mið­ill­inn er not­aður. Til þess að koma lengri pæl­ingum að hafa net­verjar brugðið á það ráð að senda skoð­anir sínar í tveimur liðum eða fleiri, ráð­ist í skamm­staf­anir og aðrar æfingar sem sett hafa svip sinn á sam­fé­lags­mið­il­inn.

Jafnvel þó það verði ekki skylda að senda lengri tvít þá má allt eins gera ráð fyrir að not­endur not­færi sér rýmri heim­ildir eins og þeir geta. Það er í mann­legu eðli.

„Twitter snýst um stutt­yrði. Það er það sem gerir þetta að frá­bærri leið til að fylgj­ast með því sem ger­ist. Tvít fjalla um aðal­at­riði og upp­lýs­ingar eða hugs­anir sem skipta máli. Það er eitt­hvað sem mun aldrei breyt­ast,“ skrifar Rosen.

Fyrir áhuga­sama þá eru fyrstu tvær efn­is­greinar þess­arar fréttar jafn langar og tvít mega vera, þe. 140 stafa­bil og svo 280.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár