Óld tán við Skæla gún á Kársnesi?

Bæjarráð Kópa­vogs­bæjar hefur sam­þykkt að úthluta lóðum í grennd við nýja bað­lónið Sky Lagoon á Kársnesi til tengds fyr­ir­tækis sem hefur áform um að byggja þar upp „Old Town“, afþrey­ing­ar­hverfi í gömlum íslenskum stíl.

Lóðirnar sem um ræðir eru samliggjandi við sjávarsíðuna á Vesturvör á Kársnesi. Þær verða í grennd við brúarsporð fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar.
Lóðirnar sem um ræðir eru sam­liggj­andi við sjáv­ar­síð­una á Vest­ur­vör á Kársnesi. Þær verða í grennd við brú­ar­sporð fyr­ir­hug­aðrar Foss­vogs­brúar.

Meiri­hluti bæj­ar­ráðs Kópa­vogs­bæjar sam­þykkti á fundi sínum á mið­viku­dag að lóð­unum við Vest­ur­vör 38a og 38b, sem eitt sinn áttu að nýt­ast undir fram­tíð­ar­höf­uð­stöðvar hins fallna flug­fé­lags WOW air, verði úthlutað til félags­ins Nature Experiences ehf. Málið verður tekið til afgreiðslu á næsta bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Kópavogi.

Nature Experiences hefur hug­myndir um að byggja á lóð­unum upp hverfi „í gömlum íslenskum stíl,“ svo­kall­aðan „Old Town“, þar sem boðið yrði upp á margs­konar afþr­ey­ingu, söfn og gisti­mögu­leika, mat­ar­upp­lif­anir, listir og menn­ingu. Um er að ræða svæði í grennd við við nýja bað­lónið, Sky Lagoon, sem liggur á odda Kárs­ness­ins við Kópa­vogs­höfn. Sömu menn standa í stafni hjá Nature Experiences og Nature Resort ehf., fyr­ir­tæk­is­ins sem hefur byggt upp bað­lónið.

Í erindi sem Ármann Kr. Ólafsson bæj­ar­stjóri í Kópavogi lagði fyrir bæj­ar­ráðs­fund­inn í vik­unni sagði að með úthlutun lóð­ar­innar til Nature Experiences mynd­að­ist tæki­færi fyrir skipu­lags­yf­ir­völd til þess að þróa áhuga­verða og spenn­andi byggð í sam­ráði við nýja lóð­ar­hafa.

Þau skil­yrði yrðu lögð á lóð­ar­haf­ana að þróa svæðið í sam­ræmi við fram­lagðar hug­myndir og breyttar áherslur sem kveðið er á um í nýju aðal­skipu­lagi bæj­ar­ins, en í því er svæðið skil­greint sem þró­un­ar­svæði m.a. vegna áætl­aðra breyt­inga og þró­unar sem tengj­ast Borg­ar­línu og nýrri starf­semi á Kársnesi. Gert sé ráð fyrir þéttri og vist­vænni byggð, sem alla jafna verði 2-4 hæðir, með bland­aðri land­notkun athafna­svæðis, íbúð­ar­svæðis og versl­unar- og þjón­ustu­starf­semi.

Bæjarfulltrúi Pírata andsnúin úthlutuninni

Ekki er algjör ein­hugur um þessa lóða­út­hlutun í bæj­ar­stjórn Kópavogs, en Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir bæj­ar­full­trúi Pírata bók­aði gegn mál­inu á bæj­ar­ráðs­fund­inum í vik­unni. Hún segir við Kjarnann að alveg óháð því hversu flottar hug­mynd­irnar um „Old Town“ séu hjá félög­unum sem vilja standa að upp­bygg­ing­unni, séu vinnu­brögð bæj­ar­ins „galin.“

Hún segir að stað­reyndin sé sú að þarna sé um að ræða lóð sem senni­lega sé ein sú verð­mætasta sem föl er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þótt víðar væri leitað, yst á Kársnesi með óskert útsýni. „Nú á að láta hana án þess að hún hafi nokkuð verið aug­lýst og þannig hafa engir aðrir fengið tæki­færi til þess að koma sínum hug­myndum á fram­færi og óska eftir lóð­inni,“ segir Sig­ur­björg Erla við Kjarnann.

„Þarna er verið í raun verið að fram­selja vald sveit­ar­stjórnar til að deiliskipu­leggja reit­inn til einka­að­ila. Þó að sveit­ar­stjórn hafi á end­anum loka­orðið þegar kemur að því að sam­þykkja skipu­lagið þá er þetta vafasöm aðferð enda fara hags­munir einka­að­il­ans, sem snúa að því að hámarka hagnað, og Kópa­vogs­bæjar/íbúa bæj­ar­ins ekki endi­lega saman. Það myndi gæta hags­muna bæj­ar­búa að deiliskipu­leggja fyrst og bjóða svo bygg­ing­ar­rétt­inn út í fram­hald­inu. Ég ætla að ræða þetta frekar í bæj­ar­stjórn næsta þriðju­dag en ég er von­lítil um að þess­ari ákvörðun verði snúið,“ segir Sig­ur­björg Erla einnig.

Fjórir full­trúar meiri­hlut­ans í bæj­ar­ráði létu gagn­bóka á fund­inum í vik­unni að eins hefði verið staðið að úthlutun lóð­ar­innar þegar WOW air var úthlutað lóð­inni undir nýjar höf­uð­stöðvar á sínum tíma.

Það, segir Sig­ur­björg Erla, eru að hennar mati „alls engin rök fyrir því að gera sama ruglið aftur.“

Alls konar og mögulega mathöll í Old Town

Umsókn Nature Experiences var send inn til Kópa­vogs­bæjar þann 30. apríl síð­ast­lið­inn, sama daga og Sky Lagoon á Kárs­nes­inu byrj­aði að taka á móti gestum. Undir hana rita þeir Gestur Þórisson og Eyþór Guð­jóns­son aðal­eig­endur og for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins. Í umsókn­inni segir að „Old Town“ verði byggður upp og hann­aður „með vísan til íslenskrar og sam­nor­rænnar menn­ingar og húsa­gerð­ar­listar“ og muni því falla vel að útliti Sky Lagoon.

„Kárs­nesið er sá staður þar sem Kópa­vogur byggð­ist fyrst upp og er því til­valið fyrir hverfi með ofan­greinda nálgun þar sem gömul þorp á Íslandi byggð­ust upp við sjó og einnig vegna þess að hluti afþrey­ing­ar­innar mun tengj­ast sjónum og líf­ríki hans,“ segja þeir Gestur og Eyþór í umsókn sinni, en þeir hafa hug á að „tengja Old Town við Kópa­vogs­höfn og bjóða upp á sigl­ingar“ á borð við veiði­ferðir, fugla- og nátt­úru­skoð­un­ar­ferðir.

Í umsókn þeirra segir að stefnt sé að því að hafa hluta hús­næð­is­ins fyrir lista­menn og skap­andi fyr­ir­tæki, til að „skapa grund­völl að enn fjöl­breytt­ara og áhuga­verð­ara sam­fé­lagi í Old Town“. „Fyr­ir­hugað er að setja upp sýn­ingar tengdri íslenskri nátt­úru og menn­ingu sem og mat­sölu­staði, bari, lítil brugg­hús, kaffi­hús og fleira sem höfðar til íbúa Kár­ness­ins þannig að þar mynd­ist skemmti­leg blanda inn­lendra og erlendra gesta. Í skoðun er einnig að opna mat­höll með opnu rými þar sem boðið verður upp á lif­andi tón­list,“ segir í umsókn­inni.

Þar eru einnig færð rök fyrir því að skyn­sam­legt sé að leyfa „einum öfl­ugum aðila“ að „stýra upp­bygg­ingu alls svæð­is­ins“, þar sem það auki líkur á að upp­bygg­ing gangi hratt og snurðu­laust fyrir sig, bæði tíma­lega og fjár­hags­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár