Norðurlöndin brautryðjendur í orkumálum í heiminum

Ný skýrsla Alþjóða­orku­mála­stof­un­ar­innar segir Norð­ur­löndin vera fyr­ir­mynd fyrir önnur lönd þegar kemur að orku­málum. Samnýt­ing raf­orku í Skand­in­avíu hófst fyrir 100 árum, árið 1915.

Mikilvægt er að heimurinn tileinki sér aðra orkugjafa en jarðefnaeldsneyti eigi markmið í loftslagsmálum að nást.
Mik­il­vægt er að heim­ur­inn til­einki sér aðra orku­gjafa en jarð­efna­elds­neyti eigi mark­mið í lofts­lags­málum að nást. Mynd: EPA

Orku­mála­ráð­herrar Norð­ur­land­anna hafa óskað eftir áætlun og grein­ar­gerð um fram­tíð­ar­mögu­leika á orku­mark­aði Norð­ur­landa. Alþjóða­orku­mála­stofn­unin álítur löndin vera braut­ryðj­endur í lofts­lags­málum, sam­kvæmt skýrslu stof­un­ar­innar sem birt var á mánu­dag.

Norð­ur­landa­ráð orku­mála­ráð­herra hitt­ust í Kaup­manna­höfn á þriðju­dag og ræddu nor­ræna orku­mark­að­inn og hvernig hægt er að tengja hann við orku­markað Evr­ópu­sam­bands­ins. Á vef Norð­ur­landa­ráðs segir að nor­ræni mark­að­ur­inn er stærsti þver­þjóð­legi orku­mark­aður í heimi. Nú séu 100 ár síðan fyrsti raf­orku­streng­ur­inn var lagður milli tveggja norð­ur­landa, þegar Danmörk og Svíþjóð tengd­ust árið 1915.

Maroš Šefčovič, fram­kvæmda­stjóri orku­mála innan Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), fund­aði einnig með nor­rænu ráð­herr­unum og lagði áherslu á að aukið sam­starf nágranna­ríkja væri nauð­syn­legt svo mögu­legt sé að hætta að brenna jarð­efna­elds­neyti.

„Við getum sýnt heim­inum hvað hægt er að ávinna sér með sam­vinnu milli nágranna­ríkja í stað ein­angr­unar,“ er haft eftir Lars Christian Lil­leholt, orku­mála­ráð­herra Dan­merkur, á vef Norð­ur­landa­ráðs. „Margir líta til Norð­ur­land­anna sem upp­skrift fyrir Evrópu þegar kemur að vist­vænni orku.“

Áætlunin og grein­ar­gerðin um fram­tíð­ar­mögu­leika á orku­mark­aði Norð­ur­landa verður unnin á kom­andi ári og rædd á næsta fundi orku­mála­ráð­herra Norð­ur­landa haustið 2016.

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP21 í París í des­em­ber mun Noð­ur­landa­ráð vera með sér­stakan skála þar sem verður umræðu­vett­vangur sendi­nefnda Norð­ur­land­anna og aðgengi fyrir fjöl­miðla­fólk. Noð­ur­landa­ráð hefur gefið það út að orku­mál verði í brennid­epli í umræðum sínum á ráð­stefn­unni og það sem ríkin ætla einna helst að leggja fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár