Karl Pétur og Þorbjörg Sigríður aðstoða Þorstein Víglundsson

Karl Pétur Jónsson og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir hafa verið ráðin sem aðstoð­ar­menn Þor­steins Víglunds­sonar, nýs félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra.

Karl Pétur er með BA próf í stjórn­mála­fræði og MBA gráðu. Hann hefur starfað sem ráð­gjafi í almanna­tengslum frá árinu 2009 og verið kvik­mynda­fram­leið­andi, en starf­aði hjá fjár­fest­inga­bank­anum Askar Capital frá 2007 til 2009. Þar á undan var hann stofn­andi og ráð­gjafi hjá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu Inntaki. Hann er vara­bæj­ar­full­trúi á Sel­tjarn­ar­nesi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og situr þar í skóla­nefnd og jafn­réttis­nefnd bæj­ar­ins.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir er lög­fræð­ingur að mennt, er með LL.M. gráðu og diplóma­gráðu í afbrota­fræði. Hún hefur verið deild­ar­for­seti laga­deildar Háskól­ans á Bifröst frá árinu 2015 og starf­aði fyrir það sem aðstoð­ar­sak­sókn­ari og deild­ar­stjóri ofbeld­is­brota­deildar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún hefur einnig verið aðstoð­ar­maður dóm­ara í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og unnið við rann­sókn­ar­störf hjá EDDU – Önd­veg­is­setri við HÍ við rann­sókn á ein­kennum naugð­un­ar­mála og máls­með­ferð þeirra.

Þorbjörg Sigríður var í öðru sæti á lista Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kosn­ing­unum í haust, og er því vara­þing­maður fyrir ráð­herr­ann sem hún hefur nú ráðið sig sem aðstoð­ar­maður hjá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár