Mótmæla harðræði lögreglu í Kólumbíu

Mótmæli hafa staðið yfir í Kólumbíu í á aðra viku. Upp­haf­lega voru það breyt­ingar á sköttum sem fólk mót­mælti en síðar varð það harð­ræði lög­reglu sem dró fólk af stað. Félaga­sam­tök segja að hátt á fjórða tug mót­mæl­anda hafi lát­ist vegna aðgerða lög­reglu.

Mótmælandi steytir hnefa í borginni Cali en þar hafa átök milli mótmælenda og lögreglu orðið hve hörðust í mótmælunum sem staðið hafa yfir frá því 28. apríl í Kólumbíu.
Mót­mæl­andi steytir hnefa í borg­inni Cali en þar hafa átök milli mót­mæl­enda og lög­reglu orðið hve hörð­ust í mót­mæl­unum sem staðið hafa yfir frá því 28. apríl í Kólumbíu. Mynd: EPA

Mótmæli hafa staðið yfir í Kólumbíu síðan 28. apríl síð­ast­lið­inn. Upp­haf­lega beindust mót­mælin gegn fyr­ir­hug­uðum skatta­breyt­ingum sem Ivan Duque, for­seti lands­ins, vildi koma til leiðar til þess að reyna að reisa efna­hag­inn við eftir efna­hagslægð­ina sem af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum hlaust. Í kjöl­far mik­illar hörku lög­reglu­yf­ir­valda í garð mót­mæl­anda tóku mót­mælin ákveðnum breyt­ingum, fleiri tóku þátt og mót­mælin beindust gegn harð­ræði lög­reglu.

Á Twitter-síðu félaga­sam­tak­anna Temblores segir að á fyrstu tíu dögum mót­mæl­anna, fram að morgni laug­ar­dags, hefðu 39 fallið í val­inn í mót­mæl­unum vegna aðgerða lög­reglu. Félaga­sam­tökin halda utan um til­kynn­ingar um ofbeld­is­verk af hendi lög­reglu og hefur The Guardian stuðst við tölur frá Temblores í sínum frétta­flutn­ingi af mót­mæl­unum. Opin­berar tölur eru lægri, þær segja að á fyrstu átta dögum mót­mæl­anna hefðu 26 fallið í val­inn. Til sam­an­burðar segja Temblores að á sama tíma­bili hafi 37 lát­ist vegna aðgerða lög­regl­unnar.

Frumvarp forsetans hefur verið dregið til baka

Mót­mæla­fundir voru skipu­lagðir af stærstu stétt­ar­fé­lögum lands­ins og verka­fólk streymdi að. Með í hóp­inn slóst fólk úr milli­stétt sem hafði áhyggjur af því að nýja lög­gjöfin myndi steypa þeim í fátækt. Tæplega helm­ingur lands­manna í Kólumbíu býr við fátækt og hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn ein­ungis aukið mis­skipt­ingu þar í landi.

Skatta­laga­breyt­ingin sem um ræðir fólst meðal ann­ars í því að lækka skatt­leys­is­mörk. Breyt­ingin hefði haft áhrif á alla þá sem hafa meira en 2,6 millj­ónir pesóa í mán­að­ar­laun, eða rétt um 85 þús­und krónur. Þar að auki stóð til að fella á brott ýmsar und­an­þágur sem standa ein­stak­lingum til boða sem og að hækka ýmsa skatta sem lagðir eru á fyr­ir­tæki.

Síðasta sunnu­dag dró Iván Duque, for­seti lands­ins, frum­varpið til baka. Engu að síður hafa mót­mælin haldið áfram enda þusti fólk út á götur til þess að mót­mæla við­brögðum stjórn­valda og hörku lög­regl­unnar. Fjöldi mót­mæl­enda óx eftir því sem á leið og í hópnum má nú finna kenn­ara, lækna, nema, verka­lýðs­leið­toga og aðgerð­ar­sinna í bland við íbúa lands­ins sem aldrei hafa mót­mælt á götum úti áður, líkt og New York Times fjallar um.

Í frétt mið­ils­ins er haft eftir Helenu Osorio, 24 ára gömlum hjúkr­un­ar­fræð­ingi að hún sé í sárum vegna ástands­ins í land­inu. „Það eina sem við getum gert til þess að láta raddir okkar heyr­ast er að mót­mæla,“ segir Helena sem mót­mælti í höf­uð­borg­inni Bogotá. „Og fyrir það erum við drepin.“

Annar við­mæl­andi mið­ils­ins, hin 28 ára gamla Mayra Lemus sem starfar sem kenn­ari, sagði mót­mælin snú­ast um meira en laga­breyt­ingar. „Þetta snýst ekki bara um breyt­ingar á skatta­lögum. Þetta snýst um spill­ingu, mis­skipt­ingu og fátækt. Og við unga fólkið höfum fengið okkur full­södd af þessu öllu saman.“

Kórónuveiran hefur leikið landið grátt

Mótmælin eru að hluta til fram­hald mót­mæla­öldu sem gekk yfir Suður-Ameríku á síð­ari hluta árs­ins 2019 þegar fólk mót­mælti meðal ann­ars á götum Bólivíu, Síle, Kólumbíu, Ekvador Perú og Ník­aragva. Mótmæli innan hvers lands voru hver með sínu sniði en öll áttu þau það sam­eig­in­legt að vera beint gegn spill­ingu stjórn­valda.

Síðan kom heims­far­aldur kór­ónu­veiru sem bitn­aði illa á íbúum Suður-Ameríku á árinu 2020. Kirkju­garðar fyllt­ust, fólk lá fyrir dauð­anum á göngum spít­ala og fólk beið í röðum fram eftir nóttu í veikri von um að geta keypt súr­efn­iskúta til þess að halda smit­uðum ást­vinum á lífi.

Efna­hag­ur­inn hefur tekið dýfu í kjöl­farið. Sam­dráttur í löndum álf­unnar var að með­al­tali sjö pró­sent á síð­asta ári og atvinnu­leysi hefur auk­ist mikið, sér­ílagi meðal ungs fólks.

Og staðan hefur ein­ungis versnað.

Á fyrstu mán­uðum þessa árs hefur P1 afbrigði kór­ónu­veirunnar, sem kallað hefur verið brasil­íska afbrigðið, valdið miklum usla í álf­unni og tölur yfir þá sem lét­ust úr kór­ónu­veirunni fóru að hækka á ný eftir að afbrigðið fór að dreifa sér.

Fyr­ir­hug­aðar skatta­breyt­ingar voru því líkt og neisti sem kveikti í púð­ur­tunnu enda hefði einn angi þeirra haft bein áhrif á vöru­verð. Því tóku íbúar Kólumbíu ekki þegj­andi og hljóða­laust, eftir að hafa reynt að draga fram lífið við krapp­ari kjör svo mán­uðum skiptir.

Stjórnvöld hafa kennt skæruliðum um ofbeldið

Samkvæmt umfjöllun BBC hafa þar­lend stjórn­völd kennt vinstri sinn­uðum upp­reisn­ar­seggjum um ofbeldið. Þau segja með­limi Þjóð­frels­is­hers Kólumbíu (ELN) hafa kynnt undir mót­mæl­unum ásamt and­ófs­mönnum úr röðum skæru­liða­hreyf­ing­ar­innar FARC, þeim sem ekki hafa sam­þykkt frið­ar­sam­komu­lag FARC við stjórn­völd frá árinu 2016.

„Ofbeldið var kerf­is­bundið, framið vís­vit­andi og það var fjár­magnað af glæpa­sam­tökum,“ er haft eftir Diego Molano, varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins, í frétt BBC. Lög­reglu­yf­ir­völd halda því fram að í mörgum til­vikum hafi lög­reglu­þjónar verið beittir ofbeldi við skyldu­störf, er þeir reyndu að hindra glæpa­menn frá því að hnupla úr versl­unum og bera eld að stræt­is­vögnum, svo dæmi séu tekin.

For­set­inn hefur sagt að stjórn­völd séu reiðu­bú­inn til að eiga í sam­tali við þjóð­ina. Hann til­kynnti nýlega um að settur hafi verið á lagg­irnar vett­vangur til að hlusta á íbúa lands­ins og móta með þeim lausnir á þeim vanda­málum sem að land­inu steðja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár