Segir veiðigjald vera landsbyggðarskatt sem verði að lækka

Bæj­ar­stjór­inn í Vest­manna­eyjum segir að þeir pen­ingar sem fyr­ir­tæki sveit­ar­fé­lags­ins greiða í veiði­gjöld séu betur komnir þar en „í rík­is­hít­inni.“

Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Íris Róberts­dóttir er bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum. Mynd: Samsett

Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, segir að útgerð­ar­fyr­ir­tæki í sveit­ar­fé­lag­inu hafi greitt yfir einn millj­arð króna í veiði­gjöld á síð­asta fisk­veiði­ári sem lauk 1. sept­em­ber. Það hafi verið helm­ings­hækkun frá árinu á undan. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Íris að pen­ing­arnir væru „betur komnir hér í Eyjum, þar sem þeir urðu til, en í rík­is­hít­inni. Þennan lands­byggð­ar­skatt verður að lækka.“

[links]Veiði­gjöld hafa fram til þessa verið byggð á afkomu sjáv­ar­út­vegs­ins tvö til þrjú ár aftur í tím­ann. Mikill þrýst­ingur hefur verið frá útgerð­ar­fyr­ir­tækjum að lækka gjöldin og breyta fyr­ir­komu­lag­inu þannig að það end­ur­spegli betur rekstr­ar­nið­ur­stöðu hverju sinni.

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2018 áttu veiði­gjöld að vera tíu millj­arðar króna í ár en end­ur­met­inni áætlun segir að þau verði sjö millj­arðar. Gert er ráð fyrir sömu upp­hæð á næsta ári, en nýtt frum­varp, sem á að færa við­mið­un­arár gjald­tök­unnar nær í tíma, verður lagt fram í haust. Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mun leggja frum­varpið fram og hefur lýst því yfir að það muni líta dags­ins ljós í kringum næstu mán­aða­mót. Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar lagði fram frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum seint á síð­asta þingi, sem hefði leitt að sér að þau hefðu lækkað um 1,7 millj­arða króna, meðal ann­ars vegna afsláttar til smærri fyr­ir­tækja. Það frum­varp fékk ekki braut­ar­gengi og var dregið til baka. Hæstu veið­i­­­­­gjöldin greiddi sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­veg­­­­ur­inn vegna fisk­veið­i­­ár­s­ins 2012/2013, en þá greiddi útgerðin 12,8 millj­­­­arða króna í rík­­­­is­­­­sjóð vegna veið­i­­gjalda.

[adspot]Staða fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi er mis­jöfn. Heilt yfir hefur arð­semi grein­ar­innar aldrei verið meiri en á síð­ast­liðnum árum. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­­­­­fyr­ir­tækja frá byrjun árs 2010 og út árið 2016 voru 65,8 millj­­­­­arðar króna. Eigið fé þeirra frá hruni og til loka árs 2016 batn­aði um 300 millj­­­­­arða króna. Því hefur hagur sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­veg­­­­­ar­ins vænkast um 365,8 millj­­­­­arða króna á örfáum árum.

Þá greindi Samherji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, nýverið frá afkomu sinni á síð­asta ári, þegar sam­stæðan hagn­að­ist um 14,4 millj­arða króna. Alls nemur hagn­aður Samherja á síð­ustu sjö árum 100 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæð­unnar er 94 millj­arðar króna.

Stór við­skipti hafa auk þess átt sér stað með eign­ar­hluti í fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi und­an­farið. Brim keypti til að mynda 35 pró­sent hlut í HB Granda fyrir tæpa 23 millj­arða króna. Eftir að Guð­mundur Krist­jáns­son, eig­andi Brim, sett­ist í for­stjóra­stól HB Granda í kjöl­farið keypti HB Grandi útgerð­ar­fé­lagið Ögurvík af Brim á 12,3 millj­arða króna. Brim hefur síðar breytt nafni sínu í Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur.

Stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki Vest­manna­eyja er Ísfé­lagið. Eigendur þess eru einnig stærstu eig­endur Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár