Upp og niður - Frekari styrking í kortunum?

Spennan í hag­kerf­inu er aug­ljós. Mikill gangur, og spjótin bein­ast að gengi krón­unnar. Hvert er það að fara?

Eftir upp­sveiflu á verð­bréfa­mörk­uðum í gær, í kjöl­far vaxta­lækk­unar úr 5 í 4,75 pró­sent, þá lækk­uðu þau aftur í dag.

Mark­að­ur­inn er „þunnur“ þessi miss­erin, eins og einn við­mæl­enda Kjarnans komst að orði, og lækkar mark­aðsvirði fyr­ir­tækja oft í umfangslitlum við­skiptum.

Dægursveiflur

Í dag lækk­aði vístitalan um 1,67 pró­sent, og er mark­aðsvirði félaga í kaup­höll­inni, sam­an­lagt, um þús­und millj­arðar króna.

Dæg­ur­sveiflur mark­að­ar­ins segja lítið um hvað er að ger­ast, undir niðri, og þó; þegar upp er staðið grund­vall­ast verð­bréfa­við­skipti af fjár­magns­hreyf­ingum og tíma­setn­ingum þeirra, og líkt alltaf, þá þreyt­ast grein­endur ekki á því að finna skýr­ingar á hinum ýmsu sveiflum.

Valdimar Ármann, for­stjóri GAMMA, segir í við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í dag að með vaxta­lækk­un­inni sé Seðla­bank­inn að færa ávinn­ing af góðum gangi í efna­hags­málum til heim­ila og fyr­ir­tækja, og það sé hægt að ganga mun lengra. „Það sem mér fannst þó áhuga­vert í því sem kom frá Seðla­bank­anum er að þeir stað­festa það að þeir telji að hag­kerfið búi við sterkara jafn­væg­is­gengi en áður vegna jákvæðrar erlendr­ar eigna­stöðu og gjald­eyris æðis til lands­ins. En að sama skapi eru þeir enn ekki að fjalla um breytta stöðu á jafn­vægis­vöxtum. Það vantar skýr­ingu á því, vegna þess að ef jafn­væg­is­raun­gengi er orðið sterkara og hag­kerfið stendur á sterk­ari stoðum en áður, þá hljóta jafn­væg­is­raun­vextir lands­ins að hafa lækkað. Þeir gefa í skyn að jafn­vægisvextir séu í kringum 3%, en það er hægt að reikna út að vext­irnir séu frekar á bil­inu 1,52%. Það er því svig­rúm til að lækka stýri­vexti enn frekar,“ segir Valdimar í Morg­un­blað­inu.

Breyttir tímar, ótrúleg hagsaga

Óhætt er að segja íslenska hag­kerfið hafi búið við gjör­breyttan veru­leika, und­an­farin fimm ár, en það hefur átt að venj­ast í gegnum stutta sögu. Þar hafa nokkrir mik­il­vægir þættir skipt sköpum.

Til að gera langa og flókna sögu örstutta, þá er fyrst að nefna við­brögðin við neyð­ar­að­stæð­unum haustið 2008, það er neyð­ar­lög og fjár­magns­höft. Þessar gríð­ar­lega umfangs­miklu og stóru aðgerðir mót­uðu aðstæð­urnar fyrir end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og síðan end­ur­reisn­ina sjálfa.

Frá 2010 hefur ævin­týra­legur vöxtur ferða­þjón­ustu haft mikil áhrif á gang efna­hags­mála og komið til við­bótar við end­ur­reistn­ar­starfið. Á því ári komu 454 þús­und erlendir ferða­menn til lands­ins en gert er ráð fyrir að þeir verði 2,3 millj­ónir á þessu ári. Á ein­ungis sex árum hefur fjöld­inn meira en fimm­fald­ast.

Fyrir lítið hag­kerfi, með aðeins 200 þús­und manna vinnu­markað, þá getur mikið gjald­eyr­is­inn­streymi sem fylgir slíkum vexti valdið mik­illi þenslu.

Einmitt það hefur gerst. Í fyrra tókst síðan að ljúka samn­ingum vegna slita­búa föllnu bank­anna sem sköp­uðu mik­inn ávinn­ing fyrir íslenska ríkið, og þjóð­ar­búið í heild, því á einni nóttu hvarf stór hluti af erlendum skuldum þjóð­ar­búss­ins.

Und­an­farin miss­eri hefur gengi krón­unnar styrkst mikið og er það nú farið valda mörgum áhyggjum, eins og rakið var í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í gær. Banda­ríkja­dalur er nú kom­inn í rúm­lega 100 krónur en hann var 140 krónur fyrir ríf­lega einu og hálfu ári, og evran í 112 en hún var í 150 krónum fyrir einu og hálfu ári. Raun­gengi krón­unnar er nú á svip­uðum slóðum og það var fyrir ára­tug, þegar Banda­ríkja­dalur kost­aði um 60 krónur.

Margir muna eftir þeim tíma og þeirri miklu einka­neyslu sem fylgdi því hvað hlutir voru ódýrir í útlöndum.

Fátt bendir til annars en sterkari krónu

Samkvæmt spá Seðla­banka Íslands, þá eru miklar líkur til þess að gengi krón­unnar haldi áfram að styrkj­ast á næstu miss­erum. Öll ytri skil­yrði benda einnig ein­dregið til þess, meðal ann­ars mik­ill afgangur af vöru- og þjón­ustu­jöfn­uði en hann var 155 millj­arðar í fyrra og útlit fyrir að hann verði einnig mik­ill á þessu ári.

Hvað gera lífeyrissjóðirnir?

Einn óvissu­þáttur, þegar kemur að gengi krón­unnar og stöð­unni á verð­bréfa­mörk­uðum, eru ákvarð­anir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um fjár­fest­ingar erlendis.

Eignir þeirra námu 3.673 millj­örðum króna 4. maí síð­ast­lið­inn, og voru eignir þeirra erlendis 823 millj­arðar, eða sem nemur 22,4 pró­sentum af heild­inni. Á tveimur mán­uðum hækk­aði erlenda eignin um 53 millj­arða.

Samkvæmt lögum hafa sjóð­irnir mögu­leika á því hafa 50 pró­sent eigna sinna erlendis en flestir sjóð­irnir eru langt frá þeim hlut­föllum. Spurn­ingin er; hvað ger­ist ef þeir fara í miklu meira mæli að fjár­festa erlendis, til að dreifa áhætt­unni meira?

Líklegt má telja að það myndi draga úr þrýst­ingi fyrir styrk­ingu krón­unnar en að sama skapi gæti bak­beinið í verð­bréfa­mark­aðnum á Íslandi orðið veik­ara. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga á bil­inu 40 til 50 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum á Íslandi og er þátt­taka þeirra í við­skiptum frá degi til dags mik­il­vægur þáttur í við­skipt­unum.

Ef það yrði skrúfað að ein­hverju leyti fyrir þessa þátt­töku, og vægi þeirra í þeim minnkað, gæti það þýtt tölu­vert verð­fall á mörk­uðum og jafn­vel enn meiri sveiflur og upp og niður, en vandi er þó um slíkt að spá, eins og dæmin úr for­tíð­inni sanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár