Vaxtavopnið dugar skammt gegn styrkingunni

Styrking krón­unnar hefur verið hröð og veldur áhyggjum í hag­kerf­inu.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands voru lækk­aðir í morgun úr 5 pró­sent í 4,75 pró­sent. Þessu höfðu stjórn­völd kallað eftir, þó vafa­lítið hafi verið vilji til þess hjá þeim að vextir myndu lækka enn meira. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri lét hafa eftir sér að ekki væri svig­rúm fyrir meiri vaxta­lækkun.

Það hefur mátt sjá það á orðum ráða­manna að þeir telji að vaxta­lækkun muni vinna gegn styrk­ingu krón­unnar, sem er farin að valda miklum áhyggjum, ekki síst í ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­út­vegi og tækni­geir­anum.

Við­brögðin á mark­aði í dag komu ekki mikið á óvart, þegar kemur að hluta­bréfa­mark­aði, en þar sáust grænar tölur hækk­unar. Vísi­talan hækk­aði um 1,98 pró­sent, sem telst mikið fyrir dag­lega þróun.

En vaxta­lækk­unin leiddi ekki til þess að gengi krón­unnar veikt­ist gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Þvert á móti hélt það áfram að styrkj­ast. Banda­ríkja­dalur kostar nú rúm­lega 100 krónur, evra 112 krónur og pundið 130 krónur.

[adspot]

Fyrir rúm­lega einu og hálfu ári kost­aði Banda­ríkja­dalur 140 krónur evra 150 krónur og pundið 206 krónur, en breyt­ingin eftir Brexit-kosn­ing­una í júní í fyrra hefur verið mikil gagn­vart pund­inu.

Óhætt er að tala um að sveifl­urnar á geng­inu hafi verið dramat­ískar, en ekk­ert sem Íslend­ingar kann­ast ekki við úr sög­unni. Hagsaga Íslands er rús­sí­ban­areið þegar horft er til geng­is­ins.

Raun­gengið er nú á svip­uðum slóðum og það var fyrir hrunið, þegar Banda­ríkja­dalur var á ríf­lega 60 krónur. Að því leyt­inu til er staðan svipuð og á því herr­ans ári 2007, sem er orðið alþjóð­legt tákn óráðsíu og bólu­mynd­unar. Ekki bara á Íslandi heldur á alþjóða­mörk­uðum.

Er hætta á ferðum? Getur þessa mikla styrk­ing leitt til erf­ið­leika?

Nokkur atriði má telja til þegar hugað er að spurn­ingum sem þessum.

1. Útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins finnur veru­lega fyrir því hversu hröð styrk­ing krón­unnar hefur verið. Mikill vöxtur í ferða­þjón­ust­unni hefur verið drif­kraft­ur­inn í miklum hag­vexti und­an­farin miss­eri en hann mæld­ist 7,2 pró­sent í fyrra.

Þessum mikla vexti hefur fylgt mikið gjald­eyr­is­inn­streymi sem ýtir undir styrk­ingu krón­unnar. Gert er ráð fyrir að það verði yfir 500 millj­arðar á þessu ári, sem er langtum meira en hjá öðrum geirum atvinnu­lífs­ins. Að þessu leyti má segja að ferða­þjón­ustan, og hraður vöxtur hennar, sé meg­in­á­stæðan fyrir því að mörg fyr­ir­tækja í grein­inni finna fyrir minni fram­legð í rekstr­inum en áður. Vöxt­ur­inn hefur ein­fald­lega leitt til þess að íslenska krónan hefur risið hratt.

2. Launa­hækk­anir, sem samið var um í kjara­samn­ingum, koma einnig inn í þessa jöfnu. Þær hafa verið mjög skarpar, í sögu­legu sam­hengi, og hækk­uðu laun til að mynda um 4,5 pró­sent 1. maí síð­ast­lið­inn. Þó ytri skil­yrði hafi verið hag­felld und­an­farin miss­eri, meðal ann­ars vegna lágrar inn­fluttrar verð­bólgu (lágt olíu­verð, m.a.), gæti þessi hraða launa­hækkun, ofan í minnk­andi fram­legð, leitt til erf­ið­leika hjá fyr­ir­tækjum sem hafa tekjur sínar í erlendri mynt. Þegar hafa komið fram vís­bend­ing­arum að fyr­ir­tæki séu komin að þol­mörkum, og hafa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, meðal ann­ars HB Grandi, nefnt að sterkt gengi krón­unnar þurrki upp ávinn­ing af sumri starf­semi og því þurfi að grípa til hag­ræð­ing­ar­að­gerða.

3. Það sést vel hvað styrk­ing krón­unnar hefur verið hröð þegar horft er á stærsta eigna­mark­að­inn á Íslandi í erlendri mynt, það er fast­eigna­mark­að­inn. Í fyrra hækk­aði fast­eigna­verð á Íslandi um 40 pró­sent, mælt í Banda­ríkja­dal. Hvergi í heim­inum hefur verið nándar nærri eins mikil hækkun, sé horft til þró­aðra ríkja. Spár gera ráð fyrir að 15 til 20 pró­sent hækkun fast­eigna­verðs á ári haldi áfram næstu tvö ár. Þar er grund­vallar­á­stæðan ekki síst sú, að mikil vöntun er á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ekki síst litlum og með­al­stórum íbúðum.

4. Hin svo­nefndu vaxta­mun­ar­við­skipti (Carry Trade) voru áber­andi fyrir um ára­tug á Íslandi, þar sem erlendir fjár­festir náðu að ávaxta eignir sínar betur á Íslandi á ann­ars staðar sökum mik­ils vaxta­munar. Þessi við­skipti hafa alls ekki verið eins áber­andi nú og þá, en er gjald­eyr­is­inn­streymið núna allt ann­ars eðlis. Það er að segja frá ferða­mönnum sem koma til lands­ins og eyða pen­ingum í vörur og þjón­ustu. Þá hafa bank­arnir einnig verið að tengja sig betur inn á erlenda mark­aði með skulda­bréfa­út­gáfu. Þeir fá nú betri kjör á lán en áður og njóta góðs af því að staða efna­hags­mála hefur batnað hratt á Íslandi, sé horft til helstu hagtalna.

Innkoma vog­un­ar­sjóða inn í beint eign­ar­hald á íslensku fjár­mála­kerfi, með kaupum á 30 pró­sent hlut í Arion banka, er hugs­an­lega eitt­hvað sem gæti ýtt undir enn meiri þrýst­ing á styrk­ingu krón­unnar. Sjóð­irnir veðja með styrk­ingu krón­unnar og hag­stæðu gengi gagn­vart til dæmis Banda­ríkja­dal, sem eykur virði eigna þeirra. Eins og sagan sýnir, og reynslu­saga sumra þeirra sjóða sem eiga í hlut, þá svífast þeir einskis í því að ná sínu fram.

5. Samhliða algjörri kúvend­ingu þegar kemur að skuldum þjóð­ar­búss­ins við útlönd - þegar slitabú gömlu bank­anna hurfu úr hag­kerf­inu, ef svo má segja - þá hefur skap­ast alveg nýr veru­leiki. Við­mæl­endur Kjarnans segja stöðu hag­kerf­is­ins vissu­lega aðra og betri en hún var, en það sé ástæða til að ótt­ast að krónan gæti styrkst mikið til við­bótar við það sem nú er. Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var jákvæður um 155 millj­arða í fyrra, og fyrir lítið hag­kerfi með ein­ungis 200 þús­und ein­stak­linga á vinnu­mark­aði, og sjálf­stæða mynt, þá geti þessi heild­ar­mynd verð­lagt krón­una á allt öðrum stað núna en margir hafa verið að gera ráð fyrir.

Þegar allt er saman tekið þá blasir við að hag­stjórn stjórn­valda, sveit­ar­fé­laga, fyr­ir­tækja, stétt­ar­fé­laga og Seðla­banka Íslands verður krefj­andi á næstu miss­erum, þó engin ástæða sé til að örvænta enn sem komið er. Eins og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur bent á þá gæti komið til þess að þjóð­hags­var­úð­ar­tæki (lækkun á við­miðun veð­hlut­falla lána, úr 85 í 75 pró­sent, t.d.) þurfi til að styrkja hag­stjórn­ina og koma í veg frek­ari ofhitn­un­ar­ein­kenni í okkar litla hag­kerfi, því vaxta­vopnið dugar skammt í því verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár