Varar við villandi markaðssetningu varðandi kolefnisjöfnun

Umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur gerir athuga­semdir við hvernig kolefn­is­jöfnun er víða mark­aðs­sett hér á landi í sér­stöku minn­is­blaði sem hann rit­aði að beiðni sér­fræð­inga­hóps.

Ástæða þykir að vara við vill­andi mark­aðs­setn­ingu sem höfð hefur verið uppi af aðilum sem bjóða til sölu kolefn­is­jöfnun með skóg­rækt, annað hvort beint eða sem hluta af öðrum við­skiptum – svo sem kaupum á elds­neyti.

Þetta kemur fram í sér­stöðu minn­is­blaði sem Stefán Gíslason umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur tók saman fyrir hóp fag­fólks á sviði nátt­úru­vís­inda. Hópurinn er breið­fylk­ing, um 25 manns, sem spannar fólk frá háskóla­sam­fé­lag­inu, helstu nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum lands­ins, vernd­ar­stofn­unum, nátt­úru­stof­unum auk nokk­urra nátt­úru­fræð­inga á eft­ir­launum.

Hópurinn fékk á dög­unum Stefán til að taka saman upp­lýs­ingar um kolefn­is­jöfnun og kolefn­is­bind­ingu í minn­is­blaði sem Kjarninn hefur undir höndum.

Kolefnisjöfnun ekki „vottorð til þess að menga meira“

Í umræðu um lofts­lags­mál hefur kolefn­is­jöfnun notið mik­illa vin­sælda en á vef­síðu Umhverf­is­stofn­unar er kolefn­is­jöfnun skil­greind með eft­ir­far­andi hætti sam­kvæmt lögum um lofts­lags­mál:

„Þegar aðili hlut­ast til um aðgerðir ann­ars aðila til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og/eða binda kolefni úr and­rúms­lofti og notar stað­fest­ingu á slíkum sam­drætti eða bind­ingu til að jafna út sína eigin losun að hluta eða öllu leyti.“

Umhverf­is­stofnun tekur sér­stak­lega fram að kolefn­is­jöfnun sé ekki „vott­orð til þess að menga meira“ heldur eigi hún ávallt að koma í kjöl­far aðgerða til sam­dráttar. Til þess að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum þurfi fyrst og fremst að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda með því að draga úr neyslu og þar með myndun úrgangs, end­ur­vinna þann úrgang sem óhjá­kvæmi­lega fellur til, velja vist­vænar sam­göngur og lofts­lagsvænna matar­æði, minnka mat­ar­sóun, nýta hluti betur og lengur og temja okkur orku­sparnað.

Hugtökunum kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun ruglað saman

Fram kemur í fyrr­nefndu minn­is­blaði að skóg­rækt sé ein þeirra aðferða sem hægt er að beita til kolefn­is­jöfn­unar. „Aðferðin er nátt­úru­leg að því leyti að með ljóstil­lífun safna trén í sig kolefni úr and­rúms­loft­inu allan þann tíma sem trén eru í vexti. Með því einu að gróð­ur­setja tré er þannig komið af stað ferli sem mun binda kolefni jafnt og þétt næstu ára­tug­ina, að því til­skildu að tréð nái að vaxa og dafna.“

Þá er rakið á því að hug­tök­unum kolefn­is­bind­ingu og kolefn­is­jöfnun sé ruglað saman. „Kolefn­is­bind­ing er hvert það ferli sem tekur til sín koldí­oxíð úr and­rúms­loft­inu og bindur það sem kolefni, hvort sem er í gróðri, jarð­vegi, bergi eða ein­hverju öðru. Hins vegar er ekki hægt að tala um kolefn­is­jöfnun fyrr en bind­ingin hefur átt sér stað með sann­an­legum hætti og að upp­fylltum nokkrum grund­vall­ar­skil­yrðum.“

Tekur 50 til 100 ár fyrir 10 tré að binda 1 tonn

Stefáni, höf­undi minn­is­blaðs­ins, þykir ástæða að hafa uppi varn­að­ar­orð varð­andi tvo þætti sem oft­ast virð­ast snið­gengnir í umræð­unni.

Í fyrsta lagi nefnir hann tíma­þátt­ur­inn. „Eins og fram hefur komið binda tré kolefni svo lengi sem þau eru í vexti. Hér­lendis er algengt að miðað sé við 50 til 100 ára vaxt­ar­tíma í þessu sam­hengi og gjarnan miðað við að á þessum tíma nái hvert tré að binda sem sam­svarar um það bil 100 kíló­grömmum koldí­oxíðí­gilda (CO2íg). Í sam­ræmi við það er gjarnan miðað við að gróð­ur­setja þurfi 10 tré til að binda 1 tonn CO2íg og að þar með sé búið að kolefn­is­jafna losun upp á 1 tonn.

Í þessu sam­bandi er afar mik­il­vægt að und­ir­strika að kolefn­is­jöfn­unin á sér ekki stað þegar umrædd 10 tré eru gróð­ur­sett, heldur þegar trén eru full­vaxin. Tíu tré sem gróð­ur­sett eru gagn­gert á árinu 2022 til að binda 1 tonn af koldí­oxíði, til dæmis úr útblæstri bif­reiðar það sama ár, ná sem sagt ekki að ljúka því hlut­verki sínu fyrr en að 50 til 100 árum liðnum. Þá fyrst er hægt að tala um að búið sé að kolefn­is­jafna umrætt tonn,“ segir í minn­is­blað­inu.

Skortur á rannsóknum á landinu sem ætlað er skógrækt

Í öðru lagi fjallar Stefán um líf­fræði­leg fjöl­breytni. „Svo virð­ist sem ekki sé gef­inn nægur gaumur að líf­fræði­legri fjöl­breytni í umræð­unni hér­lendis um kolefn­is­jöfnun með skóg­rækt.“ Fram kemur í minn­is­blað­inu að þessi veik­leiki eigi sér einkum tvær birt­ing­ar­myndir.

„Annars vegar virð­ist oft skorta nokkuð á rann­sóknir á grunn­á­standi þess lands sem ætl­unin er að taka undir skóg­rækt­ina. Þetta á reyndar bæði við um rann­sóknir á því líf­ríki sem fyrir er – lág­plöntur, háplöntur, jarð­vegs­líf­verur, skor­dýr, fuglar og svo fram­vegis – og um kolefn­is­bú­skap þessa sama lands.

Hins vegar má draga í efa að næg aðgát sé höfð varð­andi gróð­ur­setn­ingu inn­fluttra teg­unda sem að ein­hverju leyti er óvíst hvernig muni haga sér við nýjar aðstæður. Þetta á bæði við um áhrif þess­ara teg­unda á það líf­ríki sem fyrir er að óbreyttu og um hætt­una á að þessar teg­undir verði ágengar í íslenskri nátt­úru sam­fara öðrum umhverf­is­breyt­ingum, sem gæti síðar leitt til veru­legrar útbreiðslu og nei­kvæðra áhrifa á líf­fræði­lega fjöl­breytni utan þeirra svæða sem upp­haf­lega var ætl­unin að taka undir skóg­rækt­ina.“

Lítil áhersla lögð á að fyrirbyggja misskilning um kolefnisjöfnun

Hvað tíma­þátt­inn varðar telur Stefán ástæðu til að vara við vill­andi mark­aðs­setn­ingu sem höfð hafi verið uppi af ein­hverjum þeirra aðila sem bjóða til sölu kolefn­is­jöfnun með skóg­rækt, annað hvort beint eða sem hluta af öðrum við­skiptum – svo sem kaupum á elds­neyti, eins og áður segir.

Stefán bendir á að gefið hafi verið í skyn að með því að greiða fyrir gróð­ur­setn­ingu og vöktun trjáa sem ná að binda til­tekið magn koldí­oxíðs á líf­tíma sínum sé búið að jafna út til­tekna kolefn­islosun greið­and­ans á einu ári. Nýverið hafi verið gerðar end­ur­bætur á heima­síðum þar sem boðið sé upp á við­skipti að þessu tagi, þannig að þar sé nú alla jafna talað um kaup á kolefn­is­bind­ingu á móti til­tek­inni losun þar sem áður hafi verið talað um kolefn­is­jöfnun. Eftir sem áður virð­ist lítil sem engin áhersla lögð á að fyr­ir­byggja þann hugs­an­lega mis­skiln­ing kaup­and­ans að bind­ingin eigi sér stað strax eftir að gengið hefur verið frá kaup­unum.

„Mik­il­vægi þess að hafa tíma­þátt­inn í huga hefur aldrei verið meira en nú, þegar ljóst er að draga þarf mjög veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fyrir árið 2030. Binding í skóg­rækt gerir vissu­lega sitt gagn, en árið 2030 verður tré sem gróð­ur­sett er á þessu ári aðeins búið að binda óveru­legan hluta þeirra 100 kg sem því er ætlað að binda á líf­tíma sínum.

Gera verður þá kröfu til allra þeirra sem fjalla um kolefn­is­bind­ingu og kolefn­is­jöfnun, þ.m.t. stjórn­valda, opin­berra stofn­ana og selj­enda kolefn­is­bind­ingar, að gerður sé skýr grein­ar­munur á bind­ingu sem þegar hefur átt sér stað og bind­ingu sem búið er að leggja drög að og mun raun­ger­ast á næstu árum eða ára­tugum.“

Ófrávíkjanleg krafa að kolefniseiningar séu vottaðar „ex-post“ einingar

Stefán segir að þessi munur end­ur­speglist í útgefnum kolefn­is­ein­ingum, sem skipt­ist í „kolefn­is­ein­ingar í bið“, sem kall­aðar eru „ex-ante“, ann­ars vegar og „var­an­legar kolefn­is­ein­ingar“, eða „ex-post“, hins vegar.

Var­an­legu ein­ing­arnar feli í sér stað­fest­ingu á að bind­ingin hafi átt sér stað. Þær séu þar af leið­andi einu ein­ing­arnar sem hægt er að nota til kolefn­is­jöfn­unar í bók­haldi ein­stak­linga, fyr­ir­tækja eða opin­berra aðila, enda séu þær vott­aðar af óháðum aðila og afskráðar úr opin­berri kolefn­is­skrá um leið og þær eru færðar til bókar sem mót­vægi við losun.

„Hér að framan hefur verið minnst á óháða vottun. Rétt er að und­ir­strika að til að vottun geti talist óháð þarf bæði stað­all­inn sem fylgt er og aðil­inn sem tekur út fylgni aðila við stað­al­inn að vera óháður bæði selj­anda og kaup­anda hins vott­aða, hvort sem um er að ræða kolefn­is­ein­ingar eða aðra vöru. Auk þess þarf sá sem veitir vott­un­ina að vera faggiltur til þess af þar til bæru stjórn­valdi. Í þessu sam­bandi er ekki nægj­an­legt að úttekt­ar­að­il­inn sé óháður kaup­and­anum og selj­and­anum ef úttektin felst í að ganga úr skugga um að til dæmis selj­and­inn hafi fylgt þeim reglum og við­miðum sem hann hefur sjálfur sett sér.“

Að lokum segir Stefán í minn­is­blað­inu að eins og staðan er í dag verði að gera þá ófrá­víkj­an­legu kröfu að kolefn­is­ein­ingar sem keyptar eru til kolefn­is­jöfn­unar í bók­haldi ein­stak­linga, fyr­ir­tækja eða opin­berra aðila, hvort sem um er að ræða ein­ingar úr skóg­rækt eða öðrum verk­efnum, séu „ex-post“ ein­ingar með vottun sem við­ur­kennd er af ICROA sem eru Alþjóða­sam­tök selj­enda kolefn­is­vott­orða eða International Carbon Reduction and Offset Alliance.

Nánar til­tekið þurfi ein­ing­arnar að vera vott­aðar af aðila með fag­gild­ingu frá ICROA sam­kvæmt staðli sem við­ur­kenndur er af sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár