Kvíðinn varð að kveikju

Þrátt fyrir að það séu ekki mörg dýr sem ætla að éta okkur úti á götu nú í dag árið 2022 þá virðist sem við mann­eskj­urnar séum kvíðnari og stressaðri en nokkurn tíma fyrr. Útskriftar­sýning Patryks Wilks úr meistara­námi Lista­háskólans fjallaði um kvíða og ótta og hann ræðir sýninguna við Hillbilly, meðal annars út frá ástandi heims­samfélagsins.

Patryk Wilk er ungur pólskur lista­maður með stóra drauma. Hann stundar sem stendur meistaranám í Lista­háskóla Íslands og hélt nýlega einka­sýningu sína, sem er liður í útskriftar­ferlinu. Hillbilly spurði Patryk af hverju hann valdi að koma til Íslands til að leggja stund á meistaranám. „Ég skoðaði marga skóla, skoðaði bestu skóla Evrópu. Lista­háskóli Íslands og masters­prógrammið þar heillaði mig mest, sérstak­lega í ljósi þess að margir frægir myndlistar­menn lærðu þar.“ Patryk nefnir þá Ólaf Elíasson og Ragnar Kjartansson og bætir við að honum þyki Ísland fallegt land og hér kann fólk raun­verulega að meta myndlist, „… og það er myndlist úti um allt! Náttúran hefur verið mér mikill innblástur og ég finn að fólkið hérna ber virðingu fyrir nátt­úrunni og umhverfinu, fólkið hér er almennt framsækið í hugsun,“ segir Patryk.

Alþjóðlegt nám

Patryk stundaði sitt BA-nám í Akademia Sztuki w Szczecinie í Póllandi. „Hér í Lista­háskólanum er hugað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið undanfarið ár