Topp fimm árin

Árin 2011-2015 voru fimm hlýj­ustu ár í sög­unni. Árin fimm þar á undan eru næst hlýj­ustu fimm ár í sög­unni. Allar líkur eru á að árið 2016 verði það hlýjasta allra tíma.

Úr bás Indlands á loftslagsráðstefnunni COP22 í Marokkó.
Úr bás Indlands á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP22 í Marokkó. Mynd: EPA

Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum sem fylgst hafa með fréttum und­an­farin ár að með­al­hiti and­rúms­lofts jarðar hefur náð hæstu hæðum und­an­farin ár. Reglu­lega ber­ast fréttir af því að síð­asta ár hafi verið það hlýjasta í bókum veð­ur­fræð­inga og að allt stefni í að næsta ár muni svo slá öllu við.

Alþjóð­lega­veð­ur­fræði­stofn­unin gaf nýverið út skýrslu um veð­ur­far og hita­stig á jörð­inni árin 2011 til 2015. Öll þessi ár eru á lista 16 hlýj­ustu ára sög­unnar. Þetta fimm ára skeið er jafn­framt hlýjasta fimm ára skeið sem mælt hefur verið, en sam­ræmdar hita­mæl­ingar hófust um miðja 19. öld um svipað leyti og iðn­bylt­ingin var að hefj­ast.

[adspot]

Þrjú veiga­mikil gagna­sett voru notuð til þess að meta með­al­tal hita­stigs á jörð­inni árin 2011–2015 og mæld­ust þau 0.57°C yfir með­al­hita­stigi áranna 1961–1990 sem jafnan er notað til við­mið­unar. Séu síð­ustu fimm ár borin saman við árin fimm þar á undan (2006–2010) þá sést að það munar þó nokkru; Þá var hita­stigið 0,51°C yfir við­mið­un­ar­með­al­tal­inu. Þessi þróun er jafn­framt í takt við þá þróun sem merkja má af hita­mæl­ingum jarðar síðan um miðjan átt­unda ára­tug­inn.

21. öldin sker sig úr

Hlýjasta árið í sög­unni var í fyrra og var það ein­stakt vegna þess að það var í fyrsta sinn sem með­al­hiti á jörð­inni fór meira en 1°C yfir með­al­hita jarðar fyrir iðn­bylt­ing­una. Í Par­ís­ar­sátt­mál­anum er fjallað um að ríki heims ætli að reyna að tak­marka hlýnun jarðar miðað við með­al­hit­ann fyrir iðn­bylt­ingu við 1,5°C til 2°C árið 2100. Muni þessi öra þróun hita­stigs­ins halda áfram er hins vegar útséð um metn­að­ar­fyllra mark­miðið um 1,5°C og óvíst með hitt.

Árið þar á undan er sem stendur í öðru sæti yfir hlýj­ustu ár sög­unnar. 2014 var 0,61°C yfir með­al­tali áranna 1961–1990. Árið 2013 situr jafnt fleiri árum í fimmta sæti þessa lista en árin þar á undan neðar. Þetta „hitakast“ síð­ustu þriggja ára má að ein­hverju leyti skýra með því að benda á veð­ur­af­brigði á borð við La Niña og El Niño sem verða reglu­lega til yfir Kyrra­hafi og hafa í för með sér ýkt­ari veður og hærra hita­stig en venju­lega.

El Niño spannar jafnan tvö ár og hefur yfir­leitt enn ýkt­ari áhrif á hita­stigið í seinna árinu en því fyrra. Árið 2016 verður því að öllum lík­indum lang hlýjasta árið í sög­unni. Raunar benda öll með­al­töl sem þegar hefur verið safnað til þess að það verði raunin.

Sam­an­burður á hita­stigi milli ára getur hins vegar verið mis­vísandi á hverjum tíma vegna þess­ara verð­ur­af­brigða sem ýja eða milda sveiflur í veð­ur­fari á jörð­inni. Sé þysjað út sést að lang­tíma­þróun hita­stigs­ins er að það hlýnar hratt í and­rúms­lofti jarðar, og mun hraðar á 21. öld­inni en þeirri á undan. Raunar hafa öll 12 hlýj­ustu ár sög­unnar orðið síðan 1998. Níu þess­ara hlýj­ustu ára hafa orðið síðan árið 2005.

Þessi þróun er að verða vegna sí auk­ins magns gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í loft­hjúpi jarðar.

Hlýnun loftslags 2011-2015

Líkur á ofsaveðri tífaldar vegna mannsins

Í skýrslu Alþjóða­veð­ur­fræði­stofn­un­ar­innar (e. World Meteorological Orgainization, WMO) segir að með því að horfa til fimm ára í senn geri það vís­inda­mönnum kleift að skoða ein­staka verð­ur­til­vik, sem oft spanna meira en eitt ár, í sam­hengi við lofts­lags­breyt­ingar. Af nið­ur­stöðum 79 rann­sókna sem gefnar voru út af banda­ríska veð­ur­fræði­sam­fé­lag­inu á árunum 2011 til 2014 bendir helm­ing­ur­inn til þess að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum hafi átt þátt í þeim ofsa­veðrum sem könnuð voru. Sumar þess­ara rann­sókna sýndu fram á að líkur á ofsa­veðri aukast tífalt vegna áhrifa manns­ins á lofts­lag jarðar.

Í inn­gangs­orðum sínum segir Petteri Taalas, fram­kvæmda­stjóri WMO ,að nú hafi áhrifa lofts­lags­breyt­inga verið vart í umhverfi manns­ins í meira en þrjá­tíu ár: „[…] hækk­andi hita­stig, bæði yfir landi og í haf­inu, hækkun sjáv­ar­borðs, víð­tæk bráðnun íss. Allt hefur þetta aukið hætt­una á ofsa­fengnum veðrum á borð við hita­bylgjum, þurrkum, met­rign­ingum og flóðum.“

Í skýrsl­unni eru ein­stakir atburðir taldir til sem ullu hvað mestum mann­skaða eða efna­hags­legum skaða. Þar á meðal eru þurrk­arnir í Austur-Afríku árin 2010–2012 sem taldir eru hafa stuðlað að dauða 258.000 ótíma­bærum dauðs­föllum, þurrkar í sunn­an­verðir Afríku árin 2013–2015 eru einnig nefndir. Þá eru flóð í Suð­austur Asíu árin 2011 talin til en í þeim fór­ust 800 manns og efna­hags­legur skaði nam meira en 40 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Hita­bylgjur í Indlandi og Pakistan árið 2015 sem taldar eru hafa orðið meira en 4.100 manns að bana eru þarna á meðal auk felli­byls­ins Sandy sem reið yfir aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna árið 2012. Sandy er talin hafa valdið efna­hags­legu tjóni sem er metið á 67 millj­arða Banda­ríkja­dala. Þá er ótal­inn felli­byl­ur­inn Haiyan sem reið yfir Fil­ipps­eyjar árið 2013 þar sem 7.800 manns fór­ust.

Atburðir sem sagðir eru vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum

Ræða næstu skref eftir Parísarsamninginn

Ríki heims funda nú í Marra­kesh í Marokkó á tutt­ug­ustu og annarri lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mark­miðið með COP22, eins og ráð­stefnan er kölluð í dag­legu tali meðal sendi­full­trúa, er að taka ákvarð­anir um næstu skref miðað við Par­ís­ar­samn­ing­inn sem gerður var á lofts­lags­ráð­stefn­unni í fyrra COP21.

Skýrsla veð­ur­fræði­stof­un­ar­innar var lögð fyrir COP22 á dög­unum en þar mun sama stofnun leggja til fyrstu drög að sam­an­tekt á lofts­lags­breyt­ingum árs­ins 2016 á mánu­dag.

Eftir kjör Donalds Trump í emb­ætti Banda­ríkja­for­seta hefur mikið verið rætt um fram­tíð lofts­lags­mála á alþjóða­svið­inu. Trump hefur ítrekað lýst því yfir að hann trúi ekki að lofts­lags­breyt­ingar séu að eiga sér stað. Hann hefur til að mynda úthrópað kenn­ingar um lofts­lags­breyt­ingar sem kín­verskt gabb.

Eftir að Trump var kjör­inn hefur Kína stigið upp og ítrekað skuld­bind­ingar sínar og lof­orð í lofts­lags­málum. Ein helsta ástæða þess að það hefur tek­ist að láta Par­ís­ar­samn­ing­inn taka gildi er að bæði Banda­ríkin og Kína hafa staðið með þessum samn­ingi. Forsetar þess­ara ríkja, Barack Obama fyrir Banda­ríkin og Xi Jinping fyrir Kína, gegnu í banda­lag um að inn­leiða þennan samn­ing. Þessi ríki bera hvort um sig ábyrgð á mestri mengun allra ríkja heims­ins og þess vegna mik­il­vægt að bæði tækju þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár