Stríðsleikurinn sem fór úr böndunum

Nýlega voru birt leyniskjöl um atburði sem tengj­ast her­æf­ingum NATO og Banda­ríkj­anna árið 1983, þar sem mun­aði litlu að stig­mögnun hefði geta leitt til kjarn­orku­stríðs.

Nýlega var aflétt leynd af leyniskjölum sem hafa leitt í ljós að árið 1983 gerð­ust alvar­legir atburðir sem margir telja að hefðu hæg­lega getað leitt til kjarn­orku­styrj­aldar. Skjölin fjalla um umfangs­mikla her­æf­ingu, eins­konar stríðs­leik, þar sem Banda­ríkin og NATO líktu eftir umskiptum frá hefð­bundnum hern­aði til kjarn­orku­á­taka í stríði í Evrópu. Í skjöl­unum kemur fram að helstu leið­togar Sov­ét­ríkj­anna töldu stríðs­leik­inn raun­veru­legan – að Banda­ríkin og NATO væru í raun að fara að hefja kjarn­orku­árás á Sov­ét­ríkin – og brugð­ust við með við­eig­andi hætti.

Able Archer-heræfingin

Upp­lýs­ingar um Able Archer-her­æf­ing­una hafa verið kunnar um nokk­urra ára skeið. Sú stað­reynd að Sov­ét­menn vopn­uðu flug­vélar sínar með kjarn­orku­sprengjum hefur hins vegar ekki verið gerð opin­ber fyrr en nú. Þessar nýju upp­lýs­ingar sýna að hættan á kjarn­orku­stríði var raun­veru­leg en ólíkt öðrum atburðum, svo sem eins og Kúbu­deil­unni, var næstum engum kunn­ugt um það á þeim tíma.

Flestir yfir­menn í Banda­ríkja­her litu á Able Archer sem dæmi­gerða her­æf­ingu sem ekki myndi raska ró sov­éskra yfir­manna umfram það sem búast mætti við. Æfingin var mun stærri en venju­lega. Floti flutn­inga­véla flaug með 19.000 her­menn í 170 ferðum frá Banda­ríkj­unum til her­stöðva í Evrópu. Hún var einnig óvenju raun­veru­leg. Flutn­inga­vél­arnar héldu þögn í sam­skiptum og B-52-sprengju­flug­vélum var ekið út á flug­brautir og hlaðnar gervi­sprengjum sem litu mjög raun­veru­lega út.

Markmið æfing­ar­innar var bein­línis að gera hlut­ina sem raun­veru­leg­asta. Her­stjórn Banda­ríkj­anna setti t.d. við­búnað við kjarn­orku­stríði á hæsta stig. Sov­ét­menn fylgd­ust auð­vitað með þessu öllu eins og þeir gerðu almennt og banda­rísk yfir­völd gerðu ráð fyrir að þeir myndu gera. En við­brögð Sov­ét­manna voru ólík því sem áður hafði þekkst.

Allir vissu að banda­menn fylgd­ust með Sov­ét­mönnum og öfugt, og við­brögð mót­að­il­ans voru gjarnan hluti af æfing­unni. Form­legar og óform­legar sam­skipta­leiðir voru not­aðar til að tryggja að mót­að­il­inn vissi að um æfingu væri að ræða. Það kerfi reynd­ist þó fjarri því óbrigðult eins og þetta dæmi sýnir.

[adspot]Lyk­il­mað­ur­inn í því að ekki fór illa var Leonard Perroots yfir­maður leyni­þjón­ustu Banda­ríkja­hers í Evrópu. Hann varð þess var að ekki var allt með felldu Sov­ét­megin járn­tjalds og raun­veru­leg stig­mögnun gæti verið að eiga sér stað. Þegar Perroots til­kynnti yfir­manni sínum, hers­höfð­ingj­anum Billy Minter, um „óvenju­legar aðgerðir“ Sov­ét­ríkj­anna í byrjun Able Archer, ætl­aði Minter að bregð­ast við á hefð­bund­inn hátt. Perroots ráð­lagði honum hins vegar að bíða og sjá. Sov­ét­menn væru hugs­an­lega að mis­lesa til­gang æfing­ar­innar og frek­ari stig­mögnun af hálfu Banda­ríkja­manna, sem var hefð­bundin í æfinga­skyni, myndi lík­lega ýta undir frekara hættu­á­stand – og gæti jafn­vel hrundið af stað stríði.

Hér verður að hafa í huga að í hinni sér­kenni­legu lógík kjarn­orku­fæl­ing­ar­kerfis kalda stríðs­ins var getan til fyrstu árásar ákveðið lyk­il­at­riði (e. First Strike Capability). Það var í raun ákveð­inn hvati til þess að verða fyrri til að beita kjarna­vopnum, til að ná í reynd að dæma and­stæð­ing­inn úr leik strax í upp­hafi stríðs.

Þá varð getan til við­bragðs lyk­il­at­riði, sem leiddi af sér stefnu „gagn­kvæmrar ger­eyð­ingar“ (e. Mutually Assured Destruction – MAD). Þannig var dregið úr hvat­anum til að verða fyrri til, því sama hvað gerð­ist þá gæti and­stæð­ing­ur­inn alltaf náð að svara með gjör­eyð­ing­ar­afli kjarna­vopna. Til þess að MAD gengi upp varð sá sem var seinni til að vera snöggur til svars.

Við þessar aðstæður gefst lít­ill tími til að gaum­gæfa val­kost­ina, og í augum Sov­ét­manna var æfingin í raun áætlun Banda­ríkja­manna og banda­manna þeirra um að gera inn­rás í Austur-Evrópu – og þar með verða fyrri til að gera kjarn­orku­árás á Sov­ét­ríkin.

1983 – stöðug ógn af yfirvofandi kjarnorkustríði – fólk var búið að fá nóg

Þessir atburðir gerð­ust ein­ungis um viku áður en kvik­myndin The Day After var sýnd á ABC-sjón­varps­stöð­inni í Banda­ríkj­unum, en meira en 100 millj­ónir manna, á næstum 39 millj­ónum heim­ila, horfðu á upp­haf­legu útsend­ing­una. Myndin var mjög raun­sönn og áhrifa­rík og fjallar um hvernig nún­ingur á milli Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna stig­magn­ast hratt og endar með kjarn­orku­stríði.

The Day After var frum­sýnd í kvik­mynda­húsum skömmu síðar hér á landi. Sama dag og myndin var aug­lýst á áber­andi hátt í Morg­un­blað­inu var á for­síðu vitnað í Geir Hall­gríms­son þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra sem þá sat örygg­is­mála­ráð­stefnu í Stokk­hólmi: „Heims­byggðin þarfn­ast alhliða afvopn­unar“. Það end­ur­speglar vel ríkj­andi tíð­ar­anda og það gerðu við­tökur við mynd­inni einnig, ógnin af kjarn­orku­stríði var stöðugt yfir­vof­andi og fólk búið að fá nóg hinu þrúg­andi ástandi sem hafið varað í ára­tugi. Það varð kannski tím­anna tákn að myndin var sýnd í rík­is­sjón­varpi Sov­ét­ríkj­anna árið 1987 í kjöl­far samn­inga Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna um tak­mörkun kjarna­vopna.

Fátt er svo með öllu illt – Friðarsinninn Reagan

Able Archer-her­æf­ingin hafði þó jákvæðar afleið­ingar því Ronald Reagan þáver­andi Banda­ríkja­for­seti tók málið mjög alvar­lega. Hann hafði verið her­skár frá því hann tók við völdum árið 1981 og aukið þrýst­ing á Sov­ét­menn. M.a. með því að senda skipa­flota, kaf­báta og flug­sveitir inn fyrir mörk sov­éskra yfir­ráða­svæða þar sem líkt var eftir árásum. Þessar aðgerðir áttu að ýta undir væn­i­sýki Sov­ét­manna og kalla fram við­brögð, sem þær og gerðu.

En þegar Reagan las skýrslu um Able Archer og hversu tæpt hafði þar verið teflt varð honum ljós sú stað­reynd að Sov­ét­menn virt­ust allt eins gera ráð fyrir því að Banda­ríkin væru viljug til að hefja stríð með kjarn­orku­vopnum. Þann 18. nóv­em­ber 1983, viku eftir að Able Archer lauk, skrif­aði Reagan í dag­bók sína: „Mér finnst Sov­ét­menn vera svo varn­ar­sinn­aðir, svo væni­sjúkir, að án þess að vera með nokkra lin­kind ættum við að gera þeim ljóst að eng­inn hér hefur neitt slíkt í hyggju.“

Sama dag hitti Reagan utan­rík­is­ráð­herra sinn, George Shultz, til að ræða það að koma á beinni sam­skipta­leið við Moskvu, á fundi sem mikil leynd hvíldi yfir. Tveimur mán­uðum síðar, 16. jan­úar 1984, flutti Reagan sjón­varps­ávarp þar sem vikið var frá fyrri yfir­lýs­ingum um Sov­ét­ríkin sem „heims­veldi hins illa“. Lyk­illína ávarps­ins var: „Ef sov­éska rík­is­stjórnin vill frið, þá verður friður [...] við skulum byrja núna.“

Líklega var það ekki bara á Vest­ur­löndum sem fólk var komið með nóg af víg­bún­að­ar­kapp­hlaup­inu og ógn­inni sem því fylgdi. Ári seinna tók við völdum í Sov­ét­ríkj­unum maður sem var sama sinnis, Mikhaíl Gor­batsjev. Eft­ir­leik­inn þekkja flestir og stór­veldin tóku í kjöl­farið stór skref í átt til afvopn­unar og eitt það fyrsta var leið­toga­fund­ur­inn í Reykja­vík 1986 – fyrir að verða 35 árum síðan. Samn­ingar um alls­herj­ar­fækkun kjarna­vopna voru und­ir­rit­aðir og senn lauk því ástandi ógn­ar­jafn­vægis sem hafði þjakað heims­byggð­ina um ára­tuga­skeið.

Var þá kyrrt um sinn – en ekki lengi

Eftir lok kalda stríðs­ins nálg­uð­ust Rússar Vest­ur­lönd jafn og þétt með nán­ara sam­starfi m.a. um öryggis- og varn­ar­mál, t.d. hvað varð­aði að tryggja öryggi kjarn­orku­her­afla Sov­ét­ríkj­anna sál­ugu. And­rúms­loftið súrn­aði þó smám saman, sér­stak­lega eftir að Vladimír nokkur Pútín varð yfir­maður Rúss­nesku leyni­þjón­ust­unnar (FSB) í júlí 1998. Dró nú fljótt úr sam­starfsvilj­anum og ljóst varð að Rússar ætl­uðu ekki að láta kippa sér inn í vest­rænt sam­starf með einu hand­taki. Eftir að þeir gáfust upp á því sem þeir túlk­uðu sem yfir­gang af hálfu vest­rænna ríkja varð mik­ill við­snún­ingur í sam­skipt­unum.

Þrátt fyrir hörku Rússa í Téténíu og Georgíu og óvenju­legan fram­gang í öðrum fyrrum Sov­étlýð­veldum og Var­sjár­banda­lags­ríkjum, héldu margir á Vest­ur­löndum í von­ina um var­an­legan eftir-kalda­stríðs­frið. Þegar Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga árið 2014 hrukku því sumir í kút, and­rúms­loftið breytt­ist og ljóst var að haf­inn var nýr kafli í sög­unni – að ein­hverju leyti aft­ur­hvarf til gam­alla tíma.

Þrátt fyrir þá spennu sem ríkti í sam­skiptum við Rússa reyndi Obama að halda áfram á braut kjarn­orku­af­vopn­unar. Í þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni sem Hvíta húsið birti í des­em­ber 2017 var áfram dregið úr hlut­verki kjarn­orku­vopna eins og kostur var. Það urðu hins vegar tals­verð umskipti í kjarn­orku­málum Banda­ríkj­anna með valda­töku Donalds Trumps. Kjarn­orku­vopna­búr Banda­ríkj­anna var grund­völlur að stefnu hans, að sögn til að við­halda friði og stöð­ug­leika og koma í veg fyrir yfir­gang gagn­vart Banda­ríkj­unum.

Ný tækni – nýtt vopnakapphlaup og ógnarjafnvægi?

Þó ekki sé hægt að tala um nýtt víg­bún­að­ar­kapp­hlaup eins og á tímum kalda stríðs­ins hefur verið mikil þróun í kjarn­orku­vopna­tækni. Nú tala sumir um mögu­leika á beit­ingu kraft­minni kjarn­orku­vopna sem bjóða upp á meiri nákvæmni og þar með afmark­aðri afleið­ingar. Þetta er rök­stutt með því að fæl­ing­ar­mátt­ur­inn sé meiri sem geri heim­inn í raun örugg­ari en ella. Aðrir hafa bent á að þessu sé þver­öf­ugt farið, að vegna þess hversu nákvæm­lega megi beita slíkum vopnum verði freist­ingin meiri til þess að beita þeim í hern­aði.

Talsmenn fyrir notkun slíkra áhrifa­minni kjarn­orku­vopna full­yrða að slík aðferða­fræði sé hluti af stríðs­á­ætl­unum Rússa og að þeir búi yfir fjölda minni kjarn­orku­vopna. Stjórn Trumps hélt því fram að þróun kjarn­orku­vopna með tak­mark­aða virkni væri sér­stak­lega mik­il­væg vörn gegn Rússum – sem hefðu þann skiln­ing að Banda­ríkin myndu hika við að nota sitt öfl­uga vopna­búr til að bregð­ast við tak­mörk­uðum kjarn­orku­árásum.

Banda­ríkja­menn byrj­uðu því árið 2019 að smíða kjarna­vopn með minni virkni sem ætlað var að styrkja stöð­una gagn­vart Rússum. Þarna er um að ræða litlar flaugar, með sprengi­afl upp á 5 til 7 kílótonn, sem skjóta mætti frá kaf­bátum. Til sam­burðar getur ein Trident flaug sem skotið er úr kaf­báti borið átta 100 kílótonna kjarna­odda. Hefð­bundnar lang­drægar flaugar enn meira og sprengjan sem varpað var á Hiros­hima var um 15 kílótonn.

Hins vegar hafa gagn­rýnendur áhyggjur af því að hinn nýi kjarna­oddur gæti raun­veru­lega aukið lík­urnar á kjarn­orku­stríði. Í fyrsta lagi verði honum lík­lega skotið með sömu Trident-eld­flaug og notuð er til að skjóta meira en 100 sinnum öfl­ugri sprengjum. Ekki sé hægt að búast við því að Rússar muni sitja rólegir og segja: við skulum bíða með að sjá hvað þetta er stór sprengja áður en við bregð­umst við – nú já, þetta er víst bara lítið svepp­ský.

Af hverju er þetta sérstakt áhyggjuefni nú? – Óútreiknanlegir Rússar

Grund­vall­ar­at­riði þegar rætt er um mögu­leika á kjarn­orku­stríði er óvissan um fyr­ir­ætl­anir óvin­ar­ins, hvað hyggst hann fyrir, hvað heldur hann að ég hygg­ist gera, hvað heldur hann að ég viti um hvað hann ætlar sér?

Þessi óvissa var það sem olli því að heim­ur­inn rambaði á barmi kjarn­orku­stríðs í tvígang, fyrst í Kúbu­deil­unni árið 1962 og svo aftur með Able Archer árið 1983. Þess vegna gerðu menn sér ljósa hætt­una af slíkri óvissu og reyndu að koma á greið­ari sam­skipta­leiðum. Nú þegar ríki eins og Rússland bein­línis gerir út á upp­lýs­inga­óreiðu, mis­vísandi upp­lýs­ingar og van­traust er voð­inn vís.

Að sögn NATO hafa Rússar haldið áfram að þróa og koma upp með­al­drægum eld­flaugum sem eru hreyf­an­legar og ill­grein­an­legar. Þær geta náð til evr­ópskra borga með litlum fyr­ir­vara, með hefð­bundnum sprengju­hleðslum eða kjarna­oddum. Rússar hafa því ekki sýnt vilja til að upp­fylla INF-sátt­mál­ann um slíkar flaugar sem var und­ir­rit­aður af Reagan og Gor­bat­sjov árið 1987. Hann útrýmdi bæði kjarn­orku- og hefð­bundnum skot- og stýriflaugum á jörðu niðri, með drægni á bil­inu 500 til 5.500 kíló­metra. Þessar nýju deilur við Rússa leiddu til þess að sátt­mál­inn féll úr gildi árið 2019.

Rússar hafa einnig sýnt að þeir eru reiðu­búnir að beita her­valdi gegn nágrönnum sínum en her­sveitir þeirra eru í Úkraínu, Georgíu og Moldóvu, gegn vilja við­kom­andi rík­is­stjórna. Þeir hafa einnig sýnt af sér ógn­andi hegðun, þar með talið netárásir, upp­lýs­inga­óreiðu-her­ferðir og til­raunir til að hafa afskipti af lýð­ræð­is­ferlum, og við­hafa einnig ógagn­sæi þegar kemur að her­æf­ingum.

Bandaríkjamenn snúa við blaðinu

Óút­reikn­an­leik­inn er ekki endi­lega alltaf bara hjá Rússum. Á meðan Donald Trump gegndi for­seta­emb­ætti gerði hann út á að vera óút­reikn­an­legur og spurði bein­línis: „Af hverju getum við ekki notað kjarn­orku­vopnin okkar?“

Hins vegar hefur Joe Biden end­ur­vakið stefnu sem var við lýði á meðan hann gegndi emb­ætti vara­for­seta í valda­tíð Barracks Obama. Það er stefna sem rímar við við­brögð Ronalds Reagans þegar hann átt­aði sig á hætt­unni af Able Archer, og reyndi að rjúfa störu­keppni stór­veld­anna sem hafði næstum leitt af sér kjarn­orku­stríð.

Banda­ríkin og Rússland náðu nýlega sam­komu­lagi um fram­leng­ingu START-sátt­mál­ans sem rann út í febr­úar. Sátt­mál­inn var upp­haf­lega sam­þykktur eftir lok kalda stríðs­ins árið 1991 en hefur verið end­ur­bættur í áranna rás. Joe Biden sagð­ist ætla að nota hið end­ur­nýj­aða sam­komu­lag sem ramma fyrir fram­tíð­ar­samn­inga um kjarn­orku­vopn.

Kálið er ekki sopið þó í aus­una sé komið því þrátt fyrir góðan samn­ings­vilja Bidens eru sjón­ar­miðin á heima­velli mörg sem þarf að sætta. Linkind í utan­rík­is­málum er jafnan illa séð í banda­rískum stjórn­málum og Rússar eru ekki þeir einu sem við er að eiga þegar kjarn­orku­vopn eru ann­ars vegar. Orð eru þó til alls fyrst og lík­lega hefur heim­ur­inn eitt­hvað fjar­lægst nýtt kalt stríð og ógn­ar­jafn­vægi með nýjum stjórn­völdum í Washington.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár