Sigmundur hnýtir í RÚV vegna tölvuinnbrots

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, gagn­rýnir frétta­flutn­ing RÚV af meintu tölvu­inn­broti í tölvu hans á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Hann seg­ist hafa hlegið upp­hátt þegar hann sá fyr­ir­sögn RÚV um málið, en fyr­ir­sögnin var „Vildi ekki láta skipta um disk sýktu tölv­unnar.“

Þetta segir Sig­mundur í færslu á Facebook-síðu sinni að sé merki um að RÚV sé að gefa í skyn að honum hafi „bara þótt ljóm­andi gott að vera með sýkta tölvu eða ekki talið trú­verð­ugt að brot­ist hafi verið inn í tölv­una (e.t.v. talið að slíkt tal væri nú bara eins og upp úr vís­inda­skáld­sögu). Hvað kemur næst? Ég bíð spenntur. Raunin var sú að ég var ekki mót­fall­inn því að fá vírus­lausa tölvu. Ég þurfti hins vegar að nota gögn úr tölv­unni svo það varð að bíða. Tölvan var því aftengd inter­net­inu og loks tekið af henni raf­magn til öryggis.“

Frétt RÚV frá því í morgun byggir á gögnum frá Rík­is­lög­reglu­stjóra um málið, meðal ann­ars minn­is­blaði frá rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins. Í því minn­is­blaði kemur fram að starfs­menn hafi bent Sigmundi Davíð á að rétt væri að skipta um disk tölv­unnar og setja stýri­kerfi upp að nýju. „Ráðherra vildi ekki að það yrði gert,“ segir orð­rétt í minn­is­blað­inu sam­kvæmt frétt RÚV.

Það vakti mikla athygli þegar Sig­mundur Davíð, þá for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi flokks­ins þann 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. Hann hafi látið yfir­fara tölv­una hjá rekstr­ar­fé­lagi stjórn­ar­ráðs­ins og þar hafi fund­ist ummerki um inn­brot. Rekstr­ar­fé­lagið sagði hins vegar í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans þann 12. sept­em­ber að engin stað­fest ummerki hafi fund­ist um inn­brot. Óskað hafi verið eftir því við rekstr­ar­fé­lagið þann 1. apríl að tölvan yrði skoðuð. Við ítar­lega leit hafi ekki fund­ist stað­fest ummerki um inn­brot.

„Ekki fannst stað­fest­ing á því að umrædd vél hafi verið sýkt og né aðrar vélar á þeim tíma á okkar stað­ar­neti af þeirri veiru sem hér um ræðir. Ólíklegt þykir að sýk­ing hafi átt sér stað þar sem Sig­mundur Davíð sem og aðrir not­endur hafa tak­mörkuð rétt­indi á sínar vélar,“ segir einnig í minn­is­blaði rekstr­ar­fé­lags­ins um málið, sem RÚV greinir frá í dag. 

Sig­mundur Davíð birti bréf á Facebook-síðu sinni í gær frá rík­is­lög­reglu­stjóra. Þar segir Sig­mundur að „Fram kemur að tölvu­póstur sem sendur var á mig og lát­inn líta út fyrir að hann hefði komið frá öðrum en þeim sem sendi hann hefði lík­lega inni­haldið þekkta tölvu­veiru að nafni „Poison Ivy backdoor“. Um þá veiru segir í bréfi frá RFS: „Einkenni hennar eru þær að hún opnar bak­dyr inn á tölvu við­kom­andi fyrir aðgengi árás­ar­að­ila að tölv­unni“. Þótt veiran hafi ekki fund­ist í tölv­unni er tekið fram að „Algengt er með slíka veirur að árás­ar­að­il­inn hreinsar til eftir sjálfan sig að lok­inni aðgerð“. Atvikið var skráð sem örygg­is­at­vik hjá RFS.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár