Allir bera ábyrgð en hafa mismunandi skyldur

Fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum segir í sam­tali við Kjarnann að allir beri ábyrgð á aðgerðum í lofts­lags­málum, hvort sem það eru stjórn­völd, einka­geir­inn eða ein­stak­lingar.

Patricia Espinosa hefur verið framkvæmdastjóri Rammsamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál síðan í júlí 2016. Kjarninn ræddi við hana í Hörpu á dögunum.
Patricia Espinosa hefur verið fram­kvæmda­stjóri Ramm­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál síðan í júlí 2016. Kjarninn ræddi við hana í Hörpu á dög­unum. Mynd: Sameinuðu þjóðirnar

Patricia Espinosa, fram­kvæmda­stjóri Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál (UNFCCC), seg­ist telja hlut­verk stjórn­valda sé að búa skapa aðstæður fyrir einka­að­ila og ein­stak­linga til þess að grípa til aðgerða í lofts­lags­málum.

Espinosa var stödd hér á landi á föstu­dag­inn fyrir viku síðan og ávarp­aði Arctic Circle-þingið sem fram fór í Hörpu um síð­ustu helgi.

„Ég tel að allir hafi skyldum að gegna í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar,“ segir Espinosa þegar Kjarninn spurði hana að því hvar ábyrgð lofts­lags­að­gerða liggi. „Allir bera ábyrgð á því að gripið sé til aðgerða. Skyldur hvers og eins eru hins vegar mis­mun­andi.“

[links]„Skyldur rík­is­stjórna og sveit­ar­stjórna eru að leggja til full­nægj­andi inn­viði svo breyt­ingar geti átt sér stað.“ Hún segir að breyt­ingar þurfi að verða á lang­flestum sviðum sam­fé­lags­ins, hvar sem er í heim­inum, en nefnir sér­stak­lega breyt­ingar á sviði borg­ar­skipu­lags, bygg­inga og sam­gangna.

„Ef hið opin­bera upp­fyllir skyldur sínar og leggur til umgjörð­ina fyrir einka­geir­ann – þá sem reka mik­il­væga geira hag­kerf­is­ins – svo hægt sé að miða að grænni og kolefn­issnauð­ari lausnum, þá tel ég það vera góða verka­skipt­ingu,“ segir Espinosa.

Það er ekki aðeins ríkið, sveit­ar­fé­lög og einka­geir­inn sem hafa skyldum að gegna heldur þurfa ein­stak­lingar að taka mik­il­vægar ákvarð­anir um hvernig þeir haga lífi sínu á hverjum degi.

„Ein­stak­lingar hafa einnig skyldum að gegna. Þeir þurfa að ákveða hvort þeir vilji keyra eigin bíl til þess að kom­ast á milli staða eða nota almenn­ings­sam­göngur. Ein­stak­lingar þurfa einnig að ákveða hvort þeir kaupi vist­vænar vörur eða ekki,“ segir Espinosa.

„Ég held að ein­stak­lingar eigi ekki að van­meta getu sína til þess að bregð­ast við lofts­lags­vand­anum.“

Á góðri leið en þurfum auka metnað

Patricia Espinosa tók við fram­kvæmda­stjóra­stöð­unni hjá UNFCCC af Christiönu Figueres í júlí í fyrra. Espin­osas hefur starfað sem rík­is­er­ind­reki í tæpa tvo ára­tugi. Hún var sendi­herra heima­lands­ins Mexíkó í Aust­ur­ríki frá 2002 þar til hún gerð­ist utan­rík­is­ráð­herra í Mexíkó í sex ár frá 2006. Árið 2013 varð hún aftur sendi­herra, í þetta sinn í Þýska­landi. Því starfi gegnir hún enn sam­hliða fram­kvæmda­stjóra­stöðu UNFCCC.

Verkefni Espinosa er þess vegna að leiða lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í kjöl­far þess að Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn var sam­þykktur í des­em­ber 2015. Marga þætti samn­ings­ins á enn eftir að full­vinna og útfæra. Þá er ljóst að stórum alþjóða­samn­ingi á borð við þennan verður að fylgja eftir með aðhaldi og hvatn­ingu.

En erum við á góðri leið í lofts­lags­málum? Reglu­lega ber­ast fréttir af ofsa­veðrum sem hægt er að tengja lofts­lags­breyt­ingum, aldrei hefur meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum verið blásið út í and­rúms­loftið og jarð­efna­elds­neyti er brennt í meira mæli en nokkru sinni.

[adspot]

„Ég held að við verðum að líta á allar hliðar máls­ins,“ segir Espinosa þegar hún er spurð hversu vel á veg heim­ur­inn er kom­inn í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar.

„Í eina rönd­ina finn­ast mér það góðar fréttir að við séum á vel stik­aðri leið sem lögð var í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Ég held að þessi alþjóða­samn­ingur hafi skil­greint þá leið sem heim­ur­inn þarf að feta til fram­tíðar. Til þess höfum við nægan póli­tískan vilja, stað­festu og sam­hljóm.“

Espinosa bendir einnig á að aðgerðir í lofts­lags­málum séu ekki leiddar af rík­is­stjórnum heldur af fyr­ir­tækjum og sveit­ar­fé­lögum sem taka af skarið. „Það er mik­ill eld­móður og kraftur sem fer í að aðlaga stað­bundna ver­öld fólks að þessum alþjóð­lega ramma,“ segir hún en bætir við:

„Í hina rönd­ina höfum við ennþá nokkrar áhyggjur, til dæmis þegar við skoðum hversu mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum er blásið út í and­rúms­loftið á hverju ári. Það olli líka áhyggjum þegar rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna ákvað að draga sig út úr Par­ís­ar­samn­ingnum.“

„Ég mundi segja að sviðs­myndin bjóði upp á margar ástæður fyrir okkur til þess að vera bjart­sýn en einnig ein­staka ástæður til þess að örvænta. Við verðum að vera upp­lýst um að tak­mark­inu hefur alls ekki verið náð. Við verðum að auka metnað okkar í þessum málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár