Formaður Íslandsdeildar Amnesty ritstýrir vefriti sem gagnrýnir druslugönguna og vill leggja niður mannréttindaráð

Hörður Helgason er annar af rit­stjórum Vef­þjóð­vilj­ans. „Ég er ekki hér að lýsa mínum per­sónu­legu skoð­unum, ekki frekar en neinir aðrir úr stjórn sam­tak­anna,“ segir hann frá Dublin, þar sem alþjóða­þing Amnesty fer fram.

Hörður Helgi Helgason, for­maður Íslands­deildar Amnesty International, hefur rit­stýrt Vef­þjóð­vilj­anum, vefriti áhuga­manna­fé­lags­ins Andríkis, frá árinu 1997. Vefritið hefur gagn­rýnt druslu­göng­una harð­lega, hvatt til þess að mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar sé lagt niður, kvartað undan útþynntri mann­rétt­inda­um­ræðu og hæðst að þeim sem vilja að lög­gjaf­inn leggi stein í götu vændis. 

Aðspurður hvort hann skrifi sjálfur á vef­inn segir Hörður: „Ég held nú að það sé ekk­ert gefið upp hverjir skrifa þarna. Þannig var það alla­vega fyrir ein­hverjum árum síðar.“ En er hann sam­mála flestu sem stendur á síð­unni? „Ég held að ég ætli ekk­ert að gefa upp um það hverju ég er sam­mála og hverju ekki. Menn myndu bara fara að mistúlka það“ segir Hörður sem telur að ósann­gjarnt væri að tengja skrifin á Vef­þjóð­vilj­anum við þau störf sem hann gegnir.

Hörður er staddur á alþjóða­þingi Amnesty International í Dublin um þessar mundir. „Ég er ekki hér að lýsa mínum per­sónu­legu skoð­unum, ekki frekar en neinir aðrir úr stjórn sam­tak­anna eða aðrir full­trúar hér,“ segir hann. Fyrir þing­inu liggur meðal ann­ars umdeild til­laga um að Amnesty beiti sér fyrir afglæpa­væð­ingu vændis. Í við­tali í Morg­un­út­gáf­unni á Rás 1 um helg­ina sagði Hörður mik­il­vægt að fram færi yfir­veguð umræða um hag vændiskvenna. Sjö íslensk kvenna­sam­tök hafa ályktað gegn til­lög­unni og hvatt Íslands­deild­ina til að leggj­ast gegn henni. Vef­þjóð­vilj­inn hefur hins vegar talað fyrir lög­leið­ingu vændis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár