Rauntímalist og tímatengd miðlun hefur hingað til verið einkenni listahátíðarinnar Sequences. Hátíðin, sem fer fram í níunda sinn nú í október, verður þó með breyttu sniði í ár, þar sem sýningarstjórarnir tveir, Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarsson, tóku ákvörðun um að snúa upp á hefðina, sem upphaflega var til komin vegna þess að rauntímalist þótti hagnýtt form, þar sem sýningin er alþjóðleg og flutningsgjöld efnislegra verka til Íslands geta verið ansi há. Þau gáfu sér þá forsendu að flest verk væri í raun hægt að skilgreina sem rauntímaverk, sem opnaði möguleikana til muna. „Við báðum stjórn Sequences um undanþágu frá því að einblína á tímatengda miðla, þar sem við erum ekki sérfróð í þeim, hvorugt okkar, heldur höfum frekar almennan áhuga og þekkingu á myndlist. Okkur þótti áhugavert að einblína á þetta hugtak, rauntíma, kljúfa það í tvennt, í raunveruleika og tíma, og kanna afstæði þeirra með virkni verka unnin …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir