Lífeyrissjóðirnir „henda peningunum okkar í sukk“

Trún­að­ar­ráð Eflingar fagnar „hinum nýlega og auð­sýnda áhuga“ Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lýð­ræði og mann­rétt­indum, segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

„Félagar í trún­að­ar­ráði Eflingar hitt­ust í gær á góðum fundi. Þar ræddum við margt og mikið, meðal ann­ars kom­andi bar­áttu. En við fundum okkur líka tíma til að fagna hinum nýlega auð­sýnda áhuga þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lýð­ræði og mann­rétt­indum á vinnu­mark­aðnum okkar.“

Á þessum orðum hefst færsla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar, á Facebook. Í ályktun sem sam­þykkt var á fundi trún­að­ar­ráðs­ins segir að hinn nýfundni áhugi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á mál­efn­inu birt­ist í frum­varpi þing­manna flokks­ins um félaga­frelsi á vinnu­mark­aði.

[adspot]

„Trún­að­ar­ráð hvetur þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að kynna sér starf­semi íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins,“ segir enn­fremur í álykt­un­inni. Það kerfi byggi á skyldu­að­ild, þar sem lög krefj­ist þess að minnst 12 pró­sent af öllum launum verka­fólks séu greidd í líf­eyr­is­sjóðsið­gjald. Getur það varðað sektum eða fang­elsi að greiða ekki iðgjaldið.

Svo segir: „Þegar iðgjaldið hefur verið greitt fellur það undir stjórn ein­stakra líf­eyr­is­sjóða, þar sem lýð­ræð­is­legt aðhald sjóð­fé­laga er ekk­ert. Þeir fá tæki­færi til að kjósa, með milli­göngu full­trúa­ráðs, helm­ing stjórn­ar­manna en hinn helm­ing­ur­inn er val­inn með geð­þótta íslenskra fyr­ir­tækja­eig­enda. Með þessu fyr­ir­komu­lagi er tryggt að sjóð­fé­lagar séu áhrifa­lausir um ráð­stöfun þeirra fjár­muna sem þeir eru þó skikk­aðir með lögum til að greiða. Um er að ræða aug­ljóst brot gegn félaga­frelsi, mann­rétt­indum og grunn­reglum lýð­ræð­is­ins.“

[adspot]

Trún­að­ar­ráð Eflingar seg­ist treysta því að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni á næst­unni leggja fram frum­varp þar sem skyldu­að­ild að líf­eyr­is­sjóðum verði annað hvort afnumin eða skil­yrt af eðli­legu lýð­ræði við með­höndlun þeirra fjár­muna sem sjóð­fé­lagar eru skikk­aðir með lögum til að greiða til þeirra.

Sólveig Anna skrifar í færslu sinni að full­trúar trún­að­ar­ráðs Eflingar hafi á fundum sínum síð­ustu miss­eri margoft furðað sig á „hinu stór­kost­lega íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfi. Sjóð­irnir henda pen­ingum okkar í sukk án þess að nokkur beri ábyrgð á því, og fjár­festa líkt og eng­inn sé morg­un­dagur í fyr­ir­tækjum sem ráð­ast á grunn­rétt­indi okkar. Við erum skikkuð til að borga í þessa sjóði, en höfum samt engin áhrif á þá. Er það ekki merki­legt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár