Fylgi við Guðna minnkar en aðrir frambjóðendur bæta við sig

Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur enn stuðn­ings meiri­hluta þjóð­ar­innar í emb­ætti for­seta Íslands sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar kosn­inga­spár. Davíð, Andri og Halla bæta við sig fylgi.

Guðni mælist enn með stuðning meira en 60 prósent kjósenda. Aðrir frambjóðendur myndu mest hljóta ríflega 20 prósent atkvæða.
Guðni mælist enn með stuðn­ing meira en 60 pró­sent kjós­enda. Aðrir fram­bjóð­endur myndu mest hljóta ríf­lega 20 pró­sent atkvæða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stuðn­ingur við fram­boð Guðna Th. Jóhann­es­sonar, sagn­fræð­ings, í emb­ætti for­seta Íslands hefur minnkað nokkuð síðan fyrsta kosn­inga­spáin um nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna var gerð 13. maí síð­ast­lið­inn. Ný kosn­inga­spá var gerð föstu­dag­inn 27. maí og mælir Guðna með stuðn­ing 60,5 pró­sent kjós­enda, miðað við þau 67,8 pró­sent sem hann hefur mest mælst með 14. maí.

Guðni er þó enn lang vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn af þeim níu sem gefa kost á sér. Næstur kemur Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, með 20,3 pró­sent stuðn­ing. Fylgi við Davíð hefur auk­ist stöðugt milli þess sem kosn­inga­spá er gerð úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands. Þann 13. maí mæld­ist Davíð með 14,3 pró­sent atkvæða.

[adspot]

Næstur þar á eftir mælist Andri Snær Magnason, rit­höf­undur, með 11,7 pró­sent. Það er einnig það mesta sem Andri Snær hefur mælst með síðan kosn­inga­spáin var fyrst gerð. Sömu sögu er að segja um stuðn­ing við fram­boð Höllu Tóm­as­dóttur, athafna­konu. Hún mælist nú með stuðn­ing 3,8 pró­sent kjós­enda.

Aðrir fram­bjóð­endur myndu fá minna en tvö pró­sent atkvæða ef gengið yrði að kjör­borð­inu nú. Alls eru níu í fram­boði. Þau sem ekki hafa verið nefnd hér að ofan eru Sturla Jónsson, Elísabet Jök­uls­dóttir, Ástþór Magn­ús­son, Hildur Þórð­ar­dóttir og Guðrún Margrét Páls­dóttir.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar. Kjarninn hefur áður birt nið­ur­stöður kosn­inga­spálík­ans­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík. Þá verða nið­ur­stöður lík­ans­ins um fylgi stjórn­mála­flokka í fyr­ir­hug­uðum alþing­is­kosn­ingum birtar á vef Kjarnans í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­­ustu kann­an­­irnar vegn­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Maskínu 20. til 27. maí (vægi 17,9%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 16,4%)
  • Skoð­ana­könnun Fré­lags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir stuðn­ings­menn Guðna Th. Jóhann­es­sonar 23. til 25. maí (vægi 24,4%)
  • Skoð­ana­könnun Gallup fyrir stuðn­ings­menn Davíðs Odds­sonar 19. til 25. maí (vægi 20,8%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 12. til 20. maí (vægi 20,5%)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­inga­úr­slit­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár