Fjármálaráðuneytið telur skaðlaust að greiða tvöfalt hærri bónusa til bankastarfsmanna

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið telur að það yrði að „skað­lausu“ að veita fjár­mála­fyr­ir­tækjum heim­ild til að greiða tvö­falt hærri bón­us­greiðslur en núver­andi reglur kveða á um og þær megi því vera allt að 50 pró­sent af föstum árs­launum starfs­mann. Þá mætti einnig skoða að smærri fjár­mála­fyr­ir­tækjum yrði leyft að greiða hlut­falls­lega enn hærri kaupauka til starfs­manna, til dæmis 100 pró­sent af árs­launum, heldur en stóru við­skipta­bönk­unum. Samkvæmt lögum sem nú eru í gildi mega bónusar starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja vera 25 pró­sent af föstum árs­launum þeirra.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í minn­is­blaði sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi í gær til efna­hags- og við­skipta­nefndar vegna frum­varps sem nefndin hefur til umræðu um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Greint er frá efni bréfs­ins, sem er 28 blað­síður, í DV í dag.

Andstætt stefnu Framsóknarflokksins


Ljóst er að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verður ekki hrif­inn af þess­ari hug­mynd. Á flokks­þingi hans fyrr í þessum mán­uði var sam­þykkt til­laga Karls Garð­ars­sonar, þing­manns flokks­ins, um að bónusar í banka­kerf­inu verði alfarið bann­aðir. Í álykt­unum flokks­þings­ins segir: "Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er and­vígur heim­ildum til kaupauka í fjár­mála­fyr­ir­tækjum."

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýndi umræðu um hækkun á banka­bón­usum harð­lega í ræðu sinni á árs­fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins þann 16. apríl síð­ast­lið­inn. „Óskir um fjór­falda hækkun banka­bónusa er af sama meiði. Banka­kerfi í höftum, varið að mestu fyrir erlendri sam­keppni, býr ekki til slík verð­mæti að það rétt­læti að launa­kerfi þess séu á skjön við aðra mark­aði og rétt­læt­is­kennd almenn­ings.“

Afstaða Fram­sókn­ar­flokks er því í and­stöðu við þá stefnu um bónusa í fjár­mála­kerf­inu sem mörkuð er í minni­blaði ráðu­neytis Bjarna Bene­dikts­sonar.

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja skil­uðu nýverið umsögn um frum­varpið þar sem fram kom að tak­mörkun á bón­us­greiðslum væri íþyngj­andi að þeirra mati. Samtökin lögðu til að evr­ópskur lag­ara­mmi yrði full­nýttur og fjár­mála­fyr­ir­tækjum gert kleift að greiða starfs­mönnum sínum á bil­inu 100 til 200 pró­senta af árs­launum í kaupauka.

Tveir bankar hafa gjaldfært 1,5 milljarð vegna bónusa á tveimur árum


Íslands­banki og Arion banki gjald­færðu sam­tals um 835 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna til starfs­manna sinna á síð­asta ári. Um hund­rað starfs­menn fá slíkar greiðslur hjá hvorum banka fyrir sig. Arion banki gjald­færði 477 millj­ónir króna í fyrra sem var 25 millj­ónum króna meira en árið á undan. Samtals hefur bank­inn því gjald­fært tæpan millj­arð króna vegna kaupa­auka­kerfis síns á síð­ustu tveimur árum. Íslands­banki gjald­færði 258 millj­ónir króna í fyrra, eða 17 millj­ónum krónum meira en árið 2013. Samtals nema kaupaukar til starfs­manna bank­ans því rúmum hálfum millj­arði króna á tveimur árum.

Vert er að taka fram að í sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er greiðslu á að minnsta kosti 40 pró­sent kaupauka frestað um þrjú ár.







Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðslur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar 0,78 pró­sent gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Heild­ar­greiðslan verður um 200 millj­ónir króna. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár