Sigmundur Davíð: Bankakerfi í höftum réttlætir ekki fjórfalda bónusa

„Tug­pró­senta hækkun stjórn­ar­launa í fyr­ir­tækjum eru kol­röng og óábyrg skila­boð inn í sam­fé­lagið á þessum tíma. Við þurfum sam­eig­in­lega að byggja upp þjóð­fé­lag festu og stöð­ug­leika og slíkar hækk­anir hjálpa ekki til við það,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, á árs­fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins í dag. Ástandið á vinnu­mark­aðnum var aðal­um­fjöll­un­ar­efni for­sæt­is­ráð­herra í ræðu sinni.

Auk hækk­unar á stjórn­ar­launum gagn­rýndi for­sæt­is­ráð­herra umræðu um hækkun á banka­bón­usum. „Óskir um fjór­falda hækkun banka­bónusa er af sama meiði. Banka­kerfi í höftum, varið að mestu fyrir erlendri sam­keppni, býr ekki til slík verð­mæti að það rétt­læti að launa­kerfi þess séu á skjön við aðra mark­aði og rétt­læt­is­kennd almenn­ings.“

Sig­mundur sagði stöðu efna­hags­mála á Íslandi góða og mögu­leikar til áfram­hald­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingar mikla. Hann sagði jafn­framt að launa­þróun hefði verið „merki­lega“ lík á milli stétta und­an­farin ár. „Helstu breyt­ing­arnar eru þær að lægri laun hafa hækkað meira en með­al­launin, laun verka­fólks hafa hækkað meira en stjórn­enda og laun kvenna hafa hækkað meira en laun karla. Fá lönd eru nú með meiri tekju­jöfnuð en Ísland.“

Sig­mundur sagði ólgu á vinnu­mark­aði nú stafa af því að „loks­ins sé eitt­hvað til skipt­anna og allir vilji fá sinn rétt­mæta hlut af nýrri verð­mæta­sköpun.“ Það sé lang­tíma­verk­efni að vinna að auk­inni kaup­mátt­ar­aukn­ingu með auk­inni fram­leiðslu og fram­leiðni. „Rík­is­stjórn getur stutt við slíka þróun, en fyrst og fremst er það í valdi aðila vinnu­mark­að­ar­ins að ná því fram. Það ætti flestum að vera ljóst að á þennan hátt, og þennan hátt einan, er hægt að bæta lífs­kjör var­an­lega.“

Rík­is­stjórnin væri reiðu­búin að taka þátt í skyn­sam­legum aðgerðum sem gætu leitt til kjara­samn­inga sem ekki ógni stöð­ug­leika, en hún muni „leggj­ast á árarnar með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins“ um að ekki verði gerðir verð­bólgu­hvetj­andi kjara­samn­ingar. „Verð­bólgu­samn­ingar leiða til minni kjara­bóta fyrir laun­þega, meiri og síend­ur­tek­inna átaka og end­ur­tek­inna leið­rétt­inga á vinnu­mark­aði, hækk­unar verð­tryggðra skulda og geng­is­lækk­unar. Allt bitnar þetta á sam­fé­lag­inu öllu en verst á fólki með lægri- og milli­tekjur. Við yrðum mörg ár að vinna okkur út úr slíkum vanda og því megum við ekki kalla hann yfir okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár