Tíu staðreyndir um sæstrengsmöguleikann

Sæstrengur eða ekki sæstrengur? Það er spurn­ingin. Nýlegar skýrslur um mögu­leik­ann á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands draga fram heild­ar­mynd af risa­vöxnu mögu­legu verk­efni.

Í fyrra­dag voru kynnt gögn um mögu­lega lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands. Þar á meðal var ítar­leg skýrslu bank­ans Kviku, en Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri bank­ans, kynnti hana á blaða­mann­fundi, sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hélt. Í skýrsl­unni frá Kviku var farið yfir sæstrengs­verk­efnið heild­stætt.

Helstu atriði sem tengj­ast sæstrengnum voru til umfjöll­unar, í kjöl­far fund­ar­ins, en mörg atriði til við­bótar við þau sem tengj­ast kostn­aði og verk­fræði­legum for­sendum verk­efn­is­ins geta einnig haft mikið um fram­gangs máls­ins.

1. Brexit-kosn­ing­arnar í Bret­landi, sem þegar hafa valdið miklum póli­tískum glund­roða í Bret­landi, geta haft mikil áhrif á verk­efnið. Með form­legri útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, sem ekki hefur átt sér stað ennþá og óvissa er um hvernig verður útfærð, missir Bretland aðgang að nið­ur­greiðslu­sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins þegar kemur að upp­bygg­ingu orku­mann­virkja, nema sér­stak­lega verði um það samið. Þessi nýi póli­tíski veru­leiki Bret­lands gæti því haft áhrif á fram­hald máls­ins, af hálfu Breta.

2. Sæstreng­ur­inn milli Íslands og Bret­lands yrði um þús­und kíló­metra langur, og sá lengsti í heim­inum miðað við núver­andi stöðu. Bretar eru hins vegar með mörg verk­efni á teikni­borð­inu, þegar kemur að sæstrengjum, eða níu tals­ins. Þetta var eitt af því sem var nefnt á blaða­manna­fund­inum.

3. Hvers vegna eru mörg risa­vaxin sæstrengja­verk­efni nú í skoðun hjá Bretum og raunar mörgum fleiri þjóðum? Ástæðan er meðal ann­ars krafa um að styrkja orku­kerfi þjóða heims­ins, með teng­ingum, til að stuðla að betri nýtni orkunnar og skapa for­sendur fyrir umhverf­is­vænni orku, sem svo stuðlar að minni mengun. Par­ís­ar­sam­komu­lagið svo­nefnda, þar sem þjóðir heims­ins skuld­bundu sig til aðgerða gegn hlýnun jarðar og mengun af manna­völdum, ýtir enn frekar undir lagn­ingu sæstrengja.

4. Kostn­aður við sæstreng­inn milli Íslands og Bret­lands er álit­inn á bil­inu 750 til 1000 millj­arðar króna, sé heild­ar­fram­kvæmdin skoðuð. Það er tengi­mann­virki, við­bót­ar­virkjarnir og styrk­ing raf­orku­kerf­is­ins á Íslandi. Hægt er að fara ýmsar leiðir við fjár­mögnun verk­efn­is­ins. Ekki er gert ráð fyrir að ríkið fjár­magni sæstreng­inn og eigi hann.

5. Verk­efn­is­stjórn sæstrengs hefur nú skilað loka­skýrslum til iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra vegna umræddra verk­efna. Meðal þess sem þær skýrslur fela í sér er heild­stæð kostn­aðar- og ábata­grein­ing og mat á áhrifum sæstrengs á efna­hag, heim­ili og atvinnu­líf, kort­lagn­ing á eft­ir­spurn eftir raf­orku næstu árin, raf­orku­þörf sæstrengs og hvernig mæta eigi henni, mat á afgangsorku, áhrif á flutn­ings­kerfi raf­orku, ýmis tækni­leg atriði, mat á nýt­ingu jarða og rekstri smærri virkj­ana, umhverf­is­á­hrif, þróun orku­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins og reynsla Noregs.

6. Ragn­heiður Elín lagði áherslu á aðrík­is­stjórnin sem nú heldur um þræð­ina, myndi ekki taka neina ákvörðun um verk­efnið, heldur frekar reyna að stuðla að meiri upp­lýs­ingu og dýpri umræðu.

7. Kostn­aðar- og ábata­grein­ing á sæstreng til Bret­lands leiðir í ljós að verk­efnið nær ekki lág­marks­arð­semi nema til komi beinn stuðn­ingur frá breskum stjórn­völdum, segir í til­kynn­ingu stjórn­valda. Þessi staða, það er að Bretar þurfi að borga með því að eða að styrkja það sér­stak­lega, hefur raunar legið fyrir frá því sæstrengs­hug­myndin var rædd á nýjan leik. Á síð­ustu sex ára­tugum hefur sæstrengs­hug­myndin komið til umræðu reglu­lega, en núna þykir alveg óum­deilt að verk­efnið er tækni­lega mögu­legt.

8. Vegna sér­stöðu verk­efn­is­ins þarf að sér­sníða við­skipta­líkan, stuðn­ings­kerfi og reglu­verk fyrir verk­efnið. Að því gefnu að það gangi eftir geta jákvæði áhrif á lands­fram­leiðslu verið umtals­verð (1,2-1,6%). Miðað við for­sendur verk­efn­is­ins, sem horft er til í skýrslu Kviku um það, þá gæti ábati fyrir Íslands og Bretland numið tæp­lega 200 millj­örðum króna.

9. Ramma­á­ætlun um virkjun og verndun, þar sem lín­urnar eru lagðar til fram­tíðar litið, mun skipta sköpum um sæstrengs­verk­efnið, og raun segja til um hvort það er yfir höfuð mögu­leiki.

10. „Það er ekki þörf á tveimur Kára­hnjúka­virkj­un­um. Og það hefur hvergi komið fram að mér vit­andi, og svo sann­ar­lega ekki í þess­ari skýrslu og ekki í neinu sem við höfum lagt til. Skýrslan ­gerir ein­göngu ráð fyrir að það séu um 250 mega­vött úr hefð­bundnum virkj­unum eins og við þekkjum þær, sem er ígildi einnar Hraun­eyj­ar­foss­virkj­unnar eða innan við helm­ing af einni Kára­hnjúka­virkj­un.“ Þetta sagði Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, þegar hann var spurður út í hvað þyrfti að virkja mikið til að sæstreng­ur­inn gæti orðið að veru­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár