Finnur kannast ekki við að Hauck & Aufhäuser hafi verið leppur

Frétt Morgunblaðsins dag­inn eftir að S-hóp­ur­inn gekk frá kaup­unum á Bún­að­ar­bank­an­um árið 2003. Þar sjást Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson, sem skrifuðu undir kaupin fyrir hönd S-hópsins, keyra á brott.
Frétt Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir að S-hóp­ur­inn gekk frá kaup­unum á Bún­að­ar­bank­an­um árið 2003. Þar sjást Ólafur Ólafsson og Finnur Ing­ólfs­son, sem skrif­uðu undir kaupin fyrir hönd S-hóps­ins, keyra á brott. Mynd: Skjáskot af frétt Morgunblaðsins.

Finnur Ing­ólfs­son, sem var for­stjóri VÍS árið 2003 og leiddi kaup S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum með Ólafi Ólafs­syni, segir að sér sé „algjör­lega ókunn­ugt um“ að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser hafi verið leppur í kaup­unum á bank­anum. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Finnur var vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ráð­herra og seðla­banka­stjóri áður en hann snéri sér að við­skiptum og tók þátt í kaupum á bank­anum af rík­inu.

Aðkoma þýska bank­ans að kaup­unum hefur verið tor­tryggð nán­ast frá því að gengið var frá kaupum S-hóps­ins á kjöl­festu­hlut í Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Hauck & Auf­häuser var enda ein­ungis kynntur til sög­unnar sem með­fjár­festir örfáum dögum áður en kaup­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður en áður hafði verið gefið sterk­lega í skyn við fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu að franski stór­bank­inn Societe General væri sú erlenda fjár­mála­stofnun sem væri að fjár­festa með hinum aðilum S-hóps­ins. Aðkoma erlends banka var lyk­il­at­riði í því að rétt­læta sölu á Bún­að­ar­bank­anum til hóps­ins. Tveimur árum eftir að gengið var frá söl­unni hafði Hauck & Auf­häuser selt allt hluta­féð sem bank­inn var skráður fyrir til ann­arra með­lima S-hóps­ins.

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, sendi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd óvænt bréf í síð­ustu viku þar sem hann lagði til að rann­sókn­ar­nefnd yrði skipuð um aðkomu þýska bank­ans að kaup­unum. Hann hefði nýjar upp­lýs­ingar sem varpað gætu ljósi á raun­veru­legu aðkomu Hauck & Auf­häuser að þeim. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd virð­ist ætla að verða við þeirri beiðni Tryggva, sem sjálfur hefur boð­ist til að starfa með nefnd­inni, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sagt að hann sé sam­þykkur rann­sókn.

Finnur spyr Frétta­blaðið hvort því þyki lík­legt að alþjóð­legur banki standi í því að vera leppur fyrir annan aðila? Hann sagði það vera sér algjör­lega ókunn­ugt og hann viti ekki til þess að það hafi verið. „Enda ef þú leitar í gögnum Rík­is­end­ur­skoð­unar sem skoð­aði þetta mál, þá getur þú séð að það er stað­fest­ing þar frá KPMG end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2006 um að bank­inn er skráður eig­andi og hefur fært þetta í bækur sínar og það er líka þar yfir­lýs­ing frá stjórn­endum þessa banka um að þeir séu eig­endur að þessum bréfum í Eglu[ráð­andi aðila í S-hópnum].“

Í blað­inu er einnig rætt við Guðmund Hjalta­son, fyrrum for­stjóra Eglu. Hauck & Auf­häuser veitti umboð til að fara með hlut sinn í Bún­að­ar­bank­anum á meðan að á meintu eign­ar­haldi þýska bank­ans stóð. Hann sagð­ist heldur ekki vita til þess að þýski bank­inn hafi verið leppur fyrir aðra. „Ég þekki það ekki og ég þekki engan sem þekkir það, svo ég viti til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár