Lélegur árangur flestra innlendra hlutabréfasjóða

Und­an­farið ár hefur ekki verið gott þegar horft er til hluta­bréfa­sjóða sem ávaxta sparnað lands­manna upp á ríf­lega 80 millj­arða króna.

Á sama tíma og vísi­tala íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins hefur lækkað um tæp­lega þrjú pró­sent á und­an­förnu ári, þá hafa hluta­bréfa­sjóðir sem ein­blína á íslenska­mark­að­inn skilað mun lak­ari nið­ur­stöðu. Þannig hefur sjóðum á Íslandi ekki tek­ist að skila betri nið­ur­stöðu en vísi­tala mark­að­ar­ins sýnir (Beat the Market), sem oft er við­miðið fyrir það sem að lág­marki þarf að ná til að telj­ast við­un­andi við ávöxtun sjóða.

Þrír af ellefu

Einungis þrír sjóðir, sem Keldan mælir ávöxt­un­ina hjá, hafa náð að sýna betri árangur heldur en vísi­tala mark­að­ar­ins en það eru Júpíter - Innlend hluta­bréf, vísi­tölu­sjóður Íslenskra verð­bréfa og síðan GAMMA Equity Fund. Hann hefur skilað bestri ávöxtun allra sjóða á síð­asta árinu, eða 6,12 pró­sent. ÍV sjóð­ur­inn er síðan 2,8 pró­sent ávöxtun og Júpiter 0,69 pró­sent.

Aðrir sjóðir eru allir með nei­kvæða ávöxtun og fyrir neðan þrjú pró­sent.

Sam­an­dregið eru þrír sjóðir eru með jákvæða ávöxtun, en átta nei­kvæða ávöxtun og lak­ari en vísi­tala mark­að­ar­ins.

Samtals eru þeir ell­efu sjóðir sem eru með fjár­fest­ingar sínar í inn­lendum hluta­bréfum um 82 millj­arðar að stærð. Stærstur þeirra er Stefnir ÍS 15 sem er um 38 millj­arðar. Neikvæð ávöxtun hans á und­an­förnu ári er 16,6 pró­sent og er hann með þriðju verstu ávöxt­un­ina af öllum sjóðum.

Verstu sjóð­irnir, þegar horft er til ávöxt­unar á und­an­förnu ári, eru hjá Lands­bréfum. Lands­bréf Úrvals­bréf með nei­kvæða ávöxtun um 18,5 pró­sent og Lands­bréf Önd­veg­is­bréf með nei­kvæða ávöxtun upp á 18,8 pró­sent.

Icelandair hefur dregið sjóðina niður

Ástæðan fyrir slæmri ávöxtun þess­ara þriggja sjóða er sú að þeir eru allir með drjúgan hluta af eignum sínum í bréfum Icelandair Group sem hafa lækkað mikið á und­an­förnu ári, eða úr ríf­lega 40 í 13 nú. Félagið er nú 64 millj­arða króna virði en var fyrir um ári um 190 millj­arða virði.

Hjá Stefni ÍS 15 eru 16,3 pró­sent eigna í bréfum Icelandair, hjá Lands­bréfum Úrvals­bréfum 21,7 pró­sent og hjá Lands­bréfum Önd­veg­is­bréfum 18,3 pró­sent.

Sé með­al­tal allra sjóð­anna tekið saman, og það skoðað í sam­hengi við þróun á vísi­tölu mark­að­ar­ins á und­an­förnu ári, þá er með­al­tals­á­vöxtun sjóð­anna nei­kvæð um 6,4 pró­sent á sama tíma og vísi­tala mark­að­ar­ins hefur lækkað um tæp­lega þrjú pró­sent.

Uppgangur á síðustu árum

Þrátt fyrir að und­an­farið ár hafi verið frekar slæmt á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, þvert á mik­inn gang í efna­hags­málum þjóð­ar­innar, þá hefur hækk­unin á und­an­förnum árum verið mikil. Á síð­ustu fimm árum hefur vísi­talan farið úr ríf­lega þús­und í ríf­lega 1.750 nú. Fyrir um ári var hún í hæstu hæðum frá end­ur­reisn­inni eftir hrun, ríf­lega 1.940.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár