Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að ákvarðanir um að hækka laun nokkra forstjóra ríkisfyrirtækja um tugi prósenta hafi sent röng skilaboð inn í þær viðræður sem Samtök atvinnulífsins eiga við verkalýðsforystuna um þessar mundir. „Þetta hefur valdið mjög miklum skaða. Það er mjög erfitt fyrir okkur að kljást við þetta. Þetta eru siðferðisleg álitaefni, þetta eru kannski hlutir sem skipta kannski ekki öllu máli í þessu þjóðhagslega samhengi en hafa ofboðslega slæm áhrif á mórallinn í þessum viðræðum og þar af leiðandi eitthvað sem ég hef talað mjög hart gegn.“
Þetta er meðal þess sem Halldór sagði í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í vikunni.
Þar ræddi hann meðal annars stöðu mála í kjaraviðræðum, yfirvofandi verkföll og útspil ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir lausn í viðræðum vinnumarkaðarins. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvöldsins hér að neðan.
Halldór ræddi líka um það hvernig kjarabaráttan færi nú fram, en mikil átök geisa á mörgum örðum vígvöllum en einungis við samningaborðið í Karphúsinu. Það er til að mynda hart tekist á á samfélagsmiðlum. „Ég held að mín mesta gæfa í lífinu sé sú að hafa aldrei verið á Facebook. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun,“ sagði Halldór.
[adspot]Hann sagðist hafa reynt að leggja áherslu á að málflutningur Samtaka atvinnulífsins væri með þeim hætti að yfirvegað yfirbragð væri á honum. Íslendingar þekki vel gang hagsveiflunnar hérlendis, hinar miklu uppsveiflur, og muni vel eftir því hvaða áhrif miklar niðursveiflur hafa til að mynda á lán heimila. „Það er örugglega engin þjóð sem er betur að sér í áhrifum verðbólgu á hag almennings en akkúrat Íslendingar. Við munum alveg hvernig er að kljást við fasteignalán í vaxandi verðbólgu. Við eigum að forðast að hleypa verðbólgunni af stað og við eigum að forðast það að ganga svo hart að fyrirtækjunum í landinu að þeirra eina andsvar verði að fara í uppsagnir í mjög stórum stíl.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir