Mynd: EPA

Hjarðónæmi sífellt fjarlægari draumur

Fjöl­margar hindr­anir þyrfti að yfir­stíga svo hjarð­ó­næmi gegn COVID-19 verði að veru­leika. Nýju og meira smit­andi afbrigðin breyta jöfn­unni og hækka nauð­syn­legt hlut­fall bólu­settra til að ónæmi sam­fé­lags náist.

Hjarð­ó­næmi. Tak­markið – enda­punkt­ur­inn – sem mun gera okkur kleift að snúa aftur til „venju­legs lífs“ og kveðja tak­mark­anir vegna kór­ónu­veirunnar fyrir fullt og allt, hefur verið öllum ofar­lega í huga í heilt ár. En er það raun­hæft mark­mið? Fjöl­margir sér­fræð­ingar vest­an­hafs sögðu nýverið við New York Times að svo væri lík­leg­ast ekki – að minnsta kosti í fyr­ir­séðri fram­tíð. Fleiri sér­fræð­ingar á sviði smit­sjúk­dóma og far­alds­fræða hafa tekið undir þessi sjón­ar­mið og bent á að ekki sé hægt að tala um hjarð­ó­næmi gegn COVID-19 fyrr en öll heims­byggðin kemst á svip­aðar slóðir í bólu­setn­ingum.

En fleira kemur til en gríð­ar­leg mis­skipt­ing bólu­efna um heim­inn. Tregða til bólu­setn­inga er nú ber­sýni­lega að koma í ljós m.a. í Banda­ríkj­unum, Bret­landi og í Ísrael þar sem erf­ið­lega gengur, eftir góða byrjun, að ná því að bólu­setja 70 pró­sent full­orð­inna. Í þriðja lagi er enn nokkuð í að börn og ung­lingar verði bólu­sett og í fjórða lagi er enn ekki full­ljóst hvort bólu­settir beri veiruna og geti smitað aðra. Þá vitum við ekki heldur hversu lengi vörn bólu­efna og nátt­úr­legrar sýk­ingar varir.

Og svo eru það nýju afbrigði veirunnar. Þessi sem eru meira smit­andi og valda mögu­lega alvar­legri veik­indum. Á meðan bólu­setn­ingar eru ekki útbreiddar alls staðar, hvar svo sem fólk kann að búa á plánet­unni, munu þau halda áfram að koma fram og breið­ast út – líka til þeirra landa þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall er hátt.

Hjarð­ó­næmi virð­ist því sífellt fjar­læg­ari draumur og er að minnsta kosti ekki handan við hornið. Hins vegar er eft­ir­sókn­ar­vert að ná því mark­miði á alþjóða­vísu og á þeirri veg­ferð von­andi ná að lág­marka ógn­ina sem af sjúk­dómnum stafar.

Hjarð­ó­næmi er hug­tak úr smit­sjúk­dóma­fræð­unum sem næst þegar nægi­lega margir ein­stak­lingar eru orðnir ónæmir fyrir ákveðnum smit­sjúk­dómi til að koma í veg fyrir far­aldur af hans völdum. Ónæmið getur feng­ist með ýmist því að nægi­lega margir hafi sýkst eða að nægi­lega margir hafi verið bólu­settir. Eða blöndu af hvoru tveggja. En hversu margir eru nægi­lega margir þegar kemur að COVID-19?

Við höfum frá upp­hafi far­ald­urs­ins heyrt tölur á borð við 60-70 pró­sent. En nú, með meira smit­andi afbrigðum, eru sér­fræð­ingar farnir að hall­ast að því að mun hærra hlut­fall fólks, jafn­vel 90 pró­sent, þurfi að verða ónæmt svo að hið marg­um­tal­aða hjarð­ó­næmi sé mögu­legt.

Yfir helm­ingur full­orð­inna í Banda­ríkj­unum hefur fengið að minnsta kosti annan skammt­inn af bólu­efni. Bjart­sýni hefur svifið yfir vötnum sam­hliða auknu fram­boði á bólu­efnum. Og þó. Sér­fræð­ingar eru sam­tímis farnir að efast um að hjarð­ó­næmi náist í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Þeir telja þá stað­reynd blasa við að kór­ónu­veiran haldi áfram að finn­ast í Banda­ríkj­unum um ókomna tíð þó að hætt­unni af henni verði hægt að halda í skefjum. Það þýði að ein­hverjir muni áfram veikj­ast alvar­lega og deyja vegna COVID-19 en í mun minna mæli en í þeim bylgjum sem þegar hafa gengið yfir. Veiran breyt­ist of hratt, ný afbrigði breið­ast of hratt út og bólu­setn­ingar eru á sama tíma að ger­ast of hægt. „Það er ólík­legt að veiran hverfi,“ segir Rustom Antia, þró­un­ar­líf­fræð­ingur við háskóla í Atlanta, við New York Times. „En við verðum að gera hvað við getum til milda áhrifin.“

Ráðhúsið í Boston upplýst til minningar um fórnarlömb COVID-19 í Bandaríkjunum.
Ráðhúsið í Boston upp­lýst til minn­ingar um fórn­ar­lömb COVID-19 í Banda­ríkj­unum.

Þó að hjarð­ó­næmi muni ekki nást á næst­unni, og alveg örugg­lega ekki í sumar líkt og sumir sér­fræð­ingar vest­an­hafs héldu fram, verða bólu­setn­ingar áfram lyk­il­inn að því að halda veirunni í skefjum. Anthony S. Fauci, helsti ráð­gjafi rík­is­stjórnar Joe Bidens í tengslum við far­ald­ur­inn, segir í grein New York Times að ákveð­ins mis­skiln­ings hafi kannski gætt meðal almenn­ings þegar kæmi að hjarð­ó­næmi. Hann seg­ist hafa hætt að nota það hug­tak í opin­berri orð­ræðu fyrir nokkru en minna þess í stað á að ef nægi­lega margir verði bólu­settir muni smitum fara fækk­andi.

Allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins var rætt um, hér á Íslandi sem og ann­ars staðar, að hjarð­ó­næm­is­þrösk­uldur vegna COVID-19 væri mögu­lega um 60-70 pró­sent og var það m.a. hlut­fallið sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) mið­aði við í fyrstu. Sum sé að svo stór hluti þýð­is­ins (t.d. íslensku þjóð­ar­innar) þyrfti að vera orð­inn ónæmur fyrir veirunni til að hægt væri að tala um hjarð­ó­næmi innan þess. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hækk­uðu töl­una í 75-85 pró­sent í lok síð­asta árs. Fauci var meðal þeirra sem sagði það mark­mið geta náðst með víð­tækri bólu­setn­ingu.

En pró­sentan sem þarf til að kom­ast yfir hjarð­ó­næm­is­þrösk­uld­inn hefur haldið áfram að hækka. Skýr­ingin er sú að fyrstu útreikn­ingar mið­uð­ust við smit­stuðul fyrstu afbrigða hennar – ekki þeirra sem síðar hafa komið fram, m.a. þess breska, suð­ur­a­fríska, brasil­íska og nú ind­verska, sem eru meira smit­andi en önnur. Því vilja sumir meina að hlut­fallstalan sé komin upp í 90 pró­sent. Eða jafn­vel meira. Aðrir benda á að ekki dugi að miða ein­göngu við full­orðna í þessu sam­bandi þó að börn veik­ist síður og smiti aðra síður, fái þau COVID-19. Þegar far­aldur geisar innan ákveð­ins hóps, þó að ein­stak­lingar innan hans séu að með­al­tali ólík­legri en aðrir til að veikj­ast alvar­lega, fara sjald­séðir atburðir að ger­ast.

Ástvinur fylgir aldraðri konu í bólusetningu á Ítalíu.
Ástvinur fylgir aldr­aðri konu í bólu­setn­ingu á Ítalíu.

Vandinn sem Banda­ríkja­menn standa einnig frammi fyrir er að um þriðj­ungur full­orð­inna er enn hik­andi við að fá bólu­setn­ingu. Í fleiri löndum þar sem bólu­setn­ingar eru langt komnar, t.d. Í Bret­landi og Ísrael, er svipað uppi á ten­ingnum. Það kvarn­ast stöðugt úr hópi efa­semda­manna eftir því sem fólk fær meiri upp­lýs­ingar um bólu­efnin, en engu að síður má gera ráð fyrir að alltaf verði tölu­verður fjöldi sem ein­fald­lega hafnar bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Mjög ólík­legt verður til dæmis að telja að 90 pró­sent Banda­ríkja­manna muni á ein­hverjum tíma­punkti vera orðnir full­bólu­settir. Til að bregð­ast við þess­ari tregðu hefur verið gripið til ýmissa ráða. Í Ísrael er t.d. reynt að lokka ungt fólk í bólu­setn­ingu með pizzum og bjór. Í Ohio-ríki í Banda­ríkj­unum hefur verið brugðið á það ráð að efna til happ­drættis. Í fimm vikur verður reglu­lega dregið úr nöfnum bólu­settra íbúa og þeir verð­laun­aðir með 1 milljón doll­ara. Í Þýska­landi eru sér­stök teymi gerð út af örk­inni til að nálg­ast ákveðna hópa í sam­fé­lag­inu á þeirra for­sendum, í þeirra hverfum og á þeirra heim­ilum eða sam­komu­stöðum.

Annað vanda­mál felst í mis­mun­andi hlut­falli bólu­settra eftir svæðum, ríkjum og á heims­vísu. Segjum sem svo að 95 pró­sent ákveð­innar þjóðar séu bólu­sett en í einum bæ sé hlut­fallið ekki nema 70 pró­sent eða jafn­vel lægra. Þá skapar það hættu á hóp­sýk­ingum. Jafnvel stórum. Og lík­leg­ast þá lífs­hættu­legum. Við vitum hvernig kór­ónu­veiran smit­ast. Við vitum að hegðun fólks er stóra breytan í því sam­bandi.

Bólusettar vinkonur spjalla fyrir utan hárgreiðslstofu í Ísrael.
Bólu­settar vin­konur spjalla fyrir utan hár­greiðsl­stofu í Ísrael.

Ferðalög milli svæða, sér­stak­lega þegar farið er að slaka á tak­mörk­unum á þeim, gerir það að verkum að hjarð­ó­næmi ákveð­ins sam­fé­lags er alls ekki nóg. Á meðan stórir hópar fólks, heilu löndin og jafn­vel heims­álf­urnar, eru með hlut­falls­lega lítið ónæmi, mun veiran halda áfram að grass­era, stökk­breyt­ast og að end­ingu breið­ast út til hinna bólu­settu landa. Um 2 pró­sent Indverja hafa verið bólu­settir. Innan við 1 pró­sent íbúa Suður-Afríku og flestra ann­arra Afr­íku­landa sem og ann­arra fátækra ríkja heims, svo dæmi séu tekin. Aðeins brot af þjóðum heims hafa náð þeim áfanga að hefja bólu­setn­ingu hjá helm­ingi full­orð­inna. „Við munum ekki fá hjarð­ó­næmi sem land, sem ríki eða sem borg fyrr en búið verður að ná ónæmi meðal jarð­ar­búa allra,“ hefur New York Times eftir Lauren Ancel Meyers, sér­fræð­ingi í líf­töl­fræði við háskól­ann í Austin í Texas.

Bólu­setn­ingar við­kvæm­ustu hópa fólks hafa þegar dregið veru­lega úr sjúkra­húsinn­lögnum í mörgum ríkjum. Ef ónæmi þeirra verður við­haldið mun COVID-19 mögu­lega verða árs­tíða­bund­inn sjúk­dómur fyrst og fremst, líkt og inflú­ensa. Það mun ekki koll­varpa heil­brigð­is­kerf­unum en valda engu að síður hóp­sýk­ingum annað slagið. Bólu­setn­ing gegn COVID-19, skimun og smitrakn­ing eru því ekki átaks­verk­efni til nokk­urra mán­aða. Það verða verk­efni til næstu ára og jafn­vel ára­tuga.

Veirur stökk­breyt­ast og kór­ónu­veiran hefur sýnt sér­staka hæfi­leika þegar kemur að því. Það kann að vera að veiran verði fær­ari í því að kom­ast í gegnum varnir lík­am­ans sem mynd­ast við bólu­setn­ingu. „Það er hin martrað­ar­kennda sviðs­mynd,“ hefur New York Times eftir Jeffrey Shaman, far­alds­fræð­ingi við Columbia-háskóla. Því muni sér­fræð­ingar stöðugt þurfa að fylgj­ast með nýju afbrigð­unum og hvað þau eru fær um að gera. „Kannski almenn­ingur geti hætt að hafa miklar áhyggjur en við munum áfram gera það.“

Á meðan ný og meira smit­andi afbrigði veirunnar koma fram á sjón­ar­sviðið mun þurfa að end­ur­bólu­setja fólk til að við­halda ónæmi þess og þar með sam­fé­laga. Vís­inda­menn við London School of Hygiene and Tropical Medicine skrifa í nýlega birtri grein að alltaf ætti að miða að því að ná 100 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­falli. Að það mark­mið náist sé þó ólík­legt þegar kemur að COVID-19 en með því að stefna þangað verði von­andi hægt að kom­ast yfir hjarð­ó­næm­is­þrösk­uld­inn.

„Við erum að fær­ast frá þeirri hug­mynd að við munum kom­ast yfir hjarð­ó­næm­is­þrösk­uld­inn og að með því muni far­ald­ur­inn hverfa fyrir fullt og allt,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir far­alds­fræð­ingnum Lauren Ancel Meyers sem fer fyrir gerð spálík­ana um heims­far­ald­ur­inn við Texas-háskóla. Hins vegar megi ekki gleyma því að bólu­setn­ingar séu vissu­lega að gera mjög mikið gagn og hjálpa til við að draga úr alvar­leika far­ald­urs­ins. En á meðan ný afbrigði séu að koma fram og mótefni gegn sýk­ingu dvíni með tím­anum muni glíman við far­ald­ur­inn drag­ast á lang­inn.

Líkkista sótthreinsuð á útfararstofu í Buenos Aires í Argentínu.
Líkkista sótt­hreinsuð á útfar­ar­stofu í Buenos Aires í Argent­ínu.

Geta bólusettir borið veiruna?

Í grein Nature er farið yfir nokkrar þær helstu hindr­anir sem þarf að kom­ast yfir svo að hjarð­ó­næmi náist.

Enn er óljóst hvort að bólu­setn­ing kemur í veg fyrir að fólk beri veiruna í sér og geti því smitað aðra. „Hjarð­ó­næmi kemur aðeins til sög­unnar ef bólu­efni koma í veg fyrir að fólk beri smit. Að öðrum kosti þarf að bólu­setja alla,“ segir Shweta Bansal, töl­fræð­ingur við Georgetown-háskóla. Rann­sóknir á þeim bólu­efnum sem þegar eru komin á markað í þessu sam­bandi eru enn í gangi og þó að til­efni sé til bjart­sýni eru fyrstu nið­ur­stöður ekki óyggj­andi.

Ójöfn dreifing og tregða til bólusetninga

Mikil bólu­setn­ing­ar­her­ferð hófst í Ísrael í des­em­ber. Hún var til­komin vegna ein­staks samn­ings við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer. Framan af gekk hún mjög vel og um miðjan mars hafði um helm­ingur þjóð­ar­innar verið full bólu­settur. En þá fór að bera á tregðu. Meðal ann­ars meðal yngra fólks. Á sama tíma hefur innan við eitt pró­sent nágranna­þjóð­anna, m.a. Líbanons, Sýrlands, Jórdaníu og Egypta­lands verið bólu­settur. Og kór­ónu­veiran þekkir vissu­lega engin landa­mæri.

Bólu­efnum hefur einnig verið mis­jafn­lega dreift innan landa. Þannig er því til dæmis farið í Banda­ríkj­unum. Í ríkjum á borð við Georgíu og Utah hafa innan við 10 pró­sent íbú­anna verið full­bólu­settir en í öðrum er hlut­fallið að nálg­ast tutt­ugu pró­sent svo dæmi séu tekin.

Bólusetningar barna ekki hafnar

Bólu­setn­ingar barna eru ekki hafnar þó að nokkur lyfja- og líf­tækni­fyr­ir­tæki séu byrjuð að taka ung­linga inn í klínískar rann­sóknir sínar og ein­hver jafn­vel börn. Enn eru að minnsta kosti ein­hverjir mán­uðir þar til nið­ur­stöður þess­ara rann­sókna liggja fyrir. Og á meðan börn eru ekki bólu­sett mun þurfa að bólu­setja miklu hærra hlut­fall full­orð­inna til að hjarð­ó­næmi náist. Í Banda­ríkj­unum eru 24 pró­sent íbúa undir átján ára aldri. Ef þessi ald­urs­hópur er óbólu­settur myndi þurfa að bólu­setja alla aðra – 100 pró­sent – til að ná 76 pró­sent ónæm­is­hlut­falli þjóð­ar­innar.

Á Íslandi er ekki mælt með bólu­setn­ingum 18 ára og yngri en þó kemur fram í upp­lýs­ingum yfir­valda að bólu­efni Pfizer-BioNtech megi nota hjá sextán ára og eldri. 20 pró­sent þjóð­ar­innar eru yngri en sextán ára og 24,5 pró­sent eru yngri en átján ára. 65 þús­und ein­stak­lingar hér á landi eru þegar orðnir full­bólu­settir eða 17,2 pró­sent allra þeirra sem hér búa.

Nýju afbrigðin breyta jöfnunni

„Við erum í kapp­hlaupi við nýju afbrigðin,“ segir banda­ríski far­alds­fræð­ing­ur­inn Sara Del Valle, í grein Nature. Því lengur sem það tekur að draga úr smitum af veirunni þeim mun lengri tíma hafa þessi afbrigði til að koma fram og breið­ast út.

Það sem gerð­ist í Brasilíu sé víti til varn­aðar. Í októ­ber voru kenn­ingar uppi um að hjarð­ó­næmi hefði mynd­ast í borg­inni Manaus. Slakað var á. Og hörm­ungar skullu yfir í kjöl­farið. Þá var komið fram á sjón­ar­sviðið nýtt afbrigði, kallað P.1. Svipaða sögu er að segja frá Indlandi þar sem far­ald­ur­inn geisar sem aldrei fyrr og nýtt afbrigði ber uppi þá skæðu bylgju.

Bóluefnaframleiðsla er smám saman að aukast eftir talsverða byrjunarörðugleika, m.a. vegna hráefnaskorts.
Bólu­efna­fram­leiðsla er smám saman að aukast eftir tals­verða byrj­un­arörð­ug­leika, m.a. vegna hrá­efna­skorts.

Ónæmi varir ekki að eilífu

Rann­sóknir sýna að ónæmi þeirra sem sýkst hafa af kór­ónu­veirunni varir oft­ast í að minnsta kosti ein­hverja mán­uði. En hversu lengi það mun vara er enn óljóst enda stutt síðan að far­ald­ur­inn hófst. Og í ein­hverjum til­vikum virð­ist fólk sem sýkst hefur af einu afbrigði geta sýkst aftur af öðru.

Vörnin sem bólu­efnin veitir er góð en hún er ekki full­komin. Og líkt og með nátt­úru­lega sýk­ingu er ekki vitað hversu lengi hún varir og hversu góð hún er til að verj­ast nýjum afbrigðum. Því er nú talið lík­legt að bólu­settir muni þurfa end­ur­bólu­setn­ingu til að við­halda vörn sinni. Þannig er ekki ólík­legt að reglu­leg bólu­setn­ing, rétt eins og gegn inflú­ensu, sé fram­tíðin.

Bóluefnin breyta hegðun fólks

Þegar talað er um hjarð­ó­næmi eru ýmsar breytur teknar inn í jöfn­una. Ein þeirra er hegðun fólks. Þar sem veiran smit­ast með nánd hafa tak­mark­anir á borð við 2 metra regl­una, sem við Íslend­ingar þekkjum svo vel, grímu­skyldu sem og fjölda­tak­mark­anir verið raun­veru­leiki okkar und­an­farna mán­uði. En þegar fólk er orðið bólu­sett er lík­legt að það muni smám saman fara að slaka á í þessu sam­bandi og hverfa aftur til náinna sam­skipta við marga. „Bólu­setn­ing er ekki skot­held,“ segir Dvir Aran, líf­töl­fræð­ingur við Tækni­stofn­un­ina í Haifa í Ísrael. Ef við ímyndum okkur að bólu­efni veiti 90 pró­sent vörn þýði það að ef þú hittir tíu manns í návígi bólu­settur jafn­ist það á við að hafa hitt eina mann­eskju í nánd áður.

Þessi breyta, hegðun fólks, er ein sú flókn­asta þegar kemur að lík­inda­reikn­ingum vegna smit­sjúk­dóma og þá hversu hár hjarð­ó­næm­is­þrösk­uld­ur­inn þarf að vera. Þess vegna telja sumir sér­fræð­ingar að per­sónu­legar sýk­inga­varnir muni áfram þurfa að spila stórt hlut­verk í því að halda veirunni niðri.

Aflétt­ing tak­mark­ana á sam­skiptum fólks verður stóra áskor­unin næstu mán­uði og hvenær rétt er að hefja hana stóra áskorun yfir­valda um allan heim. Hjarð­ó­næm­is­þrösk­uld­ur­inn er ekki „nú erum við örugg-þrösk­uldur,“ hefur Nature eftir Samuel Scarpino, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingi við Northe­astern-háskól­ann í Boston, heldur „við erum örugg­ari-þrösk­uld­ur­inn.“

Að öllu þessu sögðu er það mat margra sér­fræð­inga að raun­hæf­ara sé nú að minnka líkur á hóp­sýk­ingum í stað þess að koma alfarið í veg fyrir smit manna á milli. „Bólu­efnin eru stór­kost­legt fram­fara­skref,“ segir Stefan Flasche, bólu­efna­sér­fræð­ingur og far­alds­fræð­ingur við London School of Hygiene & Tropical Medicine. En það er ólík­legt að þau muni algjör­lega koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Hann segir þetta ekki eins grimmi­lega fram­tíð­ar­sýn og margir eflaust haldi. Með því að lág­marka hætt­una, verja áfram við­kvæma hópa, halda áfram að bólu­setja af kappi, verði hægt að draga veru­lega úr alvar­legum veik­indum vegna COVID-19. Sjúk­dóm­ur­inn muni þó lík­lega ekki hverfa úr sam­fé­lagi manna á næst­unni en ógnin sem af honum stafar minnka veru­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár