Þriðjungi þjóðarinnar finnst forsetaembættið nauðsynlegt

Um 30 pró­sent þjóð­ar­innar finnst for­seta­emb­ættið nauð­syn­legt fyrir íslenskt sam­fé­lag. Tveimur af hverjum þremur finnst það mik­il­vægt. Næstum því þriðj­ungi finnst það skipta litlu máli, er fram kemur í nýrri könnun Maskínu.

Rúmlega tutt­ugu pró­sent aðspurðra finnst emb­ætti for­seta Íslands skipta litlu máli fyrir íslenskt sam­fé­lag. Tveimur af hverjum þremur finnst það skipta miklu máli, þar af finnst um 30 pró­sent emb­ættið vera nauð­syn­legt. Um 12 pró­sent vilja leggja emb­ættið niður, er fram kemur í nýrri könnun Maskínu um mik­il­vægi for­seta­emb­ætt­is­ins.

Tölu­verður munur er á afstöðu kynj­anna, en um 35 pró­sent karla telja for­seta­emb­ættið nauð­syn­legt í íslensku stjórn­kerfi en rúm­lega 25 pró­sent kvenna. Nánast sama hlut­fall beggja kynja vilja þó leggja emb­ættið niður.

Flestum þeim sem yngri eru finnst emb­ættið nauð­syn­legt, en um 47 pró­sent þeirra sem eru undir 25 ára aldri finnst það. Reyk­vík­ingum og Aust­firð­ingum finnst emb­ættið ekki eins nauð­syn­legt og íbúum ann­arra svæða.

Embættið nauðsynlegra hjá Framsókn

Kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins finnst emb­ættið nauð­syn­legra en kjós­endum ann­arra flokka, en um 47 pró­sent þeirra telja það nauð­syn­legt. Lægst er hlut­fallið meðal kjós­enda Vinstri grænna, en ein­ungis 16 pró­sent eru á þeirri skoðun.

Sé afstaða til emb­ætt­is­ins skoðuð eftir því hvaða for­seta­fram­bjóð­anda svar­endur ætla sér að kjósa í næstu kosn­ingum, kemur í ljós að hlut­fall þeirra sem telja emb­ættið nauð­syn­legt er lægst meðal kjós­enda Höllu Tóm­as­dóttur og hæst meðal kjós­enda Davíðs Odds­sonar. Meðal þeirra sem telja emb­ættið ekki nauð­syn­legt, en vilja þó ekki leggja það niður, ætla flestir að kjósa Andra Snæ en fæstir Davíð Oddsson.

Ánægja með störf Ólafs Ragnars

Meiri­hluti svar­enda er ánægður með störf Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, eða á bil­inu 63 til 64 pró­sent. Þar af er þriðj­ungur mjög ánægður. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru ánægð­ari en kjós­endur flokka í stjórn­ar­and­stöð­unni. Ánægjan er minnst meðal þeirra sem ætla sér að kjósa Andra Snæ Magnason sem for­seta í næstu kosn­ingum.

Könnun Maskínu fór fram dag­ana 10. til 13. maí 2016 og voru svar­endur 824 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár