Stórir hlutabréfasjóðir í niðursveiflu

Stærstu eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum lands­ins hefur ekki gengið vel að ávaxta eignir í sjóðum á þeirra vegum að und­an­förnu. Þrátt fyrir mik­inn hag­vöxt og efna­hags­legan upp­gang, þá hafa verið sveiflu­kenndir tímar á hluta­bréfa­mark­aði.

Þrír af fjórum stærstu hluta­bréfa­sjóðum lands­ins, sem skráðir eru sem íslenskir hluta­bréfa­sjóðir á vef Keld­unnar, hafa ekki átt góðu gengi að fagna á mark­aði und­an­farna tólf mán­uði. Stærsti sjóð­ur­inn, Stefnir ÍS 15, er með nei­kvæða ávöxtun upp á tæp­lega 16 pró­sent en stærð þess sjóðs er 37,8 millj­arðar króna.

Versta ávöxt­unin af öllum sjóð­unum er hjá tveimur hluta­bréfa­sjóðum Lands­bréfa. Neikvæð ávöxtun Lands­bréfa - Úrvals­bréfa er 16,8 pró­sent og hjá Lands­bréfum - Önd­veg­is­bréf, er hún 17,3 pró­sent.

Sam­an­lögð stærð þess­ara tveggja sjóða hjá Lands­bréfum nemur um 22,7 millj­örðum króna.

Mikil lækkun á mark­aðsvirði Icelandair hefur komið illa við sjóð Stefnis en eins og staða mála er nú þá er um átján pró­sent af eignum sjóðs­ins í bréfum ferða­þjón­usturis­ans. Stærsta ein­staka eign sjóðs­ins eru hluta­bréf í Marel, sem nú eru um 22 pró­sent af eigna­safn­inu. 

Mark­aðsvirði Icelandair er nú 69 millj­arðar en um mitt ár í fyrra var það 189 millj­arðar.

Hjá báðum sjóð­unum á vegum Lands­bréfa eru skráð hluta­bréf á íslenskum mark­aði lang­sam­lega stærsti hluti eigna­safns­ins, á bil­inu 75 til 89 pró­sent. Hjá Lands­bréfum - Úrvals­bréf eru um 21 pró­sent eigna sjóðs­ins í bréfum Icelandair en hjá Lands­bréf - Önd­veg­is­bréf er um 22 pró­sent eigna í bréfum Icelandair.

Besta ávöxt­unin hjá íslenskum hluta­bréfa­sjóðum, sam­kvæmt vef Keld­unnar, er hjá Gamma Equity Fund, en ávöxtun þess sjóðs er 6,8 pró­sent á und­an­förnu ári.

Aðeins einn annar hluta­bréfa­sjóður hefur sýnt jákvæða ávöxtun á síð­ustu tólf mán­uðum en það er hluta­bréfa­sjóður Íslenskra verð­bréfa (ÍV) en ávöxtun hans er 3,7 pró­sent. Gamma sjóð­ur­inn er upp á 3,7 millj­arða og sjóður ÍV upp á 1,9 millj­arða.

Sam­an­lögð stærð þess­ara hluta­bréfa sem finna má á lista Keld­unnar er 85,2 millj­arðar króna. Gengi þeirra á mark­aði skiptir almenn­ing máli, enda er hann óbeinn eig­andi að stórum hluta þeirra fjár­muna sem eru í stýr­ingu sjóð­anna, í gegnum líf­eyr­is­sjóði lands­ins.

Uppfært 19:43: Hlekkjum á nákvæm­ari skipt­ingu eigna í sjóðum Lands­bréfa, hefur verið komið inn í text­ann, og hann upp­færður í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár