Loftslagsbreytingar ógn við framtíð allra barna

Ísland er eitt besta landið í ver­öld­inni fyrir börn en sam­kvæmt nýrri skýrslu UNICEF, WHO og lækna­rits­ins Lancet dregur mikil losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda okkur niður list­ann yfir sjálf­bærni.

Loftslagsbreytingar, hnignun vistkerfa, fólksflótti, stríðsátök, ójöfnuður og skaðleg markaðssetning er meðal þess sem ógnar heilsu og framtíð barna í öllum löndum.
Lofts­lags­breyt­ingar, hnignun vist­kerfa, fólks­flótti, stríðs­á­tök, ójöfn­uður og skað­leg mark­aðs­setn­ing er meðal þess sem ógnar heilsu og fram­tíð barna í öllum löndum. Mynd: UNICEF

Þrátt fyrir miklar almennar fram­farir síð­ustu ára­tuga á ýmsum sviðum standa börn heims­ins frammi fyrir ótryggri fram­tíð. Lofts­lags­breyt­ingar, hnignun vist­kerfa, fólks­flótti, átök, ójöfn­uður og skað­leg mark­aðs­setn­ing er meðal þess sem ógnar heilsu og fram­tíð barna í öllum löndum.

Þetta er meðal þess sem fram kemurí skýrslu um heilsu og vel­ferð barna sem UNICEF, Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) og lækna­ritið The Lancet birtu í morgun. Þar kemur fram að Ísland sé eitt besta landið í ver­öld­inni fyrir börn en að mikil losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda dragi okkur niður list­ann yfir sjálf­bærni.

Höfundar skýrsl­unnar benda á að stað­reyndir tali sínu máli: Að fjár­festa snemma í heilsu barna, menntun og öðrum grunn­þáttum bæti vel­ferð þeirra, efna­hag og aðstæður í gegnum allt lífið. Slíkt hafi einnig jákvæð áhrif á börn barn­anna okkar og sam­fé­lagið í heild.

Engin þjóð í heim­inum er með full­nægj­andi hætti að verja heilsu, umhverfi og fram­tíð barna sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar.

Skýrslan ber yfir­skrift­ina A Future for the World‘s Children? og er sú fyrsta sinnar teg­undar sem skoðar stöðu heilsu og vel­ferðar barna í löndum heims­ins, meðal ann­ars með til­liti til lofts­lags­breyt­inga og ann­arra utan­að­kom­andi þátta sem nútíma­börnum stafar ógn af. Í henni segir að heilsu og fram­tíð allra barna og ung­menna sé ógnað af vist­fræði­legri ósjálf­bærni, lofts­lags­breyt­ingum og óheið­ar­legri mark­aðs­setn­ingu stór­fyr­ir­tækja sem halda óhollu skyndi­bita­fæði, sykruðum drykkjum, áfengi og tóbaki að börnum heims­ins.

„Þrátt fyrir fram­farir í heilsu­vernd barna og ung­linga síð­ustu 20 ára þá er okkur hætt að miða áfram í þessum efnum og erum komin í bakk­gír,“ segir Helen Clark, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands og annar for­manna nefnd­ar­innar.

„Áætlað hefur verið að um 250 millj­ónir barna undir fimm ára aldri í lág- og milli­tekju­þjóðum muni ekki ná við­un­andi þroska­mark­miðum miðað við mæli­kvarða okkar á vaxt­ar­röskun og fátækt. En það sem verra er þá standa öll börn heims­ins nú frammi fyrir hreinni ógn við til­vist sína vegna lofts­lags­breyt­inga og skað­legra áhrifa frá mark­aðs­öflum. Þjóðir heims­ins þurfa að end­ur­hugsa algjör­lega nálgun sína í heilsu­vernd barna og ung­menna til að tryggja að við pössum ekki aðeins upp á börnin í dag heldur kom­andi kyn­slóðir einnig.“

Losunin 283% umfram markmið

Í skýrsl­unni er að finna nýja alþjóð­lega vísi­tölu 180 þjóða þar sem bornir eru saman mæli­kvarðar á hvernig börn dafna út frá lífslíkum, vel­ferð, heilsu, menntun, nær­ingu, sjálf­bærni og yfir­liti yfir losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í við­kom­andi landi og mis­skipt­ingu.

Þegar ein­ungis er litið til hefð­bund­inna vel­ferð­ar­við­miða eins og heilsu, mennt­unar, nær­ingar og barna­dauða (e. sur­vive and thrive mæli­kvarða) þá trónir Noregur í efsta sæti, Suður-Kórea í öðru og Holland í þriðja. Ísland er í níunda sæti.

Þegar losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda miðað við höfða­tölu í hverju þess­ara landa eru tekin með í reikn­ing­inn yfir sjálf­bærni þá hrapa þau niður list­ann. Noregur fer úr fyrsta sæti í það 156. Suður-Kórea úr öðru sæti í það 166. og Holland niður í 160. sæti. Ísland fer úr 9. sæti í 163. sæti og er ástæðan fyrir því að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er sam­kvæmt skýrsl­unni 283% umfram los­un­ar­mark­miðin sem sett hafa verið fyrir árið 2030.

„Samkvæmt öllum hefð­bundnum mæli­kvörðum er gott að vera barn á Íslandi eins og nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna,“ segir Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi. „Börn hafa hér öll tæki­færi til að blómstra og dafna. Þar sem við erum hins vegar að bregð­ast börnum, líkt og hinar ríku þjóð­irnar, er hversu mikið við mengum miðað við höfða­tölu. Þar þurfum við að grípa til taf­ar­lausra aðgerða og gera meira enda eigum við langt með að ná þeim los­un­ar­mark­miðum sem sett hafa verið fyrir árið 2030. Í þess­ari skýrslu er litið lengra en bara til stöð­unnar eins og hún er í dag. Hér er stóra myndin skoðuð og tekið með í reikn­ing­inn sjálf­bærni okkar og fram­tíð plánet­unnar fyrir kom­andi kyn­slóðir. Við þurfum að skuld­binda okkur til að skapa fram­tíð sem hæfir börnum og þar höfum við Íslend­ingar öll tæki­færi til að vera í far­ar­broddi.“

Neyðarástand og náttúruhamfarir

Í skýrsl­unni er bent á að á meðan fátæk­ari lönd þurfi vissu­lega að gera meira til að bæta lífslíkur og heilsu­vernd barna sinna þá sé það stað­bundn­ari vandi á meðan óhóf­leg losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda meðal rík­ari þjóða sé ógn við fram­tíð barna um allan heim. Miðað við núver­andi spár fer hnatt­ræn hlýnun yfir 4°C árið 2100 sem myndi hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir allt líf á jörðu.

„Rúmlega tveir millj­arðar manna búa í löndum og við aðstæður þar sem neyð­ar­á­stand, átök og nátt­úru­ham­farir, sem tengja má hnatt­rænni hlýnun, hindra þróun,“ segir Awa-Coll-Seck, heil­brigð­is­ráð­herra Senegal og annar for­manna nefnd­ar­innar.

„Á meðan fátæk­ustu þjóð­irnar losa flestar minnst af koltví­sýr­ing þá koma afleið­ingar hnatt­rænnar hlýn­unar verst niður á mörgum þeirra. Að byggja upp betri og við­un­andi aðstæður fyrir börn til að lifa og blómstra inn­an­lands á ekki að kosta það að grafið sé undan fram­tíð barna á heims­vísu.“

Fram kemur í skýrsl­unni að einu löndin, sem eru á réttri leið með að ná los­un­ar­mark­miðum sínum miðað við höfða­tölu fyrir árið 2030 og eru líka á topp 70 yfir þjóðir þar sem börn lifa og dafna best, séu Albanía, Armenía, Grenada, Jórdanía, Moldóva, Srí Lanka, Túnis, Úrúgvæ og Víetnam.

Níðst á börnum með skaðlegri markaðssetningu

Skýrslan beinir einnig kast­ljós­inu að þeirri ógn sem börnum stafar af skað­legri mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tækja. Rann­sóknir benda til að börn í ákveðnum löndum sjái allt að 30 þús­und aug­lýs­ingar á ári, bara í sjón­varpi.

Mark­aðs­setn­ing á skyndi­bita­fæði og sykruðum drykkjum á stóran þátt í yfir­þyngd og offitu hjá börnum.

Til að verja börn kalla skýrslu­höf­undar eftir nýrri alþjóð­legri hreyf­ingu sem drifin verði áfram fyrir börn. Þau nefna sem dæmi:

  • Stöðva verður losun koltví­sýr­ings (CO2) strax til að tryggja börnum fram­tíð hér á jörð.
  • Setja börn og ung­menni í for­grunn þess­arar vinnu okkar við að ná sjálf­bærri þróun.
  • Móta þarf nýja stefnu og fjár­festa í öllum greinum tengdum heilsu barna og rétt­indum.
  • Leyfa röddum barna að heyr­ast í ákvarð­ana­töku um fram­tíð þeirra.

Dr. Richard Horton, rit­stjóri The Lancet, segir að nú sé tæki­færið.

„Sönn­un­ar­gögnin liggja fyrir. Verk­færin eru til staðar. Frá þjóð­ar­leið­togum til sveit­ar­stjórna, frá leið­togum Sam­ein­uðu þjóð­anna til barn­anna sjálfra þá kallar þessi nefnd eftir dögun nýrra tíma í heilsu barna og ung­menna. Það mun útheimta hug­rekki og stað­festu til að ná settu marki. Þetta er stærsta próf­raun okkar kyn­slóðar,“ segir Horton.

„Frá lofts­lags­breyt­ingum, offitu og skað­legri mark­aðs­setn­ingu standa börn um allan heim frammi fyrir ógnum sem þóttu óhugs­andi fyrir nokkrum kyn­slóðum síðan,“ segir Hen­ri­etta Fore, fram­kvæmda­stjóri UNICEF. „Það er tími til kom­inn að end­ur­hugsa heilsu­vernd barna, þar sem börn, þeirra hagur og það sem þeim er fyrir bestur verður sett ofan á í allri ákvarð­ana­töku stjórn­valda.“

„Þessi skýrsla sýnir að leið­togar heims­ins eru of oft að bregð­ast börnum og ung­mennum. Þeim er að mis­takast við að vernda heilsu þeirra, rétt­indi og verja plánet­una þeirra,“ segir Dr. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO. „Þetta verður að vera vakn­ingin fyrir allar þjóðir að fjár­festa í heilsu og fram­tíð barn­anna og tryggja að raddir þeirra heyr­ist, rétt­indi þeirra séu virt og stefnt verði að því að skapa fram­tíð sem hæfir börnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár