Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Armslengd í endalok Bankasýslu sem Bjarni vildi aldrei sjá

Banka­sýsla rík­is­ins var stofnuð með lögum árið 2009 meðal ann­ars til þess að tryggja að póli­tíkusar væru ekki að skipta sér beint af eign­ar­haldi rík­is­ins á bönkum. Nú syngur þessi stofnun brátt hið síð­asta, eftir að rík­is­stjórnin rataði í vand­ræði.

Rík­is­stjórnin kynnti í gær­morgun þá ákvörðun for­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins, fámenna stofnun sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og hefur frá því í árs­byrjun 2010 haft það hlut­verk að fara með hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Ákvörð­unin er póli­tískt við­bragð leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar við þeirri gagn­rýni sem fram hefur komið á lokað útboð á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Angar af útboð­inu eru til rann­sóknar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, auk þess sem Rík­is­end­ur­skoðun skoðar málið að beiðni fjár­mála­ráð­herra.

Eftir yfir­legu leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar yfir páska­há­tíð­ina stendur nú til að leggja fram frum­varp um að leggja Banka­sýsl­una niður og inn­leiða „nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum“ með áherslu á „rík­ari aðkomu Alþingis og að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings.“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn vilja sumir meina að sé á hlaupum undan póli­tískri ábyrgð vegna fram­kvæmdar útboðs­ins í Íslands­banka, mun vænt­an­lega leggja fram stjórn­ar­frum­varp þar um þessar fyr­ir­hug­uðu breyt­ingar.

Það verður ekki í fyrsta sinn sem Bjarni leggur fram frum­varp sem felur í sér að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður.

Sagði Bankasýsluna fullkomlega óþarfa árið 2011

Reyndar vildi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins aldrei að stofn­unin yrði sett á lagg­irnar til að byrja með, en Banka­sýslan var stofnuð árið 2009 í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Frá upp­hafi stóð til að stofn­unin yrði lögð niður árið 2015, þegar hún yrði búin að ljúka afmörk­uðu hlut­verki sínu.

Samkvæmt lögum stóð til að færa umsýslu þeirra eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem eftir stæðu og haga þeim „með hefð­bundnum hætti í gegnum skýra eig­enda­stefnu og eft­ir­lit fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.“

Sól­ar­lags­á­kvæðið um að Banka­sýslan ætti ein­ungis að starfa í fimm ár var fellt á brott árið 2019, en stofn­unin hafði þá reyndar starfað í rúm níu ár. Þá var nýju bráða­birgða­á­kvæði bætt inn í lögin þess efnis að stofn­un­ina ætti að „leggja niður þegar verk­efnum hennar er lokið.“

Bjarni sagði haustið 2011, þá sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­ar­and­stöðu, að leggja ætti niður Banka­sýsl­una. „Hana átti aldrei að stofna heldur vista verk­efnin í fjár­mála­ráðu­neyt­inu," skrif­aði Bjarni á Facebook og lét það fylgja stofn­unin væri með öllu óþörf, þar sem fjár­mála­ráð­herra væri hvort sem er alltaf kraf­inn svara ef eitt­hvað bját­aði á.

„Leggjum þessa stofnun niður,“ skrif­aði Bjarni.

Til upp­rifj­unar má nefna að á þessum tíma stóð nokkur póli­tískur styr um starf­semi stofn­un­ar­innar. Páll Magn­ús­son, sem ráð­inn hafði verið sem for­stjóri Banka­sýsl­unnar í lok sept­em­ber 2011, ákvað að taka ekki við starf­inu í kjöl­far þess að stjórn stofn­un­ar­innar sagði af sér í heilu lagi eftir að stjórn­ar­þing­menn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna gagn­rýndu ráðn­ingu Páls.

Gagn­rýnin var helst sett fram á þeim grund­velli að Páll hefði verið aðstoð­ar­maður Val­gerðar Sverr­is­dóttur við­skipta­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins á þeim dögum er bank­arnir voru einka­væddir í fyrra skiptið. Þessi sami Páll er í dag ráðu­neyt­is­stjóri í félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti Ásmundar Einars Daða­sonar.

Undir lok árs 2011, þegar búið var að skipa nýja stjórn yfir Banka­sýsl­una, var svo Jón Gunnar Jónsson ráð­inn for­stjóri Banka­sýsl­unnar. Í því starfi er Jón Gunnar enn og mun vænt­an­lega sitja þar til Banka­sýsla rík­is­ins verður felld á brott með nýjum lögum.

Lagði fram stjórn­ar­frum­varp um nið­ur­lagn­ingu Banka­sýsl­unnar 2015

Sem áður segir átti Banka­sýslan upp­haf­lega ein­ungis að starfa í fimm ár og var það bein­línis skrifað inn í lögin um stofn­un­ina. Þegar Bjarni var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hafði hann fyr­ir­ætl­anir um að leggja stofn­un­ina niður. Frumvarp Bjarna um það efni var lagt fram 1. apríl 2015.

Með því var gert ráð fyrir að eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum yrðu færðir undir ráð­herra, sem myndi setja eig­enda­stefnu og skipa þriggja manna ráð­gjaf­ar­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita ráð­herra ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu þeirra.

Samkvæmt frum­varp­inu sem Bjarni lagði fram áttu Rík­is­kaup að ann­ast sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum. Ráð­herra átti hins vegar einn að taka ákvörðun um hvort að taka ætti til­boði í við­kom­andi eign­ar­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæki eða ekki.

Andstaða við frum­varp Bjarna var nokkur í þing­inu. Stein­grímur J. Sig­fús­son þáver­andi þing­maður Vinstri grænna gagn­rýndi meðal ann­ars að með frum­varp­inu væri verið leggja til breyt­ingar sem myndu veikja „arms­lengd­ar­sjón­ar­miðin“ sem hefðu verið veiga­mikil í umræð­unni er rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttir hefði staðið að stofnun Banka­sýslu rík­is­ins „í ann­ríki dag­anna á vor­dögum 2009“.

„Arms­lengdin“ er einmitt tölu­vert í umræð­unni nú og hafa þing­menn og leið­togar í stjórn­ar­lið­inu vísað til arms­lengd­ar­sjón­ar­miða þegar rætt er um hvort Bjarni þurfi að bera póli­tíska ábyrgð á síð­ara útboð­inu í Íslands­banka. Vísaði Katrín Jak­obs­dóttir meðal ann­ars til þess­ara sjón­ar­miða í sam­tali við Kjarnann í gær, er hún var spurð út í kröfur þess efnis að Bjarni léti af emb­ætti. Fram­kvæmd söl­unnar var jú á borði Banka­sýsl­unnar.

Stein­grímur hafði það á orði í ræðu sinni árið 2015 að sumir sjálf­stæð­is­menn hefðu lagt mikið upp úr arms­lengd­ar­sjón­ar­miðum er verið var að stofna Banka­sýsl­una árið 2009 – og að þeir hefðu talið að þau lög sem verið var að setja og enn gilda um Banka­sýsl­una tryggðu ekki nægi­lega fjar­lægð á milli ráð­herra og verk­efna Banka­sýsl­unnar.

Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
Stein­grímur J. Sig­fús­son fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna.

„Nú kann að vera að afstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi mót­ast mjög af því hver var ráð­herr­ann á þessum tíma en þá bara spyr ég: Er það mál­efna­legt? Er það þannig sem hlut­irnir eiga að ganga fyrir sig í póli­tík­inni, að lög­gjöfin eigi að mót­ast af við­horfum manna til þess hver fer með ein­stök emb­ætti þá og þá? Nei, ég ætla sjálf­stæð­is­mönnum ekki það þó að ég viti vel að þeim var ekk­ert öllum, og er ekki enn, hlýtt til mín. Ég ætla þeim að þetta hafi verið mál­efna­leg afstaða, að þeir hafi haft svona miklar áhyggjur af því að arms­lengd­ar­sjón­ar­mið­anna yrði ekki nógu vel gætt, að póli­tíska vald­inu yrði ekki haldið nógu skýrt frá eign­ar­haldi á bönkum. Ég skil það sjón­ar­mið mjög vel og er því sam­mála,“ sagði Stein­grímur í ræðu sinni þetta vorið.

Þrátt fyrir að málið væri ein­ungis rætt á þingi í upp­hafi maí og ekki orðið að lögum fyrir sum­ar­frí virt­ist gert ráð fyrir því af hálfu rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs að dagar Banka­sýsl­unnar yrðu brátt taldir og þegar fjár­laga­frum­varp Bjarna leit dags­ins ljós haustið 2015 var búið að skrúfa vænt fram­lög til Banka­sýsl­unnar niður í núll krónur.

Er fjár­lögin voru afgreidd undir lok árs­ins var þó heldur betur búið að breyta um stefnu, en í breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lögin voru fram­lög til Banka­sýslu rík­is­ins þre­földuð frá fyrra ári og henni ætlað að ganga til verka við að und­ir­búa það sem þá var í píp­unum, sala á 30 pró­senta hlut í Lands­bank­anum, sem ekk­ert varð af. Banka­sýslan fékk svo Íslands­banka í fangið þegar kröfu­hafar Glitnis afhentu rík­is­sjóði 95 pró­sent hluta­fjár í bank­anum í febr­úar árið 2016.

Nú rúmum sex árum síðar hafa svo póli­tísk vand­ræði rík­is­stjórn­ar­innar við sölu á hlut í þeim sama banka orðið til þess að stjórn­völdum þykir fýsi­leg­ast að leggja stofn­un­ina niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár